Vikan - 31.07.1969, Blaðsíða 19
uðu þjóðanna með umslögin sín og færa þau
öllum fulltrúum á þinginu.
En allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna kemur
sem kunnugt er saman í höfuðstöðvum samtak-
anna í New York. Ekki flökraði að þeim hjón-
um, að þar ætti hnífurinn eftir að standa (
kúnni.
John Lennon var synjað um vegabréfsáritun
til Bandaríkjanna.
— Hvílíkt ranglæti, sagði veslings John með
friðarboðskapinn upp á vasann, og kona hans
tók í sama streng.
Ekki varð harmur hjónanna minni, þegar þau
horfðu á eftir Ringó og Peter Sellers kampa-
kátum láta úr höfn um borð í hinu nýja og
glæsilega hafskipi „Elísabet drottning II", en
þau hjónin höfðu einmitt pantað sér far með
skipinu.
Ringó og Pétur höfðu ekki verið sektaðir fyr-
ir að hafa eiturlyf í fórum sínum, og það reið
baggamuninn.
rátt fyrir ítrekaðar yfirlýsingar bandaríska
sendiráðsins ( London um að John Lenn-
on muni ekki í nánustu framtíð fá vegabréfs-
áritun til Bandaríkjanna, hengir f riðarbíti 11 inn
sig í vonina um að upp muni rofa innan tíðar
— og fyrir skömmu var hann kominn með frúna
til Toronto ( Kanada. Þau hreiðruðu um sig í
gistihúsi einu þar í borg og héldu kyrru fyrir
í bóli sínu til þess að vekja athygli á málstað
sínum: þv( háleita markmiði að sameina jarðar-
búa í friði og kærleika.
Þetta vakti að vonum töluverða athygli lands-
búa. Ekki sátu hjónin þó allan tímann um kyrrt
( kamesi sínu, því að bóndinn hljóðritaði tvö
lög á hljómplötu þar á staðnum. John skilur
sjaldan við sig segulbandstækið sitt, sem er
knúið rafhlöðu, og það kom líka ( góðar þarfir
þarna á gistihúsinu í Toronto. Hjónin buðu til
sín fjörutíu fylgifiskum og kögursveinum. Stjórn-
aði John fjöldasöng á staðnum, og var sungið
um frið á jörðu. Þessi sérstæða upptaka er nú
komin út á tveggja laga plötu. Titillagið nefnist
„Give Peace A Chance", en kórinn var skírður
Hið nýja útgáfuiyrirtæki John og Yoko heitir
,,Bag Productions" (Poka-afurðir). Lífsspeki sína
kalla þau ,,Bagism“ (poka stefna), og þau gerðu
nýlega grein fyrir henni í sjónvarpsþætti Eamonn
Andrews. Þeim þótti tilhlýðilegt að vera saman 1
poka við það tækifæri.
„Plastic Ono Band". Þegar þetta er skrifað segir
fátt af ferðum plötunnar upp eftir vinsældalist-
um, en fróðlegt verður að fylgjast með, hvort
boðskapur Lennons og Ono fær hljómgrunn hjá
alþýðu.
essi hljómplata er ekki hin fyrsta, sem
John hefur allan veg og vanda af. Hann
hefur víðar verið á kreiki með segulbandstæk-
ið sitt. Fyrir nokkru kom út hæggeng hljóm-
plata, sem nefnist „Life With The Lions". Plat-
an er gefin út á vegum „Zapple", en það er
einn af afleggjurum „Apple", útgáfufyrirtækis
Bítlanna. Eins og raunar við er að búast, er þetta
engin „venjuleg" hljómplata. A annarri hliðinni
er nokkurs konar „uppákoma" (happening), sem
John festi á tónband sitt á svonefndri „Nátt-
úrutónlistarhátíð" í Cambridge. Kreistir Yoko út
úr sér hina ferlegustu skræki og gæti ókunnug-
um komið til hugar, að konan væri hreinlega
John og Yoko ræddu við fréttamenn, þegar þau
komu úr brúðkaupsferðinni.
að geispa golunni í gapastokk eða einhverju
piningartóli, sem enn meiri ógn og stuggur
stendur af. Einn listrýnir komst svo að orði, að
þessi hljóð væru hin geigvænlegustu, sem heyrzt
hefðu í háa herrans tíð og mætti fara aftur til
þess tíma, er fyrsti þotuhreyfillinn var ræstur,
til þess að finna einhverja hliðstæðu. Vælið í
Yoko (hún segir ekki bofs) þekur alla aðra hlið
plötunnar en baka til heyrist eymdarlegur blást-
ur saxófóns, yfirmótað og brenglað gítarkropp
Johns og trumbusláttur, framinn af litlum hag-
leik. Rúsínan í pylsuendanum er þó á hinni hlið
plötunnar: Þar er þeim atburði, er Yoko missti
fóstur á Queen Charlotte sjúkrahúsinu ( nóvem-
ber sl., lýst, í söngvum, með hjartslætti — og
tveggja mínútna þögn. Mun þetta vera í fyrsta
sinn ! sögunni, að þögn er sett á hljómplötu
sem sérstakt númer.
Síðar í sumar er von á annarri hljómplötu
frá þeim hjónum. Mun hún nefnast „The Wedd-
ing" (Brúðkaupið). Ber að líta á þá plötu sem
framhald plötunnar „Tvær jómfrúr", en sú plata
hlaut mikla frægð vegna myndar af hjónunum
kviknöktum í bak og fyrir á plötuumslaginu. Er
Yoko og John £ Gíbraltar eftir hjónavfgsluna.
Þau halda á sönnunargagninu.
ekki að kynja, þótt menn bollaleggi nú, hvern-
ig umslag hinnar væntanlegu plötu verði!
Enginn lét sér bregða, þegar John og Yoko
gerðu heyrun kunnugt, að þau hefðu
stofnað eigið útgáfufyrirtæki. Heitir það „Bag
Productions" og er ætlað að veita sköpunar-
gáfu þeirra farveg á heimsmarkaðinn. Hafa
hjónin í hyggju að gefa út tvær bækur á næst-
unni. Önnur er eftir Yoko, hin eftir John. Ekk-
ert hefur enn fengizt upplýst um innihald bók-
anna. Ef að Kkum lætur hafa þær að geyma
þankabrot um friðinn. Bækurnar munu fyrst
koma út vestan hafs. John hyggst setja þar á
laggirnar útibú og söluskrifstofu fyrir fyrirtæki
þeirra hjóna og þykir því illt í efni að fá ekki
að stíga fæti á bandaríska grund. Fyrirtækið
mun einnig gefa út hljómplötur þeirra hjóna í
framtíðinni, svo og kvikmyndir.
Það hefur vakið töluverða athygli, hversu
samrýmd John og Yoko eru. Þau eru eins og
óaðskiljanlegir tvíburar. Þau hugsa eins, klæða
sig eins — eða mjög svipað! — hafa hárið eins,
og ef vel er að gáð eru þau furðulega lík í
andliti. Um kærleika Johns til Yoko sinnar efast
enginn en til þess að undirstrika hann enn bet-
ur, lét hann breyta öðru nafni sínu konu sinni
til heiðurs. Hann hét fullu nafni John Winston
Lennon en heitir nú John Ono Lennon.
En hvað er þá títt af högum hinna Bítlana?
George Harrison hefur sýslað við plötu-
upptökur, bæði sem stjórnandi og þátttakandi.
Ekki var örgrannt um, að sumum þætti hann
blóta á laun, þegar spurðist, að hann hefðí
samið lag fyrir hljómsveitina Cream (sem nú er
hætt) og leikið með þeim á plötu. En sköpunar-
gáfa hans hefur líka fengið útrás í annarri
mynd. Hann hefur kuklað með elektrónísk hljóð
og lét nýlega frá sér fara hæggenga hljómplötu
með yfirskriftinni „Electronic Sounds". Önnur
hlið plötunnar nefnist „No Time Or Space". Þar
er að finna hin furðulegustu hljóð og er áheyr-
andanum, sem nennir að leggja við hlustirnar,
hulin ráðgáta, hvað maðurinn er að fara. George
hefur sjálfur fest þessi hljóð á tónband
Framhald á bls. 45
3t. tbi. VIKAX 1!)