Vikan


Vikan - 03.06.1971, Síða 44

Vikan - 03.06.1971, Síða 44
Hún var ennþá máttlaus af hræðslu. Einhver ætlaði að myrða hana. Einhver sem vildi losna við hana. En hver? Og hvers vegna? Ég veit það ekki, hugsaði Helen þreytulega. Ég veit ekkert. Ég veit aðeins að ég get engum treyst. Hún hringdi til Raouls frá bensínstöðinni. — Þú ert eitthvað skrítin, sagði hann. — Eg ætlaði ekki að þekkja málróm þinn. _É'g er farin í ferðalag og verð burtu í nokkra daga. — Hvert? Ætlarðu að fara til París núna? —• Ég veit það ekki, ég hringi til þín seinna. Hún lagði á áður en hann gat svarað og hallaði sér upp að veggnum. Hún fann tárin svíða bak við augnalokin. Góði Guð, bað hún hljóðlega. Láttu mig hafa á röngu að standa gagnvart honum, segðu að ég geri rangt í því að tortryggja manninn minn. Skyndilega rann það upp fyrir henni hvert hún ætlaði að fara. \T ið sólarupprás næsta morg- v un ók hún inn í Avignon, sveigði bílnum inn um hliðið í háa múrnum, sem umgirti borgina og stöðvaði hann í hliðargötu hjá margaðstorg- inu. Salan var að hefjast þar. Það var hressandi ilmur af nýiu grænmeti og ávöxtum, ólífur í stórum tunnum stóðu við hliðina á marmaraborðun- um, sem voru hlaðin ferskum fiski. Helen var bæði svöng og þyrst. Hún keypti brauðhleif, ost og litla rauðvínsflösku. Sígaunakona, með barn á handleggnum, rétti biðjandi hendurnar í áttina til hennar. Neglur hennar voru eins og gular klær, — Madame, sagði hún, biðjandi röddu. Helen fékk henni sína síð- ustu skildinga og hugsaði með sér að hún yrði strax að senda skeyti til Zúrich og láta senda sér peninga. Hún var létt í skapi, eins og hún hefði drukkið áfengt vín. Ef Raoul leyndi hana ein- hverju, þá var hún komin á réttan stað. Dúfurnar á torginu hoppuðu í kringum hana, meðan hún moðaði í sig brauðið. Hún fleygði brauðmolum til þeirra og ein dúfan settist á öxl hennar, læsti klónum niður 5 sárið á öxlinni. Helen varð að bíta á vörina til að hljóða ekki og lyfti hend- inni til að reka fuglinn á brott. Rétt í því kom hún auga á mann. sem stóð undir rönd- óttri gluggahlíf! Það gat ekki verið annar en hann. Álútur, ljóshærður með dökk gleraugu. Helen varð sem steinrunnin. Dúfan flögraði frá öxl henn- ar til að næla sér í það sem eftir var af brauðinu. Iffikið Mat peysom. iyrir dSnwr. hemoo börn Skínniakkar Skinnvesti Pnðar .Gærnskinn. Trvpnaskinn. kálfskinn í tirvali Pasisendntn Frwtíli Lauoaveni 45 sími 13061 Helen opnaði tösku sína og tók upp sólgleraugu, en Ar— mand talaði við mann í hvít- um jakka. Líklega var það þjónn á kaffihúsinu, sem var þar rétt hjá. Maðurinn baðaði út höndunum og Armand hló. Svo lyfti hann hendinni í kveðjuskyni og lötraði áfram eftir gangstéttinni. Helen stóð upp, staðráðin í að veita honum eftirför. Framhald í næsta blaði. UGLA SAT Á KVISTI Framhald af bls. 15. henni hönd sína, en lófi henn- ar vissi upp og hann leit á hana um stund. Ferhyrnt hönd, litlir, stuttir fingur. En fögur hönd samt. Hann tók um hönd hennar og hún naut þess. Seinna kom henni til hugar, hvað það væri, sem hún gerði. Hvað er ég að vekja? Það var svo auðvelt — verður það jafn- auðvelt seinna? Hann sagði eitthvað, en hún hlýddi ekki á orð hans, því að rödd hans var mild og hlý og henni fannst gott að hlusta á hana. Vínið ólgaði innan gagn- augna hennar og lágt hljóm- sveitarverkið virtist hávært. Eða fannst henni það aðeins? Hún ætlaði að hefna sín smá- vegis — en var Ingvi rétti maðurinn? Hefði hún ekki átt að velja annan mann, sem hefði ekki skipt hana nokkru máli? „Heyrðu,“ sagði hann loks- ins og nú hlustaði hún á orð hans. Rödd hans þrýstist inn í hljóðhimnur hennar. „Getum við ekki farið héðan? Það er svo margt um manninn hérna. Mig langar til að tala við þig — einslega. Getum við ekki farið upp í herbergið mitt?“ Nú átti hún að segja nei. Nú átti hún að tala fáein fyrirlitn- ingarorð, sem eyðileggðu allt, sem hafði farið þeim á milli. En hún gerði það ekki. Spenn- an milli þeirra óx í sífellu. Henni leið líkt og barni, sem gengur eftir spýtu yfir læk. Óralangan veg fyrir fimm ára barn, sem ekki kann að synda. En þessi svimi var ekki þann- ig. Og hún vildi koma. Hún vildi ekki hætta leiknum, er hæst stóð; hún vildi leika með og vita, hvernig það var að vakna til annarra eins og maðurinn hennar gerði . . . Hún fann, að hann tók um axlir hennar, þegar þau fóru með lyftunni til herbergis hans. Allt var styrkt og fagurt og 44 VIKAN 22. TBL

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.