Vikan


Vikan - 03.06.1971, Qupperneq 28

Vikan - 03.06.1971, Qupperneq 28
EGER FÆDDUR SEX ÁRUM FYRIR TÍMAN yiiWWÓ'tó'éWrt'iiit Richard Chamberlain er eitt mesta kvennagull nú á tímum. Það er hann sem leikur lækninn í þáttunum um dr. Kildare, sem sjónvarpið sýnir um þessar mundir. Hér er viðtal við Chamberlain, þar sem hann segir frá ferli sínum, viðhorfi til Kildare eftir að hafa leikið hann stanzlaust í fimm ár og fleiru. Richard Chamberlain á sér kenningu um sjálfan sig. Hann vill ekki gera neinn leiðan með henni (og satt að segja vill hann ekki gera neinn leiðan með einu eða neinu), svo hann talar sem minnst um hana. En hann hefur þó opinberað þessa kenn- ingu sína, yfir bolla af tei sem hann er orðinn mjög hrifinn af eins og fleiru brezku, þó svo að hann sé Bandaríkjamaður í húð og hár. „Ég vil ekki þreyta neinn með löngum og fræðilegum kenn- ingum,“ segir hann með mjög brezkum hreim, „en ég held að ég hafi hlotið í vöggugjöf sex æskuár framyfir það sem venjulega er fólki gefið. Eins og ég væri fæddur 6 árum fyrir tímann! Spámaður nokkur sagði mér þetta fyrir löngu síðan og þó ég trúi ekki mjög á slíka hluti er þetta hugmynd sem heillar mig. Ég hef hugsað tölu- vert um þetta og sé þetta rétt varpar það nýju ljósi á — og útskýrir ýmsa hluti. Ég meina að það hefur tekið mig langan tíma að verða fullorðinn.“ Satt eða ekki satt, hugmynd- in er skemmtileg vegna þess að tvo hluti í sambandi við Rich- ard Chamberlain hefur alltaf verið erfitt að útskýra: Hvern- ig 34 ára gamall maður fer að því að vera svo unglegur og hversvegna leikari, sem getur leikið Hamlet á móti Gielgud og Redgrave —■ og Tchaikovsky í nýjustu mynd Ken’s Russell — eyddi fimm árum í að leika í bandarískum sjónvarpsþáttum, sápu-óperum, um saklausa magaveikilækninn Dr. Kild- are. Nú eru um 9 ár liðin síðan þættirnir um Dr. Kildare sáust fyrst á sjónvarpstækjum með- bræðra okkar handan hafsins. Ennþá setur fólk Richard Chamberlain í samband við áhugasama lækninn. „Stund- um,“ segir hann, „held ég að það verði sama hvað ég geri, fólk kemur alltaf til með að setja mig í samband við Kild- are. Fyrir mér er Kildare að- eins ánægjuleg minning, mér finnst ég hafa losað mig við hann fyrir fullt og allt. Ég er kominn yfir það að vera á ör- væntingarfullum flótta frá hon- með dálítilli heimþrá. Annars um og nú lít ég á það tímabil fannst mér það stórkostlega gaman og það var skemmtilega krefjandi." Og það var erfitt. Richard vann við þættina í 10 tíma dag- lega og í matartímanum talaði hann við blaðamenn frá tán- ingablöðum og aðdáendaritum, en gríðarlegur urmull af slíkum ritum kemur út í Bandaríkjun- um. Alltaf varð hann að vera óskaplega kurteis og sjarmer- andi því mikill fjöldi gesta heimsótti stúdíóin daglega. Ef hann fékk frí — í svo mikið sem einn dag — varð hann að fljúga til New York og koma fram í sjónvarpi, útvarpi og víðar, til að auglýsa þættina. „Ég hætti aldrei að vera Kild- are í öll þessi ár, svo ég átti engra kosta völ, mér varð að líka við hann. Sennilega hef ég verið ungur fyrir mann á mín- um aldri, ef þú veizt hvað ég á við. Barnalegur. Ég átti eigin- lega ekkert einkalíf, Kildare tók allan minn tíma og alla mína hugsun. En þegar fór að líða að því að fimm ár væru liðin fór það að verða ergjandi, því Kildare eltist ekki: það gerði ég aftur á móti.“ Þegar hann loks hætti að leika Kildare, persónuna sem hafði stjórnað honum svo lengi, ákvað hann að reyna fyrir sér á erfiðari vígstöðvum. Það var mikil áhætta, því tæknileg leik- kunnátta hans var af skornum skammti. Það eina sem hann í rauninni kunni var að vera dr. Kildare og eitthvað hrafl í læknisfræði. „Ég veit hvernig á að hlusta á ófrískar konur og hvað subduralheamatoma þýð- ir,“ og hann vissi nákvæmlega 28 VIKAN 22. TBL.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.