Vikan


Vikan - 03.06.1971, Qupperneq 46

Vikan - 03.06.1971, Qupperneq 46
AARHUS - DANSKT FORM - ÍSLENZK GÆÐI Sófasett á teak fótum, eða stálfótum með snúningsási á stólnum. Sófi 4ra sæta, sófi 3ja sæta, sófi 2ja sæta. Stóll, hár, stóll, hár með ruggu, stóll, lár. Myndalistar með efnisprufum fyrirliggjandi. Skrifið eða hringið eftir upplýsingum. Áklæði: Moher pluss, Dralon pluss, danskt ullar, belgiskt ullar + spun rayon, íslenzkt ullar eða Dralon. Önnur áklæði eftir vali. HUSGAGNAVERZLUNIN AUÐBREKKU 59 SÍMI: 42400 ■^■'■^ ■ gk SIMI: 42400 DuNAkúpavogi leik, reyna að vera önnur en hún var, eins og hinar kon- urnar, ekki hin trúa eiginkona, sem unni manni sínum. Reyna að vera léttúðug kona í stað- inn. Reyna að minnsta kosti að vera kona, sem gseti borg- að aftur í sömu mynt! Ef hann liti nú á hana og spyrði: -— Hvar hefurðu ver- ið? Þá ætlaði hún að reyna það. En þannig fór ekki. Hún þurfti ekkert hlutverk að leika, því að áhorfendur voru engir. Kristján var kominn heim, en hann lá í hnipri i rúminu sínu og svaf eins og steinn. Hann heyrði ekki, þegar hún stakk lyklinum í skrána, heyrði ekki, þegar hún kom inn í herberg- ið. Hann svaf eins og lítill drengur og andaði djúpt og jafnt. Þarna stóð Anna. Hún stóð við hliðina á honum og virti fyrir sér dökkt hár hans og hálfopnar varir — hann var að fá undirhöku. Hana langaði allt í einu til að skella uppúr. Óróleiki, örvænting, vanlíðan og sjálfsásakanir — allt varð þetta að engu. Eiginkonan kom heim undir morgun og eigin- maðurinn steinsvaf í rúminu sínu og gerði sig ekki líklegan til stórátaka. Þá var ekkert um annað fyrir hana að gera, en skreiðast upp í sitt eigið rúm og reyna að sofna. Var það ekki þetta, sem var kallað „tragikómískt“? Það var víst bezt að hlæja að öllu saman? Annars færi hún að hágráta. Anna gerði hvorugt. Hún lá glaðvakandi í rúminu allt þang- að til dögunin bærði á sér að baki rennitjaldanna. Hún bærði ekki á sér, lá aðeins kyrr og hlustaði á andardrátt Kristj- áns. Og seint og um síðir heyrði hún, að hann var vakn- aður. „Halló!“ sagði hann syfju- lega. „Ég sá miðann á eldhús- borðinu í gær. Leitt, að Ek- ander gat ekki beðið eftir mér. Sagði hann eitthvað? Á ég að hringja í hann eða . . . ? Anna beit sér á vör. — Nei, hann . . . hann ætlar að tala við þig. Svo bætti hún við eft- ir andartakshik: — Er það að- eins þetta, sem þú vilt vita? Langar þig ekkert að frétta, hvert ég fór? „Jú . . . jú, jú. En þú sagðist ætla út. Skemmtirðu þér vel? Þú komst víst heldur seint? — Já. Hvað gerði kona, sem vildi gera manninn sinn afbrýði- saman, láta hann þjást ögn af því, sem hún hafði sjálf þjáðst af, einmanaleika, ósigri? Hún vissi það ekki með vissu, en hún sagði lágt: — Ég hitti mann í gærkveldi . .. . Dauðaþögn ríkti um stund. Hún sá undrunarglampa í aug- um hans. Datt honum líka í hug, að hún hefði goldið í sömu mynt? En það hafði al- drei komið fyrir fyrr. Hann þagði. — Er þér það eitthvað á móti skapi? spurði hún og heyrði sjálf, að rödd hennar var skræk. — Hvers vegna mátti ég það ekki? Hann þagði enn. — Kannski mér þyki líka skemmtilegt að fara út. Kann- ski mig langi líka til að . . . Röddin brást henni og hún leit undan. Hún gat ekki sagt þetta. — Anna litla mín, sagði Kristján. — Er það ekki eins og það á að vera? Við höfum alltaf verið sammála um, að þetta væri leyfilegt. Að við myndum ekki rífast um það. Og ég . . . Hann lauk ekki heldur við setninguna. Já, ég veit það, veit það, veinaði innra með Önnu. Ég veit það nákvæmlega. Þú hugs- ar: ég hef gert það sama marg- sinnis og ég ætla að gera það aftur, ef ég vil. Það verður kannski meira að segja auð- veldara fyrir mig hér eftir en hingað til, þegar ég veit að þú . . Og svo er þetta aðeins smávægilegur viðburður, sem skiptir engu og getur ekkert eyðilagt okkar á milli. En ég get ekki ltið það þess- um augum og það finn ég full- vel núna. Eg get það alls ekki. Ég vil ekki hafa það svona. — Svo þér stendur á sama, hvað ég geri? stundi hún. — Það voru ekki mín orð, svaraði hann dræmt. — Ég — já, ég get ekki beinlínis sagt, að ég sé hrifinn. En þú veizt, hvað þetta skiptir litlu máli. Það er ekki til einskis, sem Frakkar kalla þetta „la baga- telle“. Og þeim finnst það líka vera það. — Þeir hugsa svo rökrétt, sagði hún rám. Hún leit enn undan, en gat ekki hugsað sér að horfa á hann. Nei, hann hafði ekki orðið afbrýðisamur, bara leið- ur. Hann fann ekkert til ör- væntingarinnar yfir ósigrinum og niðurlægingunni, ekkert af viðbjóðinum á — að tveir ættu konu, tvær áttu sama mann. Viðbjóðurinn fyllti hug hennar. — Geturðu ekki reynt að 46 VIKAN 22. TBL.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.