Vikan - 18.05.1972, Síða 4
London dömudeild
Pils og peysur Mikið úrval
London dömudeild
PÓSTURINN
Uppsögn á
þrettándakvöldi
Elsku Póstur!
Ég er afskaplega hrifin af strák
sem er með annarri á föstu en
á heima í næsta húsi (þetta er
í sveit, það er tvíbýli). Hann
hefur verið með mér eitt kvöld
heima nýlega, en var þó með
annarri á föstu. Ég held honum
sé samt ekki alveg sama um
mig. Ég var með honum fyrir
jól og hann sagði mér upp á
þrettándakvöldi. Ég elska hann
og get ekki verið með öðrum
strák (hef reynt það), hvað get
ég gert?
A ég að láta hann lönd og leið?
Eða hvað? Þakka svo allt gott í
Vikunni.
Með fyrirfram þökk. Solla Ó.
P.S. Hvað lestu úr skriftinni? —
Hún er ekki góð. Bæ.
Fyrst hann er nágranni þinn ætti
þér ekki aS verða skotaskuld úr
því að ganga úr skugga um,
hvort hann ber nokkurn kær-
leikshug til þín. En þaS er ólík-
legt; annars hefSi hann varla
valiS jafn fornfrægan hátíSisdag
og þrettándann til aS segja þér
upp. Vertu svo ekkert aS stritast
viS aS vera meS öSrum strák-
um, fyrst þig langar ekki til
þess; eitthvaS annaS ættirSu nú
að geta gert þér til gamans.
Vertu þolinmóS og minnstu þess
sem í vísunni stendur: Maður
kemur manns í staS . . .
ÞaS er mála sannast aS skriftin
er ekki falleg, hún minnir helzt
á kornakur eftir fellibyl. Von-
andi eru skapsmunir þínir ekki
á annarri eins ringulreiS og hún
gæti bent til.
Lykillinn
Hér með ætla ég vinsamlegast
að benda ykkur á að í fimmt-
ánda tölublaði þessa árs byrjið
þið að birta framhaldssögu und-
ir nafninu „Lykillinn", þessa
sömu sögu voruð þið með fyrir
fáum árum, ef ég man rétt hét
hún þá „Alice".
Ég nenrti ekki að fletta upp f
gömlum blöðum til að leita að
henni, en það eru varla meira
en þrjú ár síðan.
Svona finnst mér engan veginn
hægt að bjóða áskrifendum upp
á bótalaust.
Að vísu var þetta spennandi
saga, en endaði með blóðugasta
bardaga sem ég man eftir í
blaðinu.
Með þökk fyrir það sem vel er
gert. I.M.
ViS biðjumst afsökunar á þessu;
hér var um leiðinleg mistök að
ræSa. Lykilinn þýddum viS úr
spánnýju, sænsku blaSi og gerS-
um ráS fyrir aS hún væri alveg
ný af nálinni. En ástæSan til
þess aS okkur núverandi blaSa-
mönnum sást yfir aS hér var um
aS ræða sömu sögu og Alice er
sú aS ekkert okkar hafði
um hana fjallað áður. Blaða-
maSur sá sem þýddi Alice er
sem sé ekki lengur starfandi
hér.
Tom Jones
Kæri Póstur!
Ég hef skrifað þér áður, en ekki
fengið svar. Nú langar mig svo
að vita, hvort Tom Jones er gift-
ur, og hvað hann er gamall. —
Getur þú sagt mér það? Með
fyrirfram þökk fyrir birtinguna.
Hanna.
P.S. Hvernig er skriftin og hvað
lestu úr henni?
Tom Jones er um þrítugt,
kvæntur og heitir kona hans
Linda. Skriftin er ekki beint
snotur og erfitt aS lesa nokkuS
úr henni.
Getur ekki fætt
börn framvegis
Kæri Póstur!
Ég leita til þín eins og margir
aðrir lesendur þínir, með vanda-
mál mín, sem mér finnast bæði
stór og mikil. Og bið ég þig
því elsku bezti Póstur að
draga ekki lengi að svara mér.
Ég er tvítug sveitastúlka og
leynilega trúlofuð tuttugu og
fjögurra ára gömlum pilti, sem
ég elska út af lífinu, og höfum
við ákveðið að opinbera trúlof-
un okkar [ júní í vor er hann
kemur heim (en hann er í vinnu
fyrir sunnan), og hef ég verið
mjög hamingjusöm, þangað til
fyrir nokkrum dögum, en þá
veiktist ég og missti fóstrið,
4 VIKAN 20. TBL.