Vikan


Vikan - 18.05.1972, Blaðsíða 29

Vikan - 18.05.1972, Blaðsíða 29
skreiðast í bólið klukkan jimm eða sex, eftir langan og erfiðan túr útá land, þá fer ég á fœtur klukkan átta og í fótboltann. Að öðmm kosti er sunnudag- urinn algjörlega ómögulegur — en hitt er svo annað mál að það er andskoti gott að sofna aðeins aftur þegar maður kemur heim úr fótboltanum! Þegar maður vinnur andleg störf, eins og svo margir gera núorðið, þá er þetta nauðsynlegt. Ég skreiðist kannski út frá Sjónvarpinu að kvöldi eftir stressandi frétta- vagt og beint á skemrrttun ein- hversstaðar útá landi og svo loks þegar maður kemur heim um miðja nótt eða snemma morguns, þá er maður gjör- samlega búinn að vera. Þreyt- an er alveg að gera útaf við mann. Þá á ég það til að fara út og hlaupa á fullu í þrjú kortér. Eftir það líður þreytan, þessi sálræna þreyta, alveg úr mér og ég sef miklu betur en ella. Annars hef ég alltaf átt mjög gott með svefn. Frœgt dæmi er þegar ég var einu sinni að vinna á loftpressu og kom stundum utan af landi um það leyti sem ég átti að mœta í vinnuna. Þegar maður er á loftpressu vinnur maður í hálf- tíma og á svo frí í næstu 30 mínútur og á góðviðrisdögum tók ég bara með mér vekjara- klukku i vinnuna og sofnaði í moldarbing á milli tarna. íbú- unum í grenndinni var hœtt að lítast á þetta, það svaf alltaf maður með vekj araklukku i moldarhaug á miðri götunni! Einu sinni dreymdi mig að steypubílh kœmi-að mér r>g œtl- aði að setja steypuna í skurð- inn þar sem ég lá. Vinnufélag- r.rnir slcildu ekkert í því að allt i einu rauk ég upp með ógur- legu öskri, stökk yfir skurðinn — sem í venjulegu tilfelli hefði ekki verið nokkrum manni fært — og hljóp langar leiðir áður en ég þorði svo mikið sem að líta við!“ Það var ekki staldrað lengi við á dansleiknum, en þó sat ég aðeins eftir að þeir Magnús og Ómar fóru. Páll hafði farið fljótlega í heimsókn til systur sinnar sem býr á Blönduósi. Þegar ég fór af dansleiknum voru Húnvetningar aftur á móti orðnir töluvert kátari en þegar við komum. Morguninn eftir héldum við aftur út á flugvallarræmuna, undirritaður ásamt þeim Ómari & Magnúsi; nú átti aðeins að líta við á bænum þar sem Ómar var i sveit, Hvammi í Langa- dal. Flugið tók ekki nema ör- skamma stund og á leiðinni út- skýrði Ómar landslag og kenni- ieyti. Ætlunin var að lenda á tún- inu fyrir neðan bæinn og var fyrst gerð ein aðflugstilraun til að kanna aðstæður og gefa okk- ur Magnúsi tækifæri til að biðja bænirnar okkar. Og svo lenti TF-FRÚ, svo listilega að dollarabrautin í Keflavík verð- ur varla betri flugvöllur. Runólfur bóndi Aðalbjörns- son kom niðureftir og fór með okkur heim að bænum þar sem okkur var boðið til stofu. Þrjú börn sátu með okkur og horfðu stórum augum á frænda sinn án þess að segja orð, en þegar hann rétti þeim brjóstsykur og konfekt, gátu þau þó komið því við að stynja upp veiku „takk“. Ákveðið var að við skyldum staldra við til ao borða með heimilisfólkinu og á meðan var farið út í fjós, þar sem Ómar ætlaði að heilsa upp á gamla kunningja. „Annars þekki ég ekki þessar beljur sem eru hér nú,“ sagði hann. „Aftur á móti þekkti ég foreldra þeirra!