Vikan


Vikan - 25.02.1971, Blaðsíða 14

Vikan - 25.02.1971, Blaðsíða 14
Agatha Chrístíe stígur htœjandí yfír ltlitn Konan Agatha Christie er blíðlyndari en flest annað fólk, feimin og glöð. Þessi áttræða hefðarkona er svo hrædd við blóð, að hún verður skelfingu lostin, ef hún sker sig í fingur, svo það er heppilegt að lifnaðarhættir hennar og atvinna eru tiltölu- lega hættulaus. Það er líka eins gott fyrir heimilisfólk og fjölskyldu hennar að fara vel með öll lif- andi dýr, jafnvel stofuflugur, þegar hún er viðstödd, því að hún elskar allar lifandi verur og þolir ekki illa meðferð á skepnum. Agatha Christie er mjög hjartahlý. Hún hefur yndi af að prjóna og að elda góðan mat. f því er hún meistari. Hún nýtur þess líka að sitja í stúku sinni í óperunni. — Það er dásamlegt, segir gamla kon- an með sinni mildu rödd. En eitt er furðulegt, þótt hún sinni þessum ljúfu hugðarefn- um sínum, hugsar hún alltaf um það sama, um morð. Morðin, sem hún íhugar við grautarpottinn, prjónana eða í óperustúkunni, koma sannar- lega fyrir almenningssjónir í bókum hennar. Hún heldur mest upp á eiturmorð eða kyrkingar; sjaldan lætur hún morðingja sína nota skotvopn og enn sjaldnar rýtinga og hnífa. Henni finnst eitthvað sóðalegt við það, hún þolir ekki mikið blóð, vill heldur hafa þetta hreinlegt. Á þessum áttatíu árum hef- ur hún eldað mikinn mat, prjónað margar flíkur og mjög oft setið í óperustúku sinni og ráðið marga morðgátuna, enda hefur hún gefið út áttatíu bæk- ur. Það er ekki að ástæðulausu sem hún er kölluð „drottning sakamálasagnanna", óskeikul í lausnum sínum og óþreytandi við að leiða lesendur sína á villigötur, til að koma þeim á óvart í sögulok. Vegna þess hve sögur henn- ar eru lifandi og skemmtilegar aflestrar, hafa þær verið meira þýddar á önnur tungumál, en nokkrar bækur annarra enskra rithöfunda. Þar á hún algert met, slær jafnvel sjálfan Sha- kespeare út. Heimsupplagið af bókum hennar er hvorki meira né minna en 300 milljónir ein- taka! Fyrir utan Sir Conan Doyle, höfund Sherlock Hol- mes sagnanna, er hún eini rit- höfundur sakamálasagna, sem hlotið hefur orðu fyrir ritstörf sín. Edgar Wallace gat ekki einu sinni státað af því. Hún hefur líka fengið fjölda af ver’ðlaunum og viðurkenning- um fyrir bækur sínar. Hin 19 sakamálaleikrit henn- ar hafa átt miklum vinsældum að fagna. Við getum tekið dæmi af „Músagildrunni". Þeg- ar hún skrifaði það leikrit, var Mathew, dóttursonur hennar nýfæddur. Hún gaf honum birt- ingarréttinn að því í fæðingar- gjöf. Nú er Mathew Pritchard 18 ára og þessi gjöf ömmu haris hefur gert hann að milljóna- mæringi. Enginn veit hve auðug Agat- ha Christie er. Það er kunnugt að hún hefur stofnað marga milljónasjóði til velferðar- og menningarmála. Sjálf á hún fyrirtækið „Agatha Christie Limited" í London og hefur það fyrirtæki útibú um allan heim. Enskt tímarit hefur lát- ið reikna út að hún hafi sem svarar hálfri milljón króna á viku, án þess að þurfa að rétta út fingur og að árstekjur henn- ar af útgáfustarfseminni séu ekki undir 25 milljónum. Hin áttræða kona, sem nýtur þess í fullum mæli að vera amma, en getur aldrei látið vera að hugsa um morð, á nú þrjú hús í Englandi. Áður átti hún átta hús, en fimm þeirra hefur hún selt, vegna skorts á þjónustufólki. Á sumrin býr Agatha Christ- ie oftast í „Greenway House“, fallegu herrasetri í Devonshire. Þetta hús er eins og það hafi verið byggt eftir fyrirmynd frá einni af bókum skáldkonunnar. Gömul, risavaxin tré umkringja húsið, sem er eins og lítil höll. Húsið stendur á fallegri hæð, en í kring eru iðgræn engi, fleiri kílómetra, og í fjarska rennur áin Dort. Af 80 bókum, sem Agatha Christie hefir gefið út hafa 74 verið metsölubækur. Hún skrifaði sex ástarsög- ur, sem ekki féllu í smekk lesenda. Upphaflega ætlaði hún að verða söngkona og píanóleikari, en hafði ekki nóga hæfileika. En hún syngur og spilar mikið fyrir eiginmann sinn, sem hefir mikla ánægju af því. 14 VIKAN a. tbi.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.