Vikan - 18.05.1972, Blaðsíða 8
LÍKAMINN LÆKNAR SIG
SJÁLFUR MEÐ
HJÁLP KÍNVERSKU NÁLANNA
- Ég ætla að leitast við að létta hulunni af
þessari eldgömlu lækningaaðferð, segir Erik
Bergström, sem hefir opnað fyrstu lækninga-
stofu fyrir austurlenzka læknislist í Svíþjóð.
Sænskur blaðamaður fór á fund hans og segir
hér frá þeirri heimsókn ...
— Eitt verða allir sjúkling-
ar mínir að hafa hugfast: ég get
alls ekki gefið loforð um var-
anlega bót. Og óskhyggjan
gagnar ekki, hvorki mér né
þeim sem leita til mín, til að fá
prjónaaðgerð (akupunktur).
En það er staðreynd að þessi
gamla kínverska lækningaað-
ferð hefir hjálpað ótrúlega
mörgum manneskjum. En nú
held ég að tími sé kominn til
þess að lyfta þeirri leyndar-
dómsfullu hulu, sem yfir þessu
hefir hvílt og finna vísindaleg-
ar skýringar með aðstoð raf-
magnstækja.
Erik Bergström er þreklegur
maður, 45 ára, með stór horn-
spangagleraugu. Hann stendur
upp frá skrifborðinu og sezt í
stól við hlið mér, tekur um
slagæðina á öðrum úlnlið mín-
um. Ég á, sem sagt, að ganga
undir fyrstu prjónaaðgerð
mína. En fyrst verður hann að
„kortleggja“ mína „veiku“
punkta með slagæðaathugun.
Jafnvœgi milli líkamshluta
Svíinn Erik Bergström var
áður búsettur í Glasgow og
hafði þar „akupunkturstofu" og
fyrir tveim árum fór hann að
hugsa um að setja upp sams-
konar lækningastofu í Svíþjóð.
Nú eru þau áform hans orðin
að veruleika. 15. janúar í ár
opnuðu þau, Erik og Ruth kon-
an hans, lækningastofu við
Vasatorgið í Gautaborg.
Hann skýrir svo hugmyndina
sem liggur á bak við kínversku
mælingaaðf erðina:
—• Alheimurinn er eitt raf-
orkusvæði, sem við erum stöð-
ugt í sambandi við, já, við er-
um agnir í þessari alheimsvídd.
Nú vitum við líka að manns-
líkaminn starfar eiginlega sem
rafhlaða. Rafstraumur liggur í
gegnum líffæri okkar og fylgir
ákveðnum brautum í hringrás-
inni. Á vissum stöðum liggja
svo þessar brautir saman og
það er þar sem við stingum
prjónunum.
Verkur eða sjúkdómur í
ákveðnu líffæri orsakast oft af
því að þrýstingur er of lítill
eða of mikill, vegna þrengsla
eða stíflu einhversstaðar í ó-
sýnilegu leiðslukerfi líkamans.
Ef stungið er nál á réttum stað
dregur málmurinn til sín raf-
Mjóu stálprjónarnir með koparhausnum eru líkastir stoppunálum.
8 VIKAN 20. TBL.