“ Hann andaði rækilega að sér þegar út í fjós var komið og kjassaðí síðan við nokkra kálfa sem voru þar á bás. Mátti vart greina á milli hvor var vina- legri, Ómar eða kálfarnir; alla- vegar þurfti hann að þurrka sér hressilega í framan að kveðjum loknum. Bóndi svar- aði nokkrum um nyt kúnna og þessháttar og var okkur síðan boðið upp á dýrindis hrossa- kjöt og kartöflur. „Það var nú reyndar hér sem ég upphóf minn skemmtikrafta- feril. Að vísu -hafði ég leikið,. bæði í skóla og eins í „Vesa- lingunum“ í Iðnó sem strákur, en það var hér sem ég fór fyrst að syngja fyrir hanann og aðra heiðursborgara. Einnig átti ég það til að búa til gamanvísur um sveitakarlana i kring — og yfirleitt söng ég fyrir alla sem ekki með nokkru móti gátu þolað músík. Og það var líka hér sem ég lifði mína dýrleg- ustu daga. Gat lifað mig inn í kúarektorsstarfið. Vel gœti ég hugsað mér að vera bóndi — en þá kemur það til að í stað- inn yrði ég að sleppa svo mörgu sem mér þykir skemmtilegt. Hér i Langadalnum leið mér betur en mér hefur liðið nokk- urs staðar annars staðar og þess vegna kem ég hér eins öft og mér er mögulegt, þótt það sé ekki mikið meira en rétt að reka nefið inn. Ég hef oft undr- ast það, af hverju ekki er hægt að koma upp einhverju kerfi hjá bœndasamtökunum, því í bœjum og borg er fullt af fólki segi fyrir mig, að ég vildi feg- inn nota sumarfríið mitt, eitt- sem kann til búverka og ég hvað af þvi allavega, til að vinna á sveitabœ. Það œtti að vera hœgur vandi fyrir bænda- samtökin að hafa skrá yfir fólk sem vill gera slíkt, svo bœndur geti komist frá í hálfan eða heilan mánuð öðru hverju" Bílar á þjóðveginum stönz- uðu þegar við fórum í loftið aftur, því endurtekning „Hús- bændavöku" átti að hefjast klukkan eitt og svo aðkomu- menn kæmust sem fyrst í bæ- inn aftur átti Ómar að skemmta um leið og Páll hafði lokið ræðu sinni. Auðvitað er brjál- æði næst að halda skemmtun fyrir fullorðna klukkan eitt eft- ir hádegi, það vita allir er nærri slíku hafa komið, en aðeins ör- fá sæti í samkomuhúsinu voru laus! Heldur meira var af börn- um á þessari skemmtun — enda hafði selzt upp ú þá er var kvöldið áður á 15 mínútum — og þau þurftu ekki að bíða iengi eftir hetjunni sinni. Sal- urinn var heldur „þyngri“ eins og það heitir á fagmálinu, en börnin í Húnavatnssýslu lifn- uðu heldur betur við þegar þeir ágætu félagar Kalli & Palli komu í heimsókn. Þeir sem komnir voru „til vits og ára“ eins og það er kallað, skemmtu sér hvað bezt yfir því er Ómar gaf heiztu pólitíkusum jóla- sveinanöfn (Halldór aurasník- ir, Björn á Löngumýri hrekkja- staur og svo framvegis) og enn voru uppklöppin mörg. Áður en lagt var af stað til Reykjavíkur þurfti að hringja flugáætlun Frúarinnar til Flug- umsjónar og var það gert á hótelinu. Þegar við vorum að fara þaðan út rákum við aug- un í auglýsingu, þar sem gamla samkomuhúsið á staðnum var auglýst til sölu. Ómar var fljót- 20. TBL. VIKAN 29

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.