Vikan - 18.05.1972, Page 24
Nemendum úr Hagaskóla var vel fagnað, en þau
fluttu syrpu úr rokkóperunni „Jesus Christ —
Superstar". Sérstaka athygli vakti þessi unga
stúlka, sem söng lagið „I don't know how to
love him" betur en við höfum heyrt íslenzkar
söngkonur gera það hingað til.
Einnig úr Hagaskóla voru þeir Gunni & Baddi
(samkvæmt kynningu) sem gerðu mikla lukku.
Hefur þessi ungi maður hin laglegustu hljóð
og fékk alla til að syngja með af lífi og sál.
Þótti okkur það sanna rækilega að unglingar
vilja fá að taka þátt i, ekki bara þiggja.
„Boston-trióið" vakti mikinn hlátur og
hrifningu, en þeir sungu og dönsuðu
nokkur af gömlu lögunum í stíl síns tíma,
rétt eins og sjá má af myndinni.
Ef þessi stúlka á ekki eftir að láta alvarlega að sér kveða, þá erum við
til í að éta gullhamsturinn okkar með búrinu. Hún heitir Kristín Lillien-
dahl (dóttir Karls) og er úr Armúlaskóla. Var henni fagnað hvað bezt
á skemmtuninni — og ekki sizt fyrir skemmtilega meðferð á laginu
„Sounds of Silence" eftir Paul Simon.
Úr Ármúlaskól^ voru einnig þessir ungu menn, Ágúst Gunnarsson
(sitjandi) og Guðjón „Gaupi" Guðmundsson, sem fluttu smellinn leik-
þátt.