Vikan


Vikan - 25.02.1971, Blaðsíða 33

Vikan - 25.02.1971, Blaðsíða 33
JUÆm DEALER AID^MATS No. 1-68-R BEAUTIFUL EYES ífiébtig/i,Jnc. MEMPHIS, TENN. 38101 OCTOBER, 1968 BEAUTIFUL EYES \ NATURAL HAIR LASHES / jQijlKffiuC', LA3H 'ADHESIVE AUTOMATIC SHARPENER lciö L=S o | 5? m rrfi 1 [£y|j ö. 1 \ NATURAL HAIR LASHES / j J i\(UpEÍMÍþ . Jj^ ^ooMIÍQmi, i|i LASH 'ADHESIVE | SPECIAL.SPIRAL BRUSH “HmmTYi DUO-TAPER BRUSH J^UjjAwb EYEBROW AND EYE LINER PENCIL 1 I MAGIC MASCARA REFILL ' j^ULTRfi SHHDOLU *C ULTRfiBROLU*Ö C ULTRR LflSH 1 .. !dr; | ULTRA LASH REFILL PÉTUR PÉTURSSON, HEILDVERZLUN HF. SUÐURGÖTU 14. gera og þeirri vinnu sem við lögðum í framleiðslu okkar. Þegar „Mothers of Invention" voru virtar var það oft á röng- umforsendum: Hljómsveitin var vinsæl á vissum tíma og af vissu fólki á vissu svæði, því það var í tízku að hafa dálæti á því sem enginn skildi. —Varstu sár yfir því að þurfa að leysa upp fyrri hljómsveit- ina? — Auðvitað leið mér illa. Ég hætti meira að segja að vinna um tíma. Það er algjört brjál- æði. Til að byrja með voru eng- in persónuleg vandamál í þessu, en eftir að hljómsveitin hætti fóru meðlimirnir að koma til mín og spyrja mig hvað ég ætl- aði að gera í þessu, rétt eins og ég ætti að passa þá. — Hvað varð um Captain Beefheart, sem söng eitt lag með þér á „Hot Rats“? — Captain Beefheart gifti sig og þá breyttist hann. Hann er að syngja ennþá, en hann hefur ekkert samband haft við mig. Ég held að honum finnist ég leiðinlegur. En það er allt í lagi. Við er- um með tvo fasta söngvara núna, sem voru áður í TIJRT- LES, og svo geta fleiri sungið, þannig að við syngjum oft fjór- raddað núna. Ég vil þó ekki segja að við séum eins og Crosby, Stills, Nash & Young! Heyrðu, áður en við komum til Bath, komum við til Amster- dam og gerðum sjónvarpsþátt þar. Við fengum góðar mótttök- ur þar og pressan var okkur hliðholl, nema einn náungi sem var ægilega illur og æstur yfir því að við spiluðum allt í sama t.akti. Við hlógum að honum. Mér finnst engin ástæða til að vera með allt í 4/4; persónu- lega finnst mér ekkert skemmtilegra en að spila í 3/4 og þessvegna geri ég það. En svona yfirleitt, held ég að okkur eigi eftir að ganga bet- ur, því músíkin okkar er orðin aðgengilegri og nú er sungið. — Er hægt að dansa við músíkina yklcar? — HA? DANSA? Tja... í hreinustu neyð — hugsa ég... ☆ AGATHA CHRISTIE Framhald af bls. 15. árangurslaust. Vatn hefur fram að þessu verið uppáhaldsdrykk- ur Agöthu Christie. Hún gift- ist samt Sir Max, árið 1930. Á ferðum sínum til forn- leifarannsókna fara hjónin venjulega fyrst til Tale Nim- rud í írak. Þar eiga þau hús, búið austurlenzkum húsgögn- um. Á þeim stað kynntust þau fyrst árið 1928. Fyrir nokkrum árum varð leiðangur þeirra hjóna mjög árangursríkur, þau fundu og grófu upp leifar Kalcho hallar- innar, ásamt vopnum, hásæti keisarans, skartgripum og 15 tonnum af stórum steinstytt- um. Agatha Mary Clarissa Miller var dóttir auðugs Bandaríkja- manns og brezkrar hefðar- konu. Þegar hún hitti núver- andi eiginmann sinn, Sir Max Mallowan, var hún þroskuð kona og mjög óhamingjusöm. Hún var, eins og aðrar hefð- armeyjar, alin upp af einka- kennurum og fóstrum. Hún lærði píanóleik, dans og söng. Þegar fyrri heimsstyrjöldin brauzt út, gerðist Agatha Mill- er hjúkrunarkona. Einn af fyrstu sjúklingum hennar var Archibald Christie, ofursti. Þau giftu sig snarlega og eignuðust eina dóttur, sem hlaut nafnið Rosalind. — Við bjuggum í hamingjusömu hjónabandi í ellefu ár, segir Agatha Christie nú, fremur kuldalega. — Þá fann maðurinn minn sér yngri konu. Sorgarsöguna að baki þess- ara orða getur maður fundið í gömlum dagblöðum frá þeim tíma. Agatha Christie talar al- drei um þá sjö skuggalegu daga í lífi sínu. 7. desember 1926 gaf lögregl- an í Englandi út svohljóðandi eftirlýsingu: „Frú Agöthu Christie er saknað. Hún er 35 ára, 1,78 m á hæð, ljóshærð 8. tbi. VIKAN 33

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.