Vikan - 18.05.1972, Qupperneq 32
V
INGIMAR EYDAL
Sendir frá sér LP á 10 ára
afmæli hljómsveitarinnar
Um mánaðamótin kemur á
markaðinn LP-plata með
hljómsveit Ingimars Eydal og
vill svo skemmtilega til að hinn
1. júní á hljómsveitin 10 ára
afmæli. Að vísu er Ingimar
sjálfur einn orðinn eftir af upp-
runalegum meðlimum, en þrátt
fyrir það hefur eitt varðandi
hljómsveitina ekki breytzt:
Hún er alltaf söm að því leyti,
að Hljómsveit Ingimars Eydal
er í sérflokki á íslandi — og
þó víðar væri leitað.
Nafn plötunnar er „í sól og
sumaryl“ eftir fyrsta laginu á
henni. Alls eru þar 12 lög og
sagði Ingimar í símtali nýlega
að skipta mætti lögunum í 5
flokka. „Við gættum þess að
þarna væru engin uppfylling-
arlög,“ sagði Ingimar. „Þarna
eru spönsk lög, skandinavísk,
íslenzk lög, gömul og ný, rokk-
lagasyrpa og sitthvað fleira.
Tvö íslenzku laganna eru eftir
sjómann frá Siglufirði, Gylfa
Ægisson. Ég var með töluvert
af efni eftir óþekkta íslendinga
og því meira sem ég hlustaði á
það, því sannfærðari varð ég
um að þessi lög Gylfa væru það
bezta.“
„Maður heyrir af þessari
upptalningu að þarna er um
auðugan garð að gresja.“
„Já, ég neita því ekki. Við
gættum þess, eins og ég sagði,
að taka ekkert lag með á plöt-
una nema við værum ánægð
með það og lagavalið er mjög
breitt, eins og við höfum alltaf
reynt að hafa það. Þarna er til
dæmis spánska lagið „Maria
Isabella" og svo nýja lagið hans
Neil Young, „Harvest”, en það
syngur Bjarki."
„Hvenær var þetta tekið
upp?“
„Um páskana. Þá komum við
til Reykjavíkur og lokuðum
okkur inni í stúdíóinu hjá Pétri
Steingrímssyni í 40 tíma og fór-
um svo heim, úttauguð á sál og
líkama, en ánægð með það sem
við höfðum gert. Þetta var
náttúrlega í fyrsta skipti sem
við unnum í stereo, en ég held
að ég tali fyrir munn okkar
allra þegar ég segi að við séum
nokkuð ánægð með útkomuna.
Svo á náttúrlega eftir að koma
í ljós hvernig pressunin verður
og svo framvegis."
„Hvað er annars að frétta af
ykkur?“
„Tja,“ svaraði Ingimar, hrað-
mæltur að vanda, „eiginlega
ekkert nema allt gott og ofboð
að gera. Við spiluðum í síðasta
mánuði (apríl) 18 kvöld í röð
og vorum að vonum orðin held-
ur slæpt, og svo er sumarið
framundan. Sjónvarpsþátt tók-
um við líka upp og þar voru 3
lög af plötunni, þannig að við
höfum eiginlega ekkert mátt
vera að því að fylgjast með
sjálfum okkur.“
„Eruð þið nokkuð á leið suð-
ur til dansleikjahalds?“
„Það er aldrei að vita. Við
eigum dálítið erfitt með að
losna hér um helgar, en það er
ekki að vita hvað skeður í miðri
viku. Sigmar í Sigtúni minnt-
ist einhverntíma á að við spil-
uðum hjá sér fyrstu helgina á
nýja staðnum, en ég veit ekki
hvernig það verður. Áhuga
okkar á því að koma í skottúr
skortir ekki.“
Með það var Ingimar rokinn
í kennslu og bað að heilsa öll-
um vinum og vandamönnum í
höfuðborginni. Því er hér með
komið áleiðis og norður á Ak-
ureyri sendir VIKAN innileg-
ustu hamingjuóskir til Ingi-
mars með 10 ára afmæli hljóm-
sveitarinnar.
32 ViKAN 20.TBL