Vikan


Vikan - 03.06.1971, Page 15

Vikan - 03.06.1971, Page 15
Þetta hefur gerzt: Kristján hefur skejnmt sér. með annarri. Þannig á víst að segja það. Ekki „Kristján hef- ur verið mér ótrúr'*. Var það ekki þetta, sem hann hafði alltaf haldið fram þessi tvö ár, sem þau höfðu verið gift og öll árin á undan? Að ótryggð sé það, ef maður er ótrúr í hugsunum og orðum. Samfarir þurfa hins vegar ekki að þýða annað og meira en klapp á kinnina. Ekki þegar maður veit, hver er maki manns. Kristín hafði hlustað á ör- væntingarorð Önnu fyrr og fengi án efa að gerá það aftur. Eiginlega hefði hún ekki átt að Ieggja þetta á vinkonu sína, því að Kristín átti fjögurra ára gamlan son og hafði ærnar áhyggjur af sinum manni. En það var léttir að geta talað við hana. Kannski mest vegna þess, að Kristin reyndi aldrei að særa hana. Hún gerði það heldur ekki núna. — Hvers vegna gleðstu ekki yfir því góða, sem þið Kristján eigið saman? Ef þú þolir ekki þessi ævintýri hans skaltu sýna honum í tvo heim- ana í stað þess að leika píslar- vott. Anna hugleiddi þessi orð. Það var engu líkara en hún hefði afætu í huganum. Hvern- ig gat hún annars útskýrt það, að hún skyldi hafna á glæsi- legasta veitingahúsi borgarinn- ar með manni, sem hún hafði ekki hitt fyrr? Og það mianni, sem hafði komið til að hitta Kristján. Yngvi Ekander hafði hringt og beðið um viðtal við Kristj- án út af tilboði, sem Kristján hafði gert honum um plast- lakk, sem Ekander gat ef til vill notað við húsgagnafram- leiðslu. Anna átti von á Kristj- áni á hverri stundu og bað þvi Ekander um að koma og bíða hans. En Kristjáni seinkaði og loks lagði Ekander til, að þau færu út og fengju sér matar- bita. Fyrst var allt í mesta sak- leysi. Það var ekki fyrr en áfengið fór að stíga Önnu til höfuðs, sem allt breyttist og hugsunin um hefnd fæddist. Ef Kristján gat það, gat hún það líka . . . „Mjög oft,“ sagði hún. „Við viljum ekki bindá hvort ann- að. Ég reyni . . . ja, hvað á ég að kalla það? . . . ég reyni að vera ekki með neina uppgerð. Kristján á að vera frjáls.“ „En þú?“ „Ég? Ja . . . það er annað með mig.“ „Humm.“ Hann muldraði eilítið og það var nýtt blik í bláum augum hans — eitthvað — ekki með- aumkun, ekki vorkunnsemi, en samhyggð. Eins og hann vildi ekki, að hún væri einmana og vildi ráða bót á því. Hann rétti Framhald, á bls. 44. 22. TBLVIKAN 15

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.