Vikan - 18.05.1972, Page 12
SJÁLFSMYND 7
Símon Siguriónsson, framreiðsiumaður
LIFÐU
LÍFINU LIFANDl
Persónulegu spurningunum okkar svarar að þessu sinni Símon Sigurjónsson,
hinn kunni framreiðslumaður í Nausti. Áður hafa svarað sömu spurningum: Matthías
Jóhannessen, Órlygur Sigurðsson, Jökull Jakobsson, Guðmundur Jónsson,
Árelíus Níelsson og Magnús Bjarnfreðsson.
1
Hvað er það versta, sein þér gel-
ið hugsað yður, að fyrir gæti
komið?
Að ég tnpaði trausti fjölskytdu
minnar, húsbænda og vina.
2
Hvar vilduð þér helzt eiga heima?
Þar sem gæfa og gengi er mest,
á íslandi.
3
Hvaða galla í fari annarra eigið
þér erfiðast með að þola?
Óstundvísi. leti og sjálfselsku.
4
Hvaða skáldsögupersónu liafið
þér mest dálæti á?
Bjarti í Sumarhúsum.
5
Hvaða manneskju metið þér
mest?
Eiginkonu mina og þá konu sem
bar mig i þennan heim, móður
mina.
6
Hvaða samtiinakonu dáið þér
mest ?
Eleanor Boosevelt.
7
Hvaða kvenhetju úr hókmennt-
unum dáið þér mest?
Snæfríði fslandssól.
8
Hver er eftirlætislistmálari yðar?
Halldór Pétursson.
9
En tónskáld?
Sigfús Halldörsson.
10
Hverja eiginleika teljið þér mestu
máli skipta að karlmaður hafi?
Atorku, samuizkusemi, fórnfýsi
og miskunnsemi.
11
En kona?
Að hún sé Ijúflynd, einlæg, glað-
lynd og falslaus.
12
Hv.aða kost á manneskju metið
þér mest?
Jafnlyndi.
13
Hvað þykir yður mest gaman að
gera ?
Ferðast, kynnast fólki, vinna.
14
Hvað hefðuð þér helzt viljftð
verða ?
Góður framreiðstumaður.