Vikan - 17.06.1971, Blaðsíða 50
/ nœstu
Hvað gerðist í Saltvík?
Er unglingunum ekki'
treystandi?
Hvað gerðist í Saltvík? Var sú tilraun, sem
þar var gerð, fyrirfram dauðadæmd? Er það
satt, sem sum dagblöð slógu upp og höfðu
eftir einum verði laganna, að unglingum sé
ekki treystandi? Vikan leitast við að svara
þessum spurningum í máli og myndum frá
Saltvíkurhátíðinni í næsta blaði.
Röntgen
hefur
bjargað 1
mörgum
Greinaflokkurinn
„í þjónustu lífsins"
heldur áfram.
Næst er sagt frá
Röntgen, en upp-
götvun hans hefur
bjargað milljón-
um manna.
Grein um Skrepp seiðkarl
Allir kannast við Skrepp seiðkarl. Þættirnir
um hann eru reyndar ætlaðir börnum, en
fullorðnir hafa ekki síður gaman af þeim.
Við birtum grein og myndir um Skrepp í
næsta blaði.
HITTUMST AFTUR - I NÆSTU VIKU
Hvernig konur geta varið sig
Enginn er lengur óhultur á götum úti í stór-
borgum, allra sízt konur, sem eru einar á
ferð. En nú hafa verið fundin upp alls konar
tæki, sem þær geta borið á sér og varið sig
með.
Kristján hristi hana hörku-
lega. Grænblá augu hans voru
græn.
— Haltu kjafti, Anna! Þú
veizt ekki, hvað þú segir. Þú
verður að skilja. ..
•—- Nei! Aldrei! Hún froðu-
felldi af bræði. — ’Ég veit ekki,
hvað ég segi, ég á að skilja
allt, meðan mig svíður. Þann-
ig viljið þið hafa það og svona
hentar ykkur. Kona, sem hugs-
ar um heimilið og vinnur fyrir
matnum og hugsar um alla
hluti og SKILUR líka! Er það
ekki hentugt? Hún snökkti
hátt.
— Anna, sagði Kristín. Rödd
hennar skalf og hún rétti fram
höndina, en Anna sló hana frá
sér.
■— Snertu mig ekki, komdu
ekki við mig. Þú ert ekki hót-
inu skárri en allar gálurnar,
sem hann hefur haldið við —
skilurðu það?
— Skelfing öskrið þið mik-
ið, sagði einhver syfjulega og
Stefán stóð í gættinni í kryppl-
uðum náttfötum og hélt á
koddanum í fanginu. — Ég get
ekki sofið. Hættu að veina
svona, Anna.
Þegiðu! Farðu inn í rúm!
— Heyrðu nú....
Kristján gekk yfir gólfið og
tók Stefán í faðminn.
Grafarþögn ríkti.
— Það var frammorðið, sagði
Anna, og henni fannst hún
vera svo óendanlega þreytt. -—
Ég vil aldrei sjá ykkur hér
aftur. Farið þið!
Kristján horfði á hana yfir
öxlina á Stefáni. Smásnáðinn
boraði kollinum inn í hálsakot
háns og líkami hans titraði all-
ur.
— Reyndu að haga þér eins
og manneskja, sagði hann fyr-
irlitslega og hörkulega. —
Hvern skollann ertu að reyna
að gera? Hvaða læti eru þetta
eiginlega?
— Segðu ekki fleira, Krist-
ján, sagði Kristín. Hún stóð við
rúmið og leitaði að skónum
sínum. — Anna hefur rétt að
mæla. Það er bezt að við för-
um.
— Einmitt, sagði Anna. —
Farið sem fyrst.
Framhald í næsta blaði.
að gera við uppþvottagrindina?
50 VIKAN 24. TBL.