Vikan - 03.06.1971, Blaðsíða 7
í SbMARGETRAUN VIKUNN-
AR eru vinningarnir glæsilegri
en nokkru sinni fyrr: Hvorki
meira né minna en 100 AGFA-
myndavélar, sem kosta í kring-
um 2000 krónur stykkið út úr
búð. Heildarverðmæti vinning-
anna er því um 200 þúsund
krónur. Myndavélarnar eru all-
ar af sömu gerð, AGFAMATIC,
en það eru sömu vélarnar og
eru í hinum vinsælu táninga-
töskum. Þetta eru einfaldar og
sterkar myndavélar, þægileg-
ar í meðförum og auðveldar í
notkun. Á þær má taka bæði
litmyndir og svarthvítar mynd-
ir. — f síðustu getraun, sem
Vikan efndi til, Jólagetraun-
inni, voru vinningarnir leik-
föng, bæði stór og smá. Þátt-
takan í þeirri getraun varð
meiri en nokkru sinni fyrr. Það
bárust rösklega 4000 lausnir.
Það er von okkar, að þátttak-
an verði ekki minni að þessu
sinni.
GETRAUNIN 4. HLUTI
Athugið!
Getraunin verður í fimm
blöðum. Þegar öll
fimm blöðin eru komin —
ekki fyrr — sendið þið
lausnirnar til VIKUNNAR,
PÓSTHÓLF 533,
REYKJAVÍK og merkið
umslagið „Sumargetraun“.
Athugið, að lausnir
verða því aðeins teknar
til greina, að þær séu
skrifaðar á getraunaseðil-
inn í blaðinu sjálfu.
Haldið öllum seðlunum
saman, þar til keppninni
lýkur.
Nú er áreiðanlega eitthvað voðalegt að gerast hjá honum Stjána
- eins og reyndar oftast. Að minnsta kosti þýtur hann út úr
húsinu sínu eins og byssubrandur. Við fáum ekki að vita hvers
vegna hann er svona æstur. Hins vegar birtum við tvær myndir
af hamaganginum í Stjána, og það er engin tilviljun. í fljótu
bragði virðast báðar myndirnar nákvæmlega eins. En séu þær
skoðaðar nógu vandlega, kemur í Ijós, að þrjú atriSi vantar á
neðri myndina. Getraunin er einmitt fólginn í því aðfinna þessi
atriði og skrifa þau á getraunaseðilinn.
--------------------------------KLIPPIÐ HÉR---------------------------------
GETRAUNASEÐILL 4. Eftirfarandi atriðum hefur verið breytt:
Nafn ...............................
Heimilisfang
Slmi .........
------------------------------------------KLIPPIÐ HÉR
22. TBL. VIKAN 7