Vikan - 18.05.1972, Síða 16
1. HLUT*
ÉG LIFÐI
ÞAÐ AF
Juliane Köpcke er seytján ára, lítil og veikbyggð.
En hún lifði af flugslys og níu daga í frumskóginum. Þessi
hlédræga skólastúlka við Humboldt-menntaskólann í Lima
varð ein þekktasta kona í heimi. Blaðamenn hvaðanæva að komu
að sjúkrabeði hennar í Pucallpa.
Ég hef alltaf verið fús til að
íljúga og aldrei fundið til
hræðslu við það. Ég var ekki
heldur hrædd þegar við
mamma þann tuttugasta og
fjórða desember stigum um
borð í Turboprop-vél af gerð-
inni Electra, sem flugfélagið
Lansa átti. Þetta var í Lima.
Ég varð ekkert óróleg þótt
vélin legði ekki af stað fyrr en
hálftólf, en ekki strax sjö um
morguninn, eins og fyrirhugað
hafði verið. í Perú standast
flugvélar hvort sem er aldrei
áætlun, og maður er orðinn því
vanur. Að visu hafði Lansa
venju fremur slæmt orð á sér.
Félagið hafði misst tvær flug-
vélar siðasta árið, og margir
afsögðu alveg að fijúga méð
þvi. En við mæðgur höfðum
nokkra ástæðu til að fara með
þessari flugvél: við ætluðum
að halda jólin hátíðleg með föð-
ur mínum í frumskóginum hjá
Pucallpa. Við Vissum að hann
var þegar búinn að setja upp
jólatré í einum kofanum, og
þar að auki ætluðum við í smá-
ferðir út í skóginn. Við hlökk-
uðum auðvitað ákaft til jól-
anna.
Ég sat i nítjándu sætaröð til
hægri, út við glugga. Allt gekk
eðlilega i fyrstu: flugtakið,
sveigjan útyfir Kyrrahafið,
hækkun flugsins, flugið yfir
Andesfjöllin. Morgunverður
var framreiddur og flugfreyj-
urnar brostu. Við sáum snæ-
þaktar eggjar Andesfjallanna
og síðan frumskóginn, sem
þandi úr sér til austurs svo
langt sem augað eygði. Flug-
vélin var fullsetin, nokkrir far-
þeganna sváfu, flugfreyjurnar
söfnuðu saman borðbúnaðinum
og brostu enn. Sumir lásu,
sumir töluðu saman, allir voru
i góðu skapi, því að allir hlökk-
uðu til að halda jólin hjá ætt-
ingjum, vinum og kunningjum.
Flugið frá Lima til Pucallpa
tekur eina klukkustund, og
íallegri flugleið er varla til i
viðri veröld, þegar skyggni er
gott. En hálftíma eftir flug-
tak þraut skyggni að mestu, og
síðan fór flugvélin að hristast
og skakast. Skaksturinn jókst
stöðugt og flugfreyjurnar báðu
okkur að spenna beltin.
Ég var samt sem -áður ekkert
hrædd; þessháttar óþægindum
má alltaf búast við þegar flog-
ið er austur af fjöllunum. Svo
buldu regndropar á gluggun-
um, og annað veifið hlunkaðist
flugvélin lóðrétt niður. Þá
heyrðust fyrstu ópin.
Ég starði út í þokubólstrana,
sem við flugum í gegnum, og
sá eldingu, sem var hættulega
nærri. Og enn hlunkaðist vélin
hræðilega, aftur var hljóðað og
einhversstaðar féll handtaska
ofan úr farangursnetinu.
„Þá er því lokið,“ sagði móð-
ir mín. Hún var hrædd við að
fljúga frá þvi eitt sinn í Banda-
ríkjunum, er hún hafði lent i
erfiðri flugferð. En nú kom
ótti hennar ekki einungis til af
skakstri og hrapi flugvélarinn-
ar; það var kviknað í.
Ég sá logana sjálf. Þeir stóðu
útundan hægri flabsanum,
hræðilega gulir. Ég leit til' móð-
ur minnar, en á sama andar-
taki varð flugvélin fyrir ógur-
legu þöggi, og það næsta sem
ég gerði mér ljóst var að ég var
ells ekki í vélinni lengur. Ég
var komin út úr henni. Ég sat
i sæti mínu i lausu lofti. Ég
þaut í gegnum loftið.
Ég gat naumast andað, þar
eð beltið herti mjög að
kviðnum. Ég sá skógartrén
langt fyrir neðan mig; þau litu
öll út eins og blómkálhöfuð,
óteljandi blómkálhó’fuð. Svo
missti ég meðvitundina.
Regnið vakti mig. Annað
eins úrhelli þekkist hvergi
nema um regntímann í þessum
heimshluta. Ég heyrði þórdun-
ur, en það var ennþá bjart.
Ég lá undir sætabekknum,
þar sem ég hafði setið. En sæt-
ið við hlið mér var tómt. Ég sá
hvorki móður mína né mann-
inn, sem setið hafði til vinstri
við hana og verið ennþá sof-
andi, þegar ósköpin urðu. Ég
sá hvorki neitt af vélinni eða
hinu fólkinu, ég var alein,
heyrði hvakk í froskum og suð
í skordýrum. Ég þóttist sjá að
ég væri talsvert hátt upp til
fjalla, og þarna var talsverður
halli.
Það er undarlegt, en' satt: ég
fann ekki til verulegra skap-
brigða. Ég sá að sætisbeltið
hafði slitnað af mér, að ég
hafði misst annan skóinn,
hringinn minn, sem var gjöf
frá móður minni, og gleraug-
un mín. Ég var í mini-
pilsi og það var að sjá næstum
heilt, hvað olli mér furðu. Ég
fann að undir hálsinum stóð
bein út úr húðinni, að annað
pugað var næstum sokkið í
16 VIKAN 20. TBL.