Vikan


Vikan - 03.06.1971, Page 11

Vikan - 03.06.1971, Page 11
LÆÐIST EINS OC KÖTTUR- SLÉTTUR OG MJÚKUR Á HÁR OG SKINN nýliði væri. Gætti varla ó- ánægju í tilefni af vali Matthíasar, en liins vegar baráítugleði og sigurvilja eldri og yngri samherja hans. Haiin hafði engu að tapa, en allt að vinna. Emil Jónsson hlífði sér engan veginn, en mun J)ó ekki hafa grunað liættuna, sem að honum steðjaði. Sjálf- stæðisflokkurinn i Hafnar- firði tahli liann svarinn ó- vin, þó að dáleikar væru að takast af liálfu höfuðpaur- anna í Reykjavík við liðs- odda Alþýðuflokksins á al- þingi og í stjórnarráði, og Mattliías skipulagði kosn- ingabaráttuna hyggilega. Hann forðaðist návígi við Emil Jónsson á málþing- um, en leitaði kappsamlega fylgis kjósenda að tjalda- baki. Þannig kom hann á garpinn aldna bragði, sem úrslitum réð líkt og lúmsk krækja. Sigur Mattliíasar Á Mat- hiesens í Hafnarfirði sum- arið 1959 tryggði honum auðfengna pólitíska vel- gengni. Hann valdist í ann- að sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi um haustið að baki Ólafi Thors og átti kosningu vísa. Fór á sömu lund í alþingiskosn- ingunum 1963, en 1967 var foringinn djarfi og frækni allur og efsta sætið á fram- boðslistanum autt. Yarð þá að ráði, að Matthías hreppti efsta sætið, en fengi til samfylgdar tengdason Ól- afs Tliors, Pétur Benedikts- son, og jókst nú enn orð- stír Matthiasar Á. Mathie- sens. Hann skipar á ný efsta sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi á komandi sumri, enda er Pétur Benediktsson á brott yfir landamæri lífs og dauða og lítt um sam- keppni að ræða, svo að enn treystist Mattliias i sessi. Hefur lionum orðið nokkuð til framdráttar, að liann valdist forseti neðri deild- ar í fyrra, þegar Sigurður Bjarnason vék af alj)ingi og gerðist sendiherra i Kaup- mannahöfn. Hvíslað var og i fyrrasumar, að Matthias kæmi til greina sem ráð- herra eftir fráfall Bjarna Benediktssonar og upp- hefð Jóhanns Hafsteins, en það fór ósköp lágt, og Auð- ur Auðuns settist mjúkt í sætið góða. Matthías Á. Matliiesen er svo snotur sýningargripur, að honum fyrirgefst, livað pólitískt notagildi hans er lítið að öðru leyti. Hann J)ótti daufur námsmaður, og honum lætur lítt vopna- burður á málþingum og deilufundum. Hins vegar J)ekkir hann vanmátt sinn í þeim efnum og forðast þess vegna að gefa á sér högg- stað. Kostir hans eru dugn- aðurinn og smekkvisin. Matthías umgengst fólk af mjög lireinskilnu og eðli- legu látleysi og kvað vinum sínum og velgerðarmönn- um tryggur. Honum veitist J)ví auðvelt að afla sér per- sónulegra vinsælda og á þær skilið. Matthías hefur lært sitthvað af Ólafi heitn- um Thors, þó að þeir væru misgildir eins og frumtexti og afrit, svo og Pétri sáluga Benediktssyni, sem lagði Sjálfstæðisflokknum til vitsmunina í kosningabar- áttunni á Reykjanesi 1967 að tengdaföður sinum dán- um. Matthías Á. Mathiesen verður hins vegar aldrei jafnoki þeirra. Hann er far- sæll meðalmaður, vel til fara og þekkilegur í um- gengni. Er sú saga af hon- um, að hann hafi einhvern tima verið við jarðarför uppi á Kjalarnesi ókunnug- ur aðstæðum og hlutaðeig- Framhald á bls. 36. 22. TBL. VIKAN 11

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.