Vikan


Vikan - 03.06.1971, Qupperneq 5

Vikan - 03.06.1971, Qupperneq 5
sækjast eftir. Ástæðan fyrir því að hann var sífellt hræddur um að til ykkar sæist, var efalaust sú að hann skammaðist sin. Ekki fyrir þig, heldur fyrir sjálf- an sig og það sem hann var að gera — í meiningarleysi. Þetta er sem sé okkar álit — og enn frekar það að þú hefur verið full áköf i framkomu þinni við hann. Ef til vill er það það sem hefur gert hann fráhverfan þér. Skriftin er lagleg, vel læsileg, en bendir til veiklyndis. Ald- ursmunurinn skiptir í sjálfu sér engu máli. Þorir ekki til læknis Elsku Póstur! Ég hef nú ætlað að skrifa þér undanfarna daga, en ekki kom- ið því í verk, vegna þess að hér á . . . skóla er mikið að gera. Jæja, nú kem ég að efn- inu: Ég á kaerasta sem er hér í skól- anum. Hann er 16 ára en ég er 15. Ég hef ekki haft blæð- ingar í tvo mánuði og held að ég sé ófrísk. Ég þori ekki að leita ráða hjá foreldrum mínum, né að fara til læknis, vegna þess að ég er svo ung. Kæri Póstur, hvernig er staf- setningin og skriftin? Ég vil enga útúrsnúninga. Spurul. Hvort hefur þú meiri áhyggjur af stafsetningunni og skriftinni (sem er jú þokkaleg) eða þvi sem þú berð ef til vill undir belti? Það eina sem við getum ráðlagt þér er að fara til læknis, ekki qetum við skoðað þig. Svo skaltu seaja vinkonum þínum, jafnöldrum, frá því sem kom fyrir þig svo þær lendi ekki í því sama. Þú segist vera of ung til að fara til foreldra þinna eða læknis: Tia, ekki VARSTU of ung, eða hvað? Etiquette Kæri Póstur- Við erum hérna tvær 15 ára stelpur og höfum oft verið með strákum. Nú erum við með strákum á föstu, en samt langar okkur til að vita hvernig strák- ar vilja helzt að stelpur hagi sér á meðan þau eru saman. Ef þú vildir skýra okkur frá helztu atriðunum í þessu sam- bandi, eins og þessu, til dæm- is: 1. Ef strákur drekkur ekki, lík- ar honum þá mjög illa ef stelp- an er að drekka vín í hans aug- sýn? 2. Þykir strákum það asnalegt eða óviðeigandi að stelpur hringi til þeirra? 3. Eiga menn það til að hætta við að biðia sér konu — sem þeir hefðu annars ætlað sér — ef þeir fréttu að hún væri ekki hrein mey? Elsku Póstur minn, svaraðu okkur nú fljótt, því það liggur á þessu. Tvær fáfróðar Viku-unnendur. P.S. Við erum að þræta um hvort hægt sé að rjúfa meyjar- haft 7 ára gamallar telpu? Er nokkuð til að slíta? Sömu. Almennt talað, þá vilja strákar að stelpurnar sem þeir eru með hagi sér almennilega, en sjálf- sagt má segja að bezta reglan sé að þið skuluð haga ykkur eins og þið viljið að þeir hagi sér. Annars höldum við málið vera svona: 1. Já, honum líkar það illa — og ekki síður ef hún drekkur þar sem hann er ekki. 2. Nei, ekki öllum, en sumum. Það veltur lika á því hversu oft þið hringið og í hvaða tilgangi. Reynið alltaf að hafa eitthvert erindi. Sumum strákum þykir líka vænt um að stelpurnar sem þeir eru með hringi í þá og segi sem svo: ,,Mig langaði bara að heyra í þér." Voða sætt! 3. Nú á tímum er þetta eigin- lega útilokað: Enginn maður biður sér konu hér á landi án þess að vita þetta fyrirfram. Nú orðið ,,máta allir sinn skó". Hitt er annað mál að flesta karl- menn dreymir um að vera ,,sá eini", bó beir geri sér grein fyrir að sllkt er tæplega hægt að fara fram á. P.S. Meyjarhaft er í konum frá fæðingu og þar til það er slitið, og því er hægur vandi að rjúfa meyjarhaft 7 ára gamallar stúlku, þó við mælum ekki með sliku. oflustufstræti á drengi og stúlkur, úlsniðnar, slerkar og þægilegar. Buxur í sérflokki. Hnndofnnr vferðnrvoðir Hnndofin kjólnefni Hnndofin sjöl ÍSLENZKUR HETM1L1S1ÐN5ÐUR Hafnarstræti 3, Laufásvegi 2. 22. TBL. VIKAN 5

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.