Vikan


Vikan - 25.02.1971, Blaðsíða 20

Vikan - 25.02.1971, Blaðsíða 20
Lucrezia Borgia var dóttir páfa, hafði gullið hár og grá augu. Hún var fimm sinnum gift, þar af tvisvar á bamsaldri. Flækt í þrjú morðmál. Fæddi níu böm (þrjú andvana). Mjög vel viti borin, mjög auðug, mjög léttúðug. Dó þrjátíu og níu ára að aldri. Lucrezia Borgia var dóttir Alexanders páfa sjötta og ástkonu hans. En þetta, að sjálfur páfinn héldi frillur og gæti við þeim börn, var engin hneykslunar- hella á Ítalíu á sextándu öld. Alexander Borgia var aðeins einn af mörgum kirkjuhöfðingjum þeirrar tíðar, er höfðu skírlífisreglur kirkju sinnar að engu. En með svallveizlum þeim, sem páfinn og börn hans héldu í Vatíkaninu, tókst þeim að hneyksla samtíð sína, og þurfti þó nokkuð til. Alræmdasta orgían sem páfafjölskylda þessi efndi til átti sér stað í október 1501. Lucrezia Borgia og hennar heilagi faðir héldu þá veizlu og buðu til mörgu stórmenni, kardínálum, hertogum, hirðmönnum og — fimmtíu rómverskum vændiskonum. Að máltíð lokinni lét páfi stilla kertastjökum þeim úr gulli, er hafðir höfðu verið til borðlýsingar, hér og hvar um gólfið, og dreifði síðan yfir ENGILLINN BLYGÐUNARl 20 VIKAN 8 tbi. Alexander páfi sjöttl (1431—1503) notaði dóttur sína sem pólitiska leikbrúðu. Af honum lærði hún að belta valdi sínu tlllitslaust. Ccsare Borgia (1475—1507) lifði taumlausu lífi á flestum sviðum. Hann var stórsnjall stjórnmálamaður og herforingi, en jafn- framt samvizkulaus glæpamaður.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.