Vikan - 03.06.1971, Blaðsíða 10
Óvæntustu úrslit alþing-
iskosninganna sumarið
1959 voru tvimælalaust
þau, að Emil Jónsson þá-
verandi forsætisráðherra
féll í Hafnarfirði fyrir ó-
reyndum pilti, Matlhíasi
Á. Mathiesen. Raunar var
Emil Ibyltum vanur. Hann
féll fyrir Bjarna Snæ-
björnssyni lækni 1937 og
laut sömu örlögum í viður-
eign við Ingólf Flygenring
forstjóra 1953, en þeir voru
háðir víðkunnir menn af
störfum sinum og nutu
mikilla persónulegra vin-
sælda. Emil lét samt engan
bilhug á sér finna, þó að
hann hiði ósigur. Hann bar
af í baráttunni um fylgi
Hafnfirðinga 1956 og hlaut
1388 atkvæði, þegar Ingólf-
ur Flygenring fékk 1156.
Ingólfur gafst ]iá upp og
settist ellimóður í helgan
stein, en sjálfstæðismenn i
Hafnarfirði völdu Matthias
Á. Mathiesen til framboðs
sumarið 1959. Yirtisl sú
ráðstöfun svipuð og senda
harn til leiks við sterkan
og þjálfaðan kappa, enda
á orði haft, að Mattliías
væri auðsveipur að fást til
viðureignarinnar. Eigi að
síður brá svo við, að Sjálf-
stæðisflokkurinn jólc fylgi
sitt í Hafnarfirði að mikl-
um mun og hrejipti 1417 al-
kvæði og 27 umfram Ál-
])ýðuflokkinn. Þar með var
Emil Jónsson fallinn fvrir
Matthiasi Á. Mathiesen og
hlaut ennþá einu sinni að
láta sér nægja uppbótar-
þingsæti. Skellurinn, þegar
forsætisráðherrann féll fvr-
ir sveinstaulanum, heyrðist
um gervallt landið, og þjóð-
in rak upp stór augu. Jón
Pálmason alþingisforseli á
Akri tahli þetta jafnvel enn
meiri tíðindi en ófarir sin-
ar i glímunni við Rjörn
Pálsson á Löngumýri norð-
ur i Húnaþingi.
Mattliias Á. Mathiesen
fæddist í Hafnarfirði 6.
ágúst 1931, sonur Árna M.
Mathiesens verzlunarstjóra
þar og konu hans, Svövu
Einarsdóttur Þorgilssonar
útvegsmanns og alþingis-
manns. Nam Matthías við
Flensborgarskóla og varð
stúdent í Reykjavík 1951.
Las hann því næst lög við
Háskóla íslands og lauk
prófi í þeim fræðum 1957.
Starfaði hann i atvinnu-
málaráðuneytinu háskóla-
tíð sína og árlangt að loknu
prófi, en gerðist forstöðu-
maður Sparisjóðs Hafnar-
fjarðar sumarið 1958. Matt-
hias lét svo af þeim starfa i
ársbyrjun 1969 og sinnir nú
lögfræðistörfum jafnframt
stjórnmáláúmsvifum sin-
um. Gegnir hann ýmsum
trúnaði á vegum Sjálfstæð-
isflokksins heima og er-
lendis og á til dæmis sæti í
bankaráði Landsbanka Is-
lands og Norðurlandaráði.
Matthias Á. Malhiesen á
til eindreginna sjálfstæðis-
manna að telja í Hafnar-
firði og var 1952—1955, for-
maður Stefnis, en svo heit-
ir félag ungra sjálfstæðis-
manna þar í kaupstaðnum.
Mátti því snennna ganga að
honum vísum í flokki, en
hann þótti naumast líkleg-
ur til áhrifa eða forustu
framan af árum. Ilelzt
munaði um hann sem
áhugasaman þátttakanda í
félagslífi hafnfirzkra
íþróttamanna, og sú fyrir-
höfn hefur skilað drjúgum
árangri. Framboð Matthí-
asar sumarið 1959 virtist í
fljótu ibragði eins konar
liólitisk skyldurækni, en
leyndi á sér eigi að síður.
Kom einkum tvennt til:
Eldri kynslóð hafnfirzkra
sjálfstæðismanna liafði
varla sigurstranglegri full-
trúa á að skipa og undi
honum því fúslega, og unga
fólkið kunni vel að meta
Matthías Á. Matthiesen, þó
10 VIKAN 22.TBL.