Vikan - 18.05.1972, Page 33
PÓSTHÓLF
533
4. apríl, sama stað og síðast.
Komdu sæll og blessaður,
gamli.
Það er nú langt síðan þú birt-
ir bréf mitt (í 12. tbl.) en vegna
anna hef ég ekki mátt vera að
að skrifa fyrr.
Ástæðan fyrir' því að ég
skrifa aftur er sú, að í svari
þínu voru svo mörg vafasöm
atriði, að ég sá mér ekki annað
fært en að skrifa aftur. En nóg
með það.
Gagnrýni mín, sem beindist
gegn tveimur Bítlum, þeim
Lennon og McCartney, var að-
eins ætluð þeim, en alls ekki
George Harrison, því „All
Things Must Pass“ er mjög góð
plata að mínum dómi og
Bangla Desh-hljómleikarnir
báru vott um slatta af ein-
hverju sem heitir mannkær-
leikur.
En því miður get ég ekki
verið þér sammála um „Imag-
ine“. Þó svo að tvö eða þrjú
lög á þeirri — eða stórri plötu
yfirleitt — séu góð, þá getur
platan í heild ekki talist góð.
f fyrra bréfinu spurði ég
þriggja spurninga, en tvær þær
fyrri voru á einhvern hátt mis-
skildar. Því vil ég leiðrétta þær
nú.
1. Það stendur ekkert um
hvað Cat Stevens er gamall í
9. tölublaði og í spurningu 2)
átti ég ekki við „Teaser and
the Firecat", heldur aðra plötu
sem kom út á eftir henni og er
með gömlum upptökum og lög-
um og má þar nefna eitt sem
heitir „Where are you?“
Svo vikið sé að öðru, þá
þakka ég þér kærlega fyrir
upplýsingarnar um Róm; ég
vissi ekki að „snilldin“ mín
væri svona illa skipulögð.
Ég verð nú að vera þér sam-
mála um eitthvað, svo ég sam-
sinni því af heilum hug að þeir
sem ekki kunna að meta Carole
King og hennar plötur hljóta
að vera eitthvað bilaðir á efri
hæðinni.
Orðið „hjartafíling“ er ekki
svo gott að útskýra. Þú hlýtur
að finna það út sjálfur ef þú
pselir eitthvað í því.
Ókídók,
Sigurlaug Brynjólfsdóttir,
Hellum,
Vatnsleysuströnd, Gull.
Jœja já. Þú hefur sjálfsagt
þína skoðun á málunum og ég
mína. Við því er lítið að gera,
en taktu það þó ekki þannig að
ég beri ekki virðingu fyrir þín-
um skoðunum. Mér finnst sjálf-
um að McCartney hafi gert
ágœtis hluti síðan Bítlamir
leystust upp og ég fer ekki af
þeirri skoðun að „Imagine" sé
mjög góð plata.
Veit ég vel, Sveinki, að í 9.
tölublaði stendur ekki ná-
kvæmlega hvað Cat Stevens
(Högni Stefánsson, hvemig
fannst þér þessi?) sé gamall, en
lesa má út úr greininni að hann
sé 22 eða 23 ára, en í sjálfu sér
finnst mér það ekki skipta svo
miklu máli. Aftur á móti vil ég
biðja þig afsökunar á að hafa
haldið þessu fram með plötuna;
raunin mun vera sú að út liafa
komið 5 LP-plötur með Cat
Stevens, en þessar tvær „auka-
plötur“ eru samansafn af eldri
upptökum, rétt eins og þú segir
sjálf. Þar af kom önnur, „Very
Young and Early Cat Stevens“
aðeins út i Bandaríkjunum og
lún, „The World of Cat Stev-
ens“ aðeins út í Bretlandi. Lag-
ið sem þú spyrð um var á þeirri
síðarnefndu. Komu liingað ör-
fá eintök. Báðar þœr plötur
komu út eftir að hann varð
frœgur og vinsœll fyrir alvöru
og gefnar út til að safna aurum
í kassa hljómplötufyrirtœkja.
Þá ætti það að vera útrœtt,
en að sjálfsögðu þigg ég bréf
frá þér — og öðrum — með
þkkum um hvaða mál er —
nema íþróttir.
Góðann daginn, yðar ágæti:
Eftir lestur stórkostlega góðr-
ar greinar yðar í 15. tbl. Vik-
unnar get ég ekki á mér setið
með að senda línu og þakka.
Kærar þakkir fyrir framúr-
skarandi fróðlega grein, sem er
flestum ef ekki öllum fyrri
þáttum yðar betri, skemmti-
legri og fróðlegri. Ég vona að
þér sjáið yður fært að hafa
framvegis svona smælki með
öðrum smágreinum.
Adios amigo,
JÓNAS R. JÓNSSON
Tvö lög —■ mono
Tónaútgáfan
Að minnsta kosti ár er síðan
þessi plata var tekin upp og
enn lengri tími síðan henni var
fyrst ætlað að koma á markað-
inn. Af þeirri ástæðu var ég
heldur skeptískur þegar ég
íékk plötuna í hendur, en það
breyttist fljótlega. Þessi plata
á jafnmikið erindi á markað-
inn nú og hún hefði átt fyrir
ári síðan — og ef menn eru á
öndverðri skoðun, þá má kalla
það erindisleysu.
„Sólskirí' heitir annað lagið,
með texta eftir Jónas sjálfan;
hefur því lagi sjálfsagt ætlað
að vera ,,B-hlið“, en í reynd er
þetta betra lagið á plötunni og
kemur til með að vera töluvert
vinsælt. Jónas syngur þetta vel
og í textanum sýnir hann
glögglega þá áráttu róman-
tískra skálda að fá íólk til að
gleyma öllu og sökkva sér nið-
ur í eitthvert hyldýpi rósrauðs
algleymis og sjúklegra nautna.
Undirspil er erlent og brátt
kemur að því að Allan Florence
upptökumaður í Bretlandi,
verður frægari á íslandi en
Pétur Steingrímsson, sem tók
upp hitt lagið og sönginn í
„Sólskin“.
„Bón um frið“, hitt lagið sem
er eftir Einar Vilberg, er greini-
lega byrjun á samstarfi þeirra
Jónasar og Einars og langt í frá
það bezta sem Einar getur gert
og gerir nú. Mér þykir lagið
laglegt og hreifst mjg af því
þegar Einar söng það fyrir mig
fyrir löngu síðan, en ég veit
ekki hversu mikið erindi það á
á hljómplötu. Textinn er
Takk fynr bréfið og hólið.
Ég leyfi mér þá hér með að til-
kynna að meira af slíku efni er
vœntanlegt, en ekki gat ég