Vikan - 17.06.1971, Qupperneq 3
24. tölublað - 16. júní 1971 - 33. árgangur
Vikan
Saga
Zeppelin-
loftfaranna
Unga fólkið þekkir ekki
Zeppelin nema sem nafn á
pophljómsveitinni frægu.
Zeppelin var upphafs-
maður loftfaranna, en saga
þeirra var merkileg til-
raun í þróun flugsins, þótt
endirinn yrði dapurlegur.
Við segjum sögu loft-
faranna á blaðsíðu 20.
' Spenna
áranna
var orðin
mikil
„Spenna áranna var orðin
mikil“ nefnist viðtal við
Bjarna M. Gíslason, rit-
höfund. Hann helgaði
handritamálinu rúma tvo
áratugi af ævi sinni. Hann
var einn af gestunum, sem
ríkisstjórn íslands bauð
hingað á handritadaginn.
Viðtalið við Bjarna er
á blaðsíðu 8.
Þjóðdansa-
félagið
tuttugu ára
Starfsemi Þjóðdansa-
félags Reykjavíkur hefur
blómgazt mjög undanfarin
ár. Félagið hefur haldið
sýningar, sem athygli hafa
vakið og einnig sýnt er-
lendis. Á morgun er Þjóð-
dansafélagið 20 ára. í
tilefni af því spjöllum við
við stofnandann, Sigríði
Valgeirsdóttur.
Sjá blaðsíðu 26.
KÆRI LESANDE!
Þd er þjóðhátíðardagurinn
upprunninn og kyrrð komin aft-
ur á í þjóðfélaginu eftir allan
hamaganginn og taugaveiklun-
ina, sem kosningunum fylgdi. Nú
geia menn í ró og næði vegið og
metið dóm kjósenda, og áreiðan-
lega er þegar farið að hollaleggja
um væntanlega stjórnarmyndun.
17. júní er á margan hátt merk-
asti dagur ársins, enda skipar
hann veglegan sess í hugum
flestra íslendinga. Hins vegar
gengur okkur illa að finna liá-
tiðahöldum þjóðhátíðardagsins
það form, sem allir eru ánægðir
með. Þau voru fyrir löngu orðin
stöðnuð, þegar reynt var að
breyta til og lialda þau inni í
Laugardal. En sú breyling hefur
hlolið misjafna dóma. Burtséð
frá skipulögðum hátíðahöldum
bæjarfélaga, vantar einnig mikið
á, að íslendingar haldi 17. júní
nægilega hátíðalegan hver á sínu
heimili, eins og til dæmis Norð-
menn gera 17. maí.
í þessu blaði eru tvö viðtöl, sem
bæði fara vel í blaði á þessum
degi. Hið fyrra er við Sigríði Val-
geirsdóttur, sem er stofnandi
Þjóðdansaf élags Reykjavíkur.
Ilitt er við Bjarna M. Gislason,
rithöfund, sem helgaði handrita-
málinu starfskrafta sína um ára-
bil.
Með þessu efni sendir Vikan
lesendum sinum beztu kveðjur
EFNISYFIRLIT
GREINAR
BU.
Hann vann bug á einum hræðiiegasta sjúk-
dómi mannkynsins 10
Saga Zeppeiin-loftfaranna
20
VIÐTOL
Spenna áranna var orðin mikil, rætt við
Bjarna M. Gíslason, rithöfund
Glymur dans í höll, rætt við Sigriði Val-
geirsdóttur um þjóðdansa
26
SÖGUR
Eiginkona ofurstans, smásaga eftir Somer-
set Maugham 16
Ugla sat á kvisti, framhaldssaga
14
Þar til dauðinn aðskilur, framhaldssaga
22
ÝMISLEGT
Fiugvélar á íslandi, nýr þáttur
Markaðstorg í Reykjavík, myndasyrpa
12
FASTIR ÞÆTTIR
Pósturinn
Simplicity-snið
23
Heyra má
Stjörnuspá
24
31
Myndasögur
35, 37,
Krossgáta
I næstu viku
38
32
50
FORSÍÐAN
Þau heita Rannveig Ólafsdóttir og Gunnlaugur
Jónasson og eru bæði í Þjóðdansafélagi Reykja-
víkur. Þau eru í ósviknum íslenzkum búningum,
sauðskinnsskóm, vaðmáli og öllu tilheyrandi. —
Ljósmynd: Egill Sigurðsson.
VIKAN Útgefandl: Hllmir hf. Ritstjóri: Gylfi
Gröndal. Blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Matthildur
Edwald og Ómar Valdimarsson. Útlitstelkning:
Sigurþór Jakobsson. Auglýsingastjórar: SigriBur
Þorvaldsdóttir og Sigriður Ólafsdóttir. — Ritstjórn,
auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholtl 33.
Símar: 35320 — 35323. Pósthólf 533. Verð í lausa-
sölu kr. 60,00. Áskriftarverð er 575 kr. fyrir 13 tölu-
blöð ársfjórðungslega eða 1100 kr. fyrir 26 blöð
misserislega. Áskriftargjaldið greiðlst fyrirfram.
Gjalddagar eru: nóvember, febrúar, maí og ágúst.
24. TBL. VIKAN 3