Vikan - 25.02.1971, Blaðsíða 30
ÞAÐ KEMUR OFT
FYRIR AÐ MENN...
Fravihald aj bls. 9.
man, brosir og hneigir sig.
Við höldum áfram samtal-
inu. — En haldið þér að venju-
legar miðaldra konur hafi
kjark tii að njóta forboðinnar
ástar, eins og í kvikmyndinni?
— Nei, því þora þær ekki.
Þess vegna er það. . . .
Ingrid Bergman skilgreinir
ekki nánar hvað hún á við.
— Ó, hvar eru gleraugun
mín? hrópar hún upp. Hún
finnur þau og fer að glugga í
matseðilinn. Hún er furðulega
lík konunni í kvikmyndinni.
Ingrid Bergman elskar líka
dýi, þau hjónin, hún og Lars
Schmidt, eiga fjóra hunda, sem
þau hafa á heimili sínu fyrir
utan París, þar fá þeir að vera
frjálsir. Börnin hennar eru
uppkomin.
Eldri kona — ungnr maður?
— Að hugsa sér, tvíburarn-
ir, Ingrid og Isabella, eru
orðnar átján ára!
Hún fer til Róm eins oft og
hún getur, til að hitta börnin
sín. Faðir þeirra, Roberto
Rosselini, er góður vinur henn-
ar nú.
— Ég er ekki hrifin af spurn-
ingum unga fólksins. Það spyr
um svo margt, maður verður
að útskýra svo margt. Hvernig
var það í Hollywood? spyrja
þau. Hvernig var Gary Coop-
er? Hvað finnst yður um Róm?
En allir mínir gömlu vinir vita
hvað mér finnst. Það er þægi-
legt. Ég sagði áðan að ég ætti
erfitt með að fá hlutverk við
mitt hæfi. Ég varð strax hrif-
in af „Á göngu í vorregninu",
vegna þess að þessar manneskj-
ur voru báðar miðaldra. Mér
finnst það óhugnanlegt þegar
eldri konur leggja lag sitt við
unga pilta.
— Svo þér gætuð ekki hugs-
að yður að verða ástfangin af
yngri manni?
— Það get ég ekki ímyndað
mér, svo heimsk er ég ekki.
— Kemur það oft fyrir að
karlmenn verði ástfangnir af
yður?
-— Já, það kemur fyrir.
— Hvernig snúið þér yður í
þeim sökum?
— Ég er ekki vond. Fyrir
nokkru síðan var ég spurð að
þessu sama í sjónvarpsviðtali.
Ég hló.
% er ákaflega venjuleg
manneskja.
— Viljið þér ekki segja mér
eitthvað um yður sjálfa?
— Ég er ekki ein af þeim
kvikmyndastjörnum, sem ein-
göngu vilja tala um sjálfa sig.
Eigum við ekki sleppa því að
tala um mig, tala heldur um
yður. Hvað finnst yður um
þessa síðustu mynd mína? Allt
í lagi, við skulum þá tala um
mig. Ég er ákaflega forvitin.
Ef einhver varar mig við að
lesa ákveðna grein í blaði, hún
sé svo voðaleg, þá flýti ég mér
til að kaupa það blað.
Ég er mjög venjuleg mann-
eskja, laus við að gera mig til.
Ef ég á að vera með einhverja
tilgerð, þá vil ég fá það borg-
að. Ég er ekki fölsk. Hvernig
ætti maður að vera fyrirmynd
barna sinna og ala upp skyni
bornar manneskjur, ef maður
hagaði sér eins og kona, sem
taiaði í símann við vinkonu
sína: „Mikið ertu ungleg, þú
ert ógurlega sæt, elskan", og
segir svo allt annað, þegar hún
hefur lagt niður heyrnartólið?
Hvernig verða þau börn sem
heyra slíkt heima hjá sér?
Ég er örugg í framkomu. Ég
á erfitt með að þegja yfir því
hvernig mér finnst fólk eigi að
haga sér. Anthony Quinn segir
að það sé töluverð lífsreynsla
að leika ó móti mér. . . .
Og Ingrid Bergman lýkur við
salatið sitt. Svo förum við aft-
ur út á götuna. Hún er á leið
heim til sin, út í sveit, þar sem
maðurinn hennar og fjórir
hundar bíða hennar. Hún stend-
ur þarna í vetrarsólinni: heims-
stjarna í áratugi, leikkona, sem
hefur gengið í gegnum mikla
erfiðleika, elskuð og hötuð í
Ameríku, en nú er hún aftur
dáð. Hún fór úr einu hjóna-
bandinu í annað, hædd og smáð
í blöðunum, sem sjaldan hafa
verið grimmari við nokkra
manneskju. Þegar maður sér
þessa konu, gleymir maður því
öllu. Hún er sérstaklega bein í
baki, það er mikil reisn yfir
henni.
— Klukkan þrjú þarf ég að
vera komin til Balmain. Ég
verð að fylgja tízkunni. Kjól-
arnir verða að vera svo síðir
núna....
RÉTT
FEGRUNARLYF...
Framhald af bls. 27.
Rakakrem kemur í veg fyrir,
að húðin ofþorni og verndar
hana, auk þess að gera farðann
áferðarfallegri. í húðvefnum
er um 9% af vatni líkamans.
Við ættum að hafa það í huga,
að við getum lengur lifað án
fæðu en vatns, og jafnvel þótt
við kærum okkur ekki um
farða, ættum við að muna, að
nauðsynlegt er að nota á húð-
ina rakakrem bæði á sólardög-
um sumarsins og á veturna í
okkar köldu veðráttu. Það
kemur meðal annars í veg fyr-
ir, að viðkvæmar háræðar í
andlitinu spryngi og eins vernd-
ar það húðina fyrir utanað-
komandi óhreinindum.
Make-up
Og þá er byrjað á sjálfum
farðanum. Hann er settur á í
smádoppum, sem síðan er strok-
ið út um allt andlitið og háls-
inn upp á við.
Make-up er notað á andlit til
að gera það meira aðlaðandi
og eftirtektarvert. Aðalatriðið
er að fá fagra andlitsdrætti
fram og hylja þá, sem síður
eiga að sjást.
Það er í rauninni engin ein
regla ríkjandi í sambandi við
make-up. Sem list krefst það
góðrar kunnáttu. Aðaltilgang-
urinn er að skapa fegurð, en
gæta verður þess, að litir þess
fari vel við eiginlegan húðlit.
Fallega farðað andlit er aldrei
yfirdrifið.
Af tízkunni núna er það að
segja, að flestöll snyrtivöru-
fyrirtæki í samráði við tízku-
fyrirtæki, urðu sammála um
það á síðastliðnu hausti, að
mýkt ætti að vera töfraorðið,
— mýkt í litum, línum, hár-
greiðslu, andliti og fátnaði.
Haustlína þessi er miðuð við
midi og maxi-lengd. Jafnvel
fölir litir í make-up og gegn-
sætt púður stundum með ofur-
litlum gljáa.
Púður
Púður er notað í þeim til-
gangi að make-up endist betur,
auk þess sem það gefur matta
áferð.
Með roða eða skugga er hægt
að gera undraverk á andliti,
eins og til dæmi§ að gera
kringlótt andlit mjórra, langa
höku minna áberandi, stytta
langt nef og því um líkt og
velja þá mismunandi liti, bæði
ljósari og dekkri, allt eftir því
hvernig á að nota þá. Eins er
það með skugga, með þeim má
hylja og breyta.
Highlighter má nota til að
gera fagra andlitsdrætti meira
áberandi og styrkja veikari
drætti, en varlega verður að
fara að, því að líka má lýta
með þeim. Sumum dettur ef-
laust í hug í þessu sambandi
við roða konur hér áður fyrr,
sem af vankunnáttu settu vel
rauðan og afmarkaðan blett á
sitt hvora kinn og litu út fyrir
umheiminum eins og trúðar.
Augun
Victor Hugo skrifaði: Þegar
kona talar við þig, hlustaðu þá
á hvað hún segir með því að
horfa í augu hennar.
Framar öllu geislar frá aug-
unum persónuleiki og tilfinn-
ingar. Þess vegna er vel gert
augna-make-up svo þýðingar-
mikið. Það gefur augunum
meiri lit, líf og gljáa og auk-
inn þokka.
Haust- og vetrarlínan í
augnafarða boðar óvenjulega
liti í augnskuggum, sem gefa
augunum mildan, mjúkan blæ
og í sumum tilfellum milda
augnlínu í samræmi við augn-
skuggana. Augun eiga að vera
miðdepill andlitsins, sýnast sem
stærst og gljáandi og jafnvel
með ofurlitlum sorglegum blæ.
Augabrúnir mjóar og boga-
dregnar.
Gcrviaugnahár
Gerviaugnhár eru nauðsyn-
legur liður í góðum kvöldand-
litsfarða. Augun sjálf sýnast
stærri og meira áberandi.
Það er auðveldara en marg-
ir álíta að setja upp gervi-
augnhár. Þessa aðferð er bezt
að nota: Setjið augnháralím-
dropa á efri köggul þumalfing-
urs og vísifingurs hægri hand-
ar, strjúkið jaðri augnháranna
gegnum límdropann þannig, að
þau taki á sig þunna línu af
líminu, leggið síðan miðju
gerviaugnháranna á miðju
sjálfra augnháranna þétt upp
að augnlokinu og þrýstið svo
báðum endum vel að.
Allavega löguð augnhár eru
á markaði nú til dags, og einn-
ig er hægt að fá þau í smábút-
um, sem límdir eru á einn og
einn í senn, og sérstök augn-
hár fyrir neðri augnhár.
Gaman er að prófa sig áfram
í því að leggja gerviaugnhár.
Verið ekki smeykar. þótt fyrstu
tilraunir mistakist. Það má
alltaf reyna aftur, því æfing-
in skapar meistarann.
Varalitun
Við notum ávallt pensla við
varalitun. Þeir gera okkur fært
að afmarka betur útlínur var-
anna og ef breyta þarf útlínum
þeirra, er betra að gera það
með pensli.
Þegar pensill er notaður til
varalitunar, þá er bezt að fara
30 VIKAN 8- tw.