Vikan - 17.06.1971, Blaðsíða 43
GENERAL
ELECTRIC
RAFMAGNSVEKJARAKLUKKIIR
Hún vekur yður rólega af blíðum blundi
með þægilegri hringingu — og þér getið
dottað aftur í 10 mínútur ■—■ en þá hringir
hún — og enn getið þér blundað örlitla
stund, — en eftir það gefur hún engan
grið — hún hringir og hringir þar til þér
glaðvaknið.
Frábær vekjaraklukka fyrir hina morgunsvæfu, — og svo er hún falleg og fyrir-
ferðarlítil — og þér getið valið úr mörgum gerðum — já og verðið — það er einmitt
við yðar hæfi.
ÚTSÖLUSXAÐIR:
Heimilistæki sf., Hafnarstr. 3
Lampinn, Laugavegi 87
KRON, Laugavegi 18A
Rafiðjan hf., Vesturgötu 10
Fönix sf., Suðurgötu 10
Rafröst sf., Ingólfsstræti 8
Rafbúð, Domus Medica
Ljós hf., Laugavegi 20
Raftorg hf., Kirkjustræti
Dráttarvélar hf., Hafnarstr. 2
Raftækjaverksmiðjan hf.,
Oðinsgötu 7
Raforka hf., Austurstræti 8
Kaupfélag Arnesinga,
Selfossi
Stebbabúð, Hafnarfirði
Raforka, Akureyri
ELE€TBI€ hf.
Haraldur Eiríksson,
Vestmannaeyjum
KEA, Akureyri
Grímur og Arni,
Húsavík
Valfell, Akranesi
Stapafell, Keflavík
Haraldur Böðvarsson & co.,
Akranesi
TÚNGÖTU 6
SÍMI 15355
GENERAL
ELECTRIC
EIGINKONA
OFURSTANS
Framhald af bls. 17.
an af að hitta fólkið? Hertoga-
ynjan er hrifin af rithöfund-
um og listamönnum. Henry
Dashwood, gagnrýnandinn, sem
þú kannast við, kemur og hann
vildi hitta mig einhverra hluta
vegna.
— Það var fallega gert af
þér að neita, Evie.
— Það var nú það minnsta,
sem ég gat gert, sagði hún
brosandi. — George, bætti hún
svo hikandi við, — Útgefend-
urnir ætla að bjóða mér til
kvöldverðar síðast í mánuðin-
um og þeir vilja, að þú komir
líka.
— Það á nú ekkert alltof vel
við mig. Eg skal fylgja þér til
London, en ég held að ég snæði
kvöldverð með einhverjum
öðrum.
Daphne!
— Ég veit, að þér mun leið-
ast það, en þeir leggja ríka
áherzlu á þetta. Og daginn
eftir ætlar bandaríski útgef-
andinn, sem keypti bókina
mína að halda hanastélsboð á
Claridges. Ég vildi gjarnan að
þú kæmir með mér þangað.
— Þetta virðist ekki au-
fúsulegt, en ég kem vitanlega,
ef þú óskar þess.
—• Það var fallega boðið.
George Peregrine átti erfitt
með að finna það góða við
hanastélsboð. Það var svo
krökkt af fólki þar. Sumar
voru ekki svo ljótar, já, jafn-
vel glæsilegar, en karlmenn-
irnir voru hroðalegir. Hann
var kynntur fyrir öllum sem
Peregrine ofursti, eiginmaður
E. K. Hamilton, eins og þið
vitið. Karlmennirnir vildu
ekkert við hann tala, en kon-
urnar létu hann ekki í friði.
— En, hvað þér hljótið að
vera ofsalega hreykinn af
konunni yðar! Er þetta ekki
dásamlegt? Ég las bókina frá
upphafi til enda og gat bara
ekki hætt og loksins byrjaði
ég aftur á upphafinu og las
hana einu sinni enn. Hún er
blátt áfram töfrandi.
Enski útgefandinn sagði:
— Ljóðabók hefur ekki ver-
ið tekíð svo vel í tuttugu ár.
Sg hef aldrei séð aðra eins
gagnrýni.
Bandaríski útgefandinn
sagði:
— Glæsileg bók! Hún slær
öll met í Ameríku! Bíðið þér
bara!
Bandaríski útgefandinn gaf
Evie stóran vönd af brönu-
grösum. George fannst það
með eindæmum heimskulegt.
Allir gestirnir voru kynntir
fyrir Evie og hann veitti því
eftirtekt, að fólk sagði einhver
fagurmæli við hana, en hún
tók því öllu með fallegu brosi
og vingjarnlegu þakklæti. Hún
var eilítið rjóð af hrifningu,
en annars var ekkert á henni
að sjá. Þótt George fyndist
þetta allt heimskulegt dáðist
hann að því, að kona hans kom
fram eins og henni bar.
Það er þó hægt að sjá það,
að hún er dama, hugsaði hann,
og það er meira en hægt er að
segja um hinar konurnar hérna.
Hann drakk fáein hanastél.
En eitt kom honum á óvart.
Sumir, sem hann var kynntur
fyrir horfðu svo einkennilega
á hann. Hann skildi ekki
ástæðuna, en einu sinni, þeg-
ar hann gekk fram hjá tveim
konum vfar engu líkara en
þær hefðu verið að tala við
hann. Hann var alveg viss um,
að þær hefðu farið að flissa,
þegar hann var farinn. Mikið
var hann feginn, þegar boðinu
lauk.
egar Evie var farin í bæinn
daginn eftir fór hann inn í
klúbbinn sinn og á bókasafnið
þar. Hann leitaði að síðustu
24. TBL. VIKAN 43