Vikan


Vikan - 03.06.1971, Page 22

Vikan - 03.06.1971, Page 22
ÞAR-TIL dauoinn AÐSKILUR leg og svefnþrungin rödd. Helen sneri sér við og kom þá auga á gamla konu, mjög hrukkótta, með sjal yfir nátt- kjólnum. — Ég ætlaði að hitta herra Armand, sagði Helen rólega. — Hann er ekki heima, sagði húsvarðarkonan fýlulega. — Komið yður út, ég vil ekki að ókunnugt fólk sé að flækjast um í húsinu að næturlagi. — Eln ég er með lykilinn að íbúð Armands. Okkur kom saman um að ég biði hans þar. — Að hann skuli ekki vera orðinn þreyttur á þessu kvennastússi sínu, andvarpaði húsvarðarkonan. — Áður en hann flutti þangað var þetta rólegt hús, þekkt fyrir siðsemi. — Þér skuluð bara fara að sofa, frú, sagði Helen. — Sg skal hafa hægt um mig svo ég trufli engan. Hún beið ekki eftir svari, en flýtti sér upp stigann. En hjartað hamaðist svo í brjósti hennar að hún heyrði hjart- sláttinn. Að sjálfsögðu hafði hún ekki lykilinn að herberg- inu. Hún vonaði aðeins að lás- inn væri svo lélegur að auð- velt væri að brjóta hann upp. Föður hennar hefði aldrei órað fyrir að vasahnífurinn hans yrði notaður til þessarar iðju, hugsaði hún, þegar hún stakk mjóu blaðinu inn í skrána og ýtti fast á. Það heyrðist smellur og hún hélt niðri í sér andanum af hræðslu. Svo kippti hún hnífnum út og gekk inn í herbergið. Þetta var stórt herbergi með tveim gluggum út í húsagarðinn og til hægri voru tvennar mjóar dyr, sem lágu inn í pínulítið eldhús og jafnlítið baðher- bergi. Helen kveikti ekki ljós. f skininu frá vasaljósinu sá hún breiðan legubekk með gulri ábreiðu, skáp, kommóðu, borð, tvo stóla og nokkrar myndir á veggjunum. Helen opnaði klæðaskápinn, leitaði í öllum vösum og fann nokkra samanvöðlaða peninga- seðla, nokkuð af smápening- um og reikning frá bar. Hún hrökk við. Þetta var reikning- ur frá Paris 2000. Það var bar- inn sem hún hafði fyrst séð Raoul fyrir hálfu ári síðan. Hálft ár? Nú fannst henni það heil eilífð . . . Nei, ekki að hugsa um það. Yfirleitt ekki að hugsa. Aðeins leita, reyna að finna eitthvað svo hægt væri að sanna mál hennar. Finna einhverja sönn- un . . . Hún dró út efstu skúffuna í kommóðunni. Þar var ekkert annað en nærföt og sokkar. f næstu skúffu voru aðeins óhreinar pappírskiljur. Saka- málasögur með hrollvekjandi kápumyndum. f þriðju skúffunni fann hún lítinn kassa úr sandelviði af þeirri gerð, sem hægt er að fá á markaðstorgum í Norður- Afríku. Lokið sat fast, en pennahnífurinn kom aftur að góðu gagni. Myndir! Efsta myndin var af Raoul og Armand. Brosandi andlit undir þykkum hárlubbum. Grannvaxnir unglingar í ein- kennisbúningi Utlendingaher- sveitarinnar. Og í grein á uppþornuðu tré hékk þriðji maðurinn. Dauður! Hengdur! Raoul lyfti öðrum fæti dána mannsins upp, sigri hrósandi. Helen sneri myndinni við; þar stóð: „Algier 1959“ með rit- hönd Raouls. Helen rétti hægt úr sér. Hún varð þurr í hálsinum og henni fannst sem fætur hennar gætu ekki borið hana. Þegar hún stakk myndinni í kápuvasann, heyrði hún að ein- hver var að koma upp stigann, hægum skrefum. Hún slökkti á vasaljósinu, læddist yfir gólf- ið og fram í eldhúsið, lokaði dyrunum og beið. Það brakaði svolítið í dyr- unum. Hún heyrði að einhver læddist yfir gólfið og andaði þunglega. Helen hafði á til- finningunni að maðurinn væri á leiðinni til hennar. Hún stakk hendinni í kápuvasann og fann fyrir myndinni. En hún fann líka skammbyssuna, sem hún hafði tekið upp úr skúffunni í herbergi Raouls. Hönd henn- ar lagðist að skeftinu og hún setti fingurinn á gikkinn. Ef hann opnar dyrnar geri ég það. Það er aðeins í varn- arskyni. Sg get sagt að ég hafi skot- ið hann í varnarskyni og að hann hafi reynt til að eyði- leggja hjónaband mitt. S!g veit ekkert um fortíð Raouls, en hann veit eitthvað sem gefur honum vald yfir manninum mínum. Það er hann sem stendur á bak við alla þessa atburði og reynir að gera mig brjálaða. Hún hélt niðri í sér andan- um og hlustaði á skrefin í stofunni. Hún heyrði að skáp- ar og skúffur var opnað og rannsakað. En skyndilega varð allt kyrrt. Helen stóð á öndinni. Á þessum hræðilegu sekúndum varð hún aftur ofurseld óttan- um við hið óþekkta. Hver var að leita hennar? Var einhver að hugsa um að myrða hana? Hún hrökk við. Það skrjáf- aði í einhverju hinum megin við dyrnar. Var Armand kom- inn? Eða var það kannske ekki Armand? Hann hefði kveikt ljós. Ef til vill var þetta . . . Helen beit á vörina . . . morð- ingi hennar? Hvít ljósglæta kom inn um dyrarifuna og lýsti upp svörtu stígvélin hennar. Svo var hurð- inni ýtt upp, hægt og hægt. Helen var óstyrk, lyfti upp handleggnum, reiðubúin að skjóta. Þá féll Ijósgeislinn á byssuna. Hún ætlaði að þrýsta á gikkinn, en komumaður varð fljótari til. Hann hljóp fram og sló byssuna úr hendi hennar. — Þetta skuluð þér ekki reyna, sagði hann með saman- bitnum vörum. Helen starði á manninn, því Framhald á bls. 42. -------------------------------------KLIPPIÐ HÉR - RöntunapseOill Vinsamlegast sendið mér sniðið, sem ég krossa framan við. í því númeri. sem ég tiigreini. Greiðsla fylgir með í ávísun/póstávísun/frtmerkjum (strikið yfir það sem ekki á við). ..... Nr. 8 (94426) Stærðin skal vera nr. ..... Nr. 9 (9430) Stærðin skal vera nr.. Víkan - Simpllcity -------------------------------------KLIPPIÐ HÉR - Nafn Heimili 22 VIKAN 22. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.