Vikan - 18.05.1972, Síða 30
ur að taka við sér. „Þetta kaupi
ég,“ sagði hann og hló hrossa-
gaukshlátri sínum og hallaði
sér að Magnúsi. „Svo þegar ég
er orðinn gamall og útslitinn,
þannig að enginn vill hlusta á
mig lengur, þá held ég mínar
prívat skemmtanir í þessu sam-
komuhúsi!"
Veðrið var ekki eins fallegt
þennan daginn, en Frúin dillaði
sér í lendunum um leið og flog-
ið var yfir Blönduós.
„Nei, ég get svo sannarlega
ekki sezt niður og samið jyndið
efni þegar mér dettur það í
hug. Ég er búinn að ganga með
margar hugmyndir í maganum
í allt að 10 ár — ég er jú búinn
að vera i þessu í 14 ár. Svo eru
líka til lög sem mér þykja svo
sniðug, að það verður bara að
gera eitthvað við þau. Stund-
um fœ ég strax góða hugmynd
en oft er það líka sem ég þarf
að bíða árum saman, þannig að
ég er svo sannarlega engin
brandaraverksmiðja á ákveðn-
um tímum sólarhringsins. Það
hefur komið fyrir að ég hef
verið í miklu tímahraki o
þurft nauðsynlega að hafa eitt-
hvað nýtt allt í einu og þá hef
ég skellt einhverju saman á
fimm mínútum. Sem sagt, ekki
lagt í það nokkra vinnu, en
þegar til kastana kemur gerir
það heilmikla lukku. Þá verð
ég œgilega svekktur, því oft
legg ég mikla vinnu í efni sem
fœr bara alls engar viðtökur.
Gerir sig ekki ánokkurn hátt.
Þá hefur það einnig komið fyr-
ir ef ég er i tímahraki, að ég hef
ieyft mér að vera að semja eitt-
hvað á meðan verið er að lesa
almennar fréttir í sjónvarpinu
og ég bíð eftir því að komast
að!
Nei, ég held ég hœtti ekki l
þessum skemmtana„bransa“
strax, það slátrar enginn kúnni
sinni. Það er náttúrlega alltaf
hœtta á því i þessu að maður
byrji að dala og að maður geri
sér ekki grein fyrir því að
hœtta, en ég hef alltaf haft góð-
an samanburð frá ári til árs —
til dœmis voru árin 1965 og ’68
heldur slök, enda fer það dá-
litið saman hve mikil peninga-
ráð fólk hefur — en á meðan
þetta er jafnvel heldur á upp-
leið, eins og hað hefur verið i
vetur, þá sé ég ekki beina
ástœðu til að hœtta. Eftir fyrsta
árið mitt i þessu leiddist mér
þetta orðið og reiknaði ekki
með að mér dytti nokkurn tima
nokkuð fleira sniðugt t hug, en
þetta hefur rúllað."
A8 lokinni ferð: Ómar Ragnarsson, Magnús Pétursson og Páll Bergþórsson. (Ljósm: ó. vald.)
30 VIKAN 20. TBL.