Vikan


Vikan - 03.06.1971, Síða 50

Vikan - 03.06.1971, Síða 50
I „Maður má ekki þegja“. Rætt við Kjuregej Alexandra Jónsson Kjuregej Aiexandra Jónsson heitir hún og er gift Magnúsi Jónssyni, leikstjóra. Hún er ættuð frá Jakútíu, en það land þekkja lik- lega fáir. Jakútía er í Síberíu og er eitt hinna sovézku lýðvelda. Það er álíka stórt að flatarmáli og evrópska Rússland. VIKAN heimsótti Kjuregej fyrir nokkru og spjallaði við hana um landið hennar, landið okkar, leiklist og sitthvað fleira. Hún hefur stund- að leiknám og fékk sitt fyrsta hlutverk í Hárinu hér á dögunum. Hverjir vilja byltingu? Hvaða fólk er það, sem vill bylta heiminum? Þetta er sundurleitur hópur, og það segir frá honum í greininni „Hver er maðurinn í alfræði- bók „byltingar- innar"?" I þjónustu lífsins Nýr greinaflokkur hefur göngu sína í næsta blaði. Hann nefnist „í þjónustu lífsins" og segir frá merkum uppgötvunum á sviði læknisfræði. I fyrstu greininni er fjallað um Zemelweis, manninn, sem tókst að sigrast á barnsfarasóttinni. Bleikar strendur og blátt haf Önnur grein hjónanna Clary og Anders Ny- borg kemur í næsta blaði. Hún heitir þvi rómantíska nafni „Sólbleikar strendur í pá- fuglsbláu hafi" og segir frá komu skemmti- ferðaskipsins Hamborg til Vestur-lndía. • Grænmetissalöt i Eldhúsi Vikunnar, sem Dröfn H. Farestveit húsmæðrakennari, annast. • Lulu, skemmtileg smásaga eftir Dale Collins. • Fimmti og síðasti hluti Sumargetraunar Víkunnar. Gleymið ekki að senda okkur nú alla seðlana fimm. Vinningar eru 100 mynda- vélar. • Spánný Simplicity-snið frá London, sem hvergi fást nema hjá Vikunni. • Á forsíðu verður bráðskemmtileg skop- mynd i tilefni af kosningunum, sem Halldór Pétursson hefur teiknað. HITTUMST AFTUR - I NÆSTU VIKU okkur, við skulum láta fara vel um þig. Svona, svona . . . Þau hrukku öll við, þegar síminn hringdi. Grátbólgið and- lit Kristínar afskræmdist af skelfingu, en Kristján tók um úlnliði hennar. — Að hann skuli dirfast! — Ég skal svara. Anna tók símann. Það var ekki björt, eilítið há rödd Ge- orgs, heldur önnur djúp og þekkt. Þetta var Yngvi. Ó, nei, söng innra með henni. Ekki nú. Ekki þetta líka. — Bíddu, sagði hún tauga- óstyrk og laut áfram til að halla hurðinni aftur. Hún sá þau sitja þarna í sófanum, Kristínu með andlitið við öxl- ina á Kristjáni og Kristján, sem laut yfir hana. Hann hélt henni í faðmi sér, vaggaði henni og hvíslaði að henni eins og hún væri hrætt barn. Anna leit á þau. Svo tók hún upp símtólið, og hönd hennar skalf. — É'g skil vel, að þú getir elcki talað núna, sagði Yngvi blíðlega. — En mig langar til að hitta þig aftur, Anna. — Ja, já, sagði hún. Hvað átti hún að segja? — Ætlarðu ekki að tala við Kristján? spurði hún svo ringluð. — Var það ekki? Viltu að ég sæki hann? Þegar þú kemur næst til Málmeyjar . . . — Er þér á móti skapi að hitta mig? — Nei, alls ekki. En ég get ekki talað við þig núna. — Ég skil. Hittumst seinna, Anna. — Já. Meira gat hún ekki sagt. Seinna lagði hún símtólið á og stóð með aftur augun um stund, áður en hún fór inn til Kristj- áns og Kristínar. Framhald í næsta blaði. — Það þýðir ekkert annað en að tolla í tízkunni, hvar sem maður er! 50 VIKAN 22.TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.