Vikan


Vikan - 03.06.1971, Blaðsíða 19

Vikan - 03.06.1971, Blaðsíða 19
Heiðursgestur hljómleikanna var Shady Owens sem söng nokkur lög við mikla hrifningu. Hún sagði okkur að hún hefði hug á að koma aftur heim í sumar og dvelja þá eitthvað lengur, en ekkert hefur orðið af því að hún hafi sungið í Ameríku. Magnús Kjartansson kom þarna í fyrsta skipti fram með rafmagnspíanóið og var almennt í miklu stuði. O Karl Sighvatsson hefur aftur setzt við „stjórnborð“ orgelsins og hafa margir látið þau orð falla, að samleikur hans og Magnúsar hafi verið mun betri en bjartsýnustu menn hafi þorað að vona. 0 Gunnar Þórðarson sagði okkur skömmu fyrir tónleikana að hann hefði ekki í langan tíma hlakkað jafn mikið til nokkurs hlutar. Okk- ur hefur skilist að hann hafi mátt vera mjög ánœgður með eigin frammistöðu og félaga sinna eftir á. © Rúnar Júlíusson kom fram ígervi æðstaprestsins; íklæddur síðum kufli og gerði stormandi lukku eins og fyrri daginn. © Gunnar Jökull naut sín til hins ýtrasta og sögðu sumir að þeim hefði létt er þeir heyrðu aftur „gamla Trúbrotsbítið“. Meðfylgjandi myndir tók Egill Sigurðsson, ljósmyndari blaðsins, á tónleikum þeim sem Trúbrot hélt 13. marz sl. í Háskólabíói, þegar þeir frumfluttu „ ... lifun“. Því miður tókst tíðindamanni þáttarins ekki að vera viðstöddum hljómleikana, en allar þær raddir sem heyrst hafa, láta mjög vel af viðburðinum og telja hann merkan í alla staði. Hvað mest hrifning virðist þó vera yfir „Upplifun“, þegar Shady Owens rifjaði upp nokkur „gömlu laganna“. Við höfum tekið okkur það bessaleyfi að birta eitt ljóðar.na úr „... lifun“ og tekið okkur það enn frekara leyfi og snúið því lauslega yfir á íslenzku, lesendum — og ef til vill fleirum — til hagræðis. Ljóðið er upphaf verksins. MARGFÖLD ER LIFUN ER LIFUM VIÐ EIN Lífið endurtekur sig stöðugt / en hvar byrjar það / hvar endar það? / í undirmeðmtund þinni / skilur þú sennilega, / en i móðu meðvitundarinnar / heldur þú þig hafa svarið í hendi þér. / Trúin á dauðann er stundum sterkari en á lifið / en ef þú tryðir svo sterkt á lífið / hvað myndi það þá gera fyrir þig? 22. TBL. VIKAN 19

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.