Vikan


Vikan - 18.05.1972, Side 27

Vikan - 18.05.1972, Side 27
því hve mikið er hlegið og þá vilja brandaramir oft verða dá- litið „billegirÞað þarf svo andskoti mikið til að gera hvort tveggja, að fá fólk til að hlœja rosalega og að koma einhverri pillu að um leið. En íslendingar eru nú einu sinni þannig, að helzt þarf það að vera svolítið illkvittið til að þeir geti hlegið að því. Ef maður œtlar að vera með einhvern fínan húmor, sem er til dœmis eitthvað í líkingu við það sem þeir gera er lengst hafa náð á þessu sviði, til dœm- is Tom Lehrer, þá er eins og fólk hlœgi ekki. Það hefur jú kannski skemmtun af, en það hlœr meira inní sér og það hexyHr skemmtikrafturinn á sviðinu ekki. Ég veit ekki hvernig það er með aðra skemmtikrafta, en ég vil sjálfur helzt vera hlutlaus, sem þýðir að ég verð oft að gera grín mér þvert um hug. Ég verð að láta koma fram hin- ar skoplegu hliðar á málum sem ég tel þarfleg og ef ég geri grín að einum flokki, þá verð ég að gera grín að h.inum líka. Og þrátt fyrir að ég hafi alltaf verið reikull í pólitik, þá gerir maður náttúrlega alltaf mesta grínið að ríkisstjórninni á hverjum tíma. Nú, ég er í þeirri aðstöðu, aff ég hef dáiítið beitt vopn í höndum, rétt eins og fjölmiðill, og ef það er eitthvað sem mér finnst ekki gott, ekki eiga rétt á sér eða þessleiðis, þá finnst mér vera skylda mín að gera grín að því, þannig að það hafi einhver áhrif. Það lengsta sem hœgt er að ná á þessu sviði er tildœmis skopteiknari sem með einni teikningu getur látið hlœja eitthvert mál í hel og hagyrðingur sem með einni fer- skeytlu getur eyðilagt eitthvað sem honum finnst að þurfi að ráðast gegn. Mig hefur til dœmis oft drexjmt um það, að gera mætti rapran háðsbrag um hina nap- urlegu stöðu okkar í heiminum að vera í hópi hinna ríku þjóða sem ausa af gnœgtabrunni fxyrir framan nefið á soltnum heimi. Það er ekki hugguleg tilhugs- un, að í hnotskurn erum við í sömu aðstöðu og þeir tillits- lausu forréttindáhópar, sem við fyrirlítum hvaff mest úr mann- kynssögunni. En svo er maður allt of lítið gagnrýndur í þessu. Fólk tekur skemmtiatriðum gagnrýnis- laust og því þykir mér ákaf- lega vœnt um fólk sem kemur til mín og segir við mig eitt- „Ég er ekki eingöngu í iþróttafréttum hjá Sjónvarp- ixiu. Einn dag í viku er ég á al- mennri fréttavakt meðal hinna fréttamaxmanna en hina dag- ana tek ég á móti iþróttafrétt- um sem berast, vinn úr þeim og svo framvegis eða þá að ég er að hnippa í fréttaritara og kvik- myndatökumenn hér og þar til að taka upp einhverjar íþrótta- fréttir. Mest er vinnan hjá sjóxxvarpinu fólgin í að klippa filmur, skoða myndsegulbönd — editera sem kallað er, það er að stytta myndsegulband yfir á axinað og þar fram eftir götun- xxm. Svo eV að skrifa texta með myndum og lesa hanxi ixm og ef ekki er tími til þess þá les mað- xir haxm bara beint inná í út- sendixigu. Yfirleitt er álitið hér heima að um það bil klukku- tíma þurfi til að klippa hverja mixiútu sem sýxid er í sjónvarpi, en það getur náttúr- lega verið misjafnt." Samkomuhúsið var troðfullt þegar við komum þangað eftir matinn. Yí'ir stóð spurninga- keppni miili sýsluhlutanna og var sjálfur sýslumaðurinn dóm- ari. Aðkomumenn skildu lítt það sem fram fór, þar sem spurningar og athugasemdir voru mjög „lókalíséraðar“ og fólkið sem sat í salnum, stóð í göngum og var hvar sem við var komið, skemmti sér eins og það ætti lífið að leysa. Á end- anum fór svo að annað liðið vann og síðan kom smá hlé. „Nú skemmtir hinn lands- frægi Ómar Ragnarsson," sagði ung og gjörvuleg stúlka. „Gjör- iði svo vel!“ Nokkrir krakkar sem sátu á fremsta bekk tókust á loft og er Ómar birtist á sviðinu í fylgd Magnúsar réru þau sér fram og aftur af hrifningu. Aldraður maður framarlega í salnum hallaði sér að konu sinni og hvíslaði í eyra hennar. Hún hnussaði dálítið og leit með vanþóknunaraugum á mann sinn en brosti svo og hvíslaði á móti í eyra hans. Það fer ekkert á milli mála, að Ómar Ragnarsson er góður skemmtikraftur og salurinn „lá“ kylliflatur hvað eftir ann- að fyrir bröndurum hans, gam- anvisum og hnyttnum athuga- semdum. Sérlega hrifningu vakti það er hann talaði um að Bjöm á Löngumýri væri „ekki frekar kvenkyns heldur en ég“. Börnin hlógu helzt að látbragði og hreyfingum — og svo ein- faldlega af æsingnum yfir því að vera að horfa á sjálfan Óm- ar Ragnarsson. Gömlu hjónin hristu höfuðið í góðlátlegri vandlætingu annað veifið og þess á milli rak gamli maður- inn stafinn í konu sína. Eftir þrjú aukaklöpp — og rúmlega hálftíma „prógramm“ — fór Ómar svo útaf. „Satt að segja v'eit ég ekki hvaða augum ég lít á sjálfan mig sem skemmtikraft. Ég held nð æðsta takmark hvers skexximtikrafts sé að geta flutt einhvern boðskap, að skilja eitthvað eftir, en það er nú svo- lítið erfitt þegar á hólminn er komin. Fólk sem hefur fengið skemmtikrafta dæmir þá eftir því hlátursmagxii sem honum eða þeim hefur tekizt að fram- kalla. Og þetta verður til þess, að ósjálfrátt dæmir skemmti- kraftxxrixxxx stemmxxixxguxxa eftir í búningsherbergi: Magnús Ólafsson, formaður Ungmennasambands Austur-Húnvetninga, Ómar Ragn- arsson og Magnús Pétursson, píanóleikari. í búningsherberai fyrir skemmtun. Farið yfir prógrammiS. 20. TBL. VIKAN 27

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.