Vikan


Vikan - 03.06.1971, Qupperneq 18

Vikan - 03.06.1971, Qupperneq 18
Ómar Valdímarsson heyra i°ra má Overture: Þetta er £ einum fjórum köflum. Það byrjar á því að einstaklingurinn er að fæðast, mikil ólga er og óvissa. Síðan fæðist hann með sprikli og hamagangi og hjartað fer að slá. Þetta er reyndar hjart- sláttur Rúnars tekinn upp og magnaður! Þriðji hlutinn er þegar einstaklingurinn fer að mótast og átta sig almennilega á að heimurinn er stærri en hann var undangengna 9 mán- uði. Síðan lýkur þessum for- leik á því að við syngjum „Margföld er lifun er lifum við ein“. Þetta er það eina íslenzka sem er i þessu og það var gert mestmegnis að gamni: útlend- ingum þykir þetta áreiðanlega skrítið og dularfullt — já, við ætlum að reyna að koma henni á erlendan markað. Svo les einhver brezkur leik- ari ljóðið „Margföld er lifun“, en mér finnst hann ekki gera það alveg nógu vel. Hushabye: Vöggukvæði, móð- irin syngur son sinn í svefn og óskar honum alls hins bezta eins og mæður gera. Hún bind- ur við hann miklar vonir og segir honum frá veröldinni: „Cold and lonely crowded world . . To be grateful: Þegar ég heyri þetta lag dettur mér alltaf í hug lítill strákur. sem situr í stól og horfir galopn- um og saklausum aúgum á það sem fram fer án þess að tor- tryggja nokkurn mann. En svo undir lokin trallar hann sig út, er farinn að skrópa í, skólan- um og sjá svolítið í gegnum umhverfið. School Complex: Þarna er hann orðinn hundleiður á þessu og gefur skít í allt; kenn- ir svo kennurunum um. Eins og þegar maður sagði: „Eg hef ekkert getað lært í íslandssögu í allan vetur af því að kennar- inn er svo leiðinlegur!" nÆVISAGA OKKAR“ „Þetta er í rauninni ekki annað en ævisag-a okkar fimmmenninganna sett saman í eina heild,“ sagði Magnús Kjartansson um „ . . . lifun“, þegar ég sat með honum fyrir réttum mánuði síðan til að hlusta á verkið. Við renndum spólunni í gegn og Magnús úttalaði sig á meðan um það sem honum helzt datt í hug Tangerine Girl: í appelsínu- fjölskyldunni er appelsínan sjálf þroskuðust, stærst og fal- legust. Svo koma frænkur hennar; klementínur, manda- rínur og tengerínur (sem er það sama). Svoleiðis eru litlu fallegu stelpurnar; ekki orðnar konur, en samt farnar að spila inn á karlmannleika strákanna, til dæmis þessa sem gafst upp á kennaranum. Lagið sjálft er í stíl, spilar inn á sex-ið í þungum og ákveðnum takti. Am I really living?: En svo allt í einu vaknar hann upp við vondan draum: Hvað hef ég eiginlega verið að gera? Er ég að sökkva i rútínuna eða er ég raunverulega á lífi? Það er á þessum tíma sem maður breytist mest og gerir sér grein fyrir að það er ekki bráðnauð- synlegt að vera á balli á hverj- um degi. Connection: Hefur það ekki komið fyrir þig að þú spyrð sjálfan þig á ákveðnu skeiði hvort þú sért ekki að klikka? Þetta fjallar um það, maður er að nú sambandi en verður að berjast ofsalega fyrir því. Svo förum við út í instrumental kafla sem er aldurinn ca. 20— 25. ára. Þar ríkja miklar and- stæður, margs konar lífsvið- horf freista manns og maður verður að gera upp við sig hvað það í rauninni er, sem maður ætlar að gera við sig; tortryggni ríkir, allir eru að græða á manni og nota mann — eða maður heldur það og maður er falskur og helber tvískinnungur allt í gegn. Einn daginn er maður huggulegur heimilisfaðir og nóttina eftir er maður saurlífsseggur sem ligg- ur konur, blindfullur og æl- andi. Það sem fer hér á eftir er það sem við höldum að komi næst í mannsævinni, en nátt- úrlega vitum við það ekki vel. Framhald á bls. 36. 18 VIKAN 22.TBL.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.