Vikan - 03.06.1971, Side 4
í fyrsta sinn á íslandi:
STRIN G
HILLUSAMSTÆÐURNAR
sem fóru eins og eldur í sinu
og slógu í gegn í flestum Evrópulöndum
á síðustu árum
Einfalt, nútímalegt, ódýrt og splunkunýtt
Pírn - umboðíd
HÚS OG SKIP
á horni Nóatúns og Hátúns
Sími 21830
--------------------------------'
PÓSTURINN
Útstæð eyru
Kæri Póstur!
Eg er ein af lesendum þínum og
langar að skrifa þér nokkrar
linur sem ég vona að lendi ekki
í ruslakörfunni. Svo er mál með
vexti að ég er með mjög útstæð
eyru og þykir það svo Ijótt. Nú
spyr ég hvort ekki sé hægt að
laga þetta og hvað það sé mikil
aðgerð? Hvernig er hægt að ná
freknum af sér?
Með fyrirfram þakklæti.
Ribba.
Samkvæmt upplýsingum sér-
fræðinga mun þetta vera mjög
auðvelt að laga og sáralítil að-
gerð. En slikar aðgerðir eru
ekki framkvæmdar fyrr en við-
komandi hefur náð nokkurn
veginn fullum þroska, svo jafn-
vægið fari ekki úr skorðum. Svo
hafir þú ekki náð 15—16 ára
aldri nú þegar, skaltu bíða
þangað til. Freknum er ekki
hægt að ná af sér.
Elvis og fleiri
Kæri Póstur!
Það er bezt að byrja á að þakka
þér allt gott á liðnum árum.
Mig langar mjög mikið til að
biðja þig að birta lista yfir plöt-
urnar hans Elvis Presley.
Hvers vegna birtið þið aldrei
myndir af honum eða þá Tom
Jones?
Já — og svo langar mig að
spyrja hvernig ykkur lízt á að
birta viðtal við þá Paul, George
og Ringó? Gaman væri að vita
hvort þeir hefðu það sama að
segja og John Lennon. Margur
myndi þiggja eitthvað af öllu
því sjálfsáliti sem hann hefur.
Að endingu þakka ég þér birt-
inguna á þessu bréfi, ef það fer
ekki í körfuna.
Ella Begga.
Þetta með Elvis, Tom Jones og
fleiri er í gaumgæfilegri athug-
un hjá stjórnanda þáttarins
„Heyra má" og nú er bara að
bíða og vona. Listinn yfir LP-
plötur Presleys fylgir hér að
neðan. Varðandi viðtalið við
hina þrjá Bítlana getum við
ekki sagt þér annað en að þeir
vilja ekki veita Vikunni einka-
viðtal og hafa hvergi látið hafa
neitt eftir sér um frásögn Lenn-
ons. Hitt er svo annað mál að
þoir Lennon, Harrison og Starr
hafa sameinazt gegn McCartney
í málaferlunum og bera honum
ekki Ijúfa söguna. Sagði Harri-
son til dæmis fyrir rétti að Mc-
Cartney hefði alltaf litið niður
á sig, bæði sem persónu og
músíkant. — Okkur finnst þetta
alls ekki vera sjálfsálit hjá
Lennon í viðtalinu fræga, held-
ur heiðarleg sjálfsþekking og
gagnrýni.
Hér færðu svo listann yfir LP-
plötur Presleys, en langflest
lögin sem hafa komið út á
tveggja laga plötum, eru nú
komin á LP-plötur. Jú, eitt enn:
Þetta eru aðeins þær plötur sem
fáanlegar eru í dag.
Blue Hawaii; Clambake; A date
with Elvis; Double trouble;
Elvis; Elvis — TV special; Elvis
(Rock & roll no. 2); Elvis' Christ-
mas Album; Elvis for everyone;
Elvis' Golden records vol. 2;
Elvis' Golden records vol. 3;
Elvis' Golden records vol. 4;
Elvis is back; Flaming star and
summer kisses; From Elvis in
Memphis;From Memphis to Ve-
gas; From Vegas to Memphis;
Fun in Acapulco; Gl blues; Girl
happy; Girls! Girls! Girlsl; Harl-
em holiday; His hand in mine;
How great thou art; It happen-
ed at the world's fair; King
Creole; Kissin' cousins; On
stage, February 1970; Paradise
Hawaiian style; Pot luck; Roust-
about; Something for every-
body; Speedway; That's the
way it is; Elvis Country (10.000
years old). Og svo eru hér EP-
plötur Presleys: Elvis in tender
mood; Elvis Presley; Elvis sails;
Elvis sings christmas songs;
Jailhouse rock; King Greole, vol.
1; Kinq Creole, vol. 2: Peace in
the valley; Strictly Elvis; Such a
night: A touch of gold; A touch
of gold, vol. 2.
Svar til „einnar
óákveöinnar á
Hvammstanga"
Þó að langt sé liðið siðan þú
skrifaðir okkur, þá vonum við
að ráðleggingar okkar komi
enn að notum. Hættu alveg að
hugsa um þennan pilt, því
hann hefur greinilega ekkert
meint með því sem hann var
að fara. Hann hefur greinilega
fengið það sém hann var að
4 VIKAN 22. TBL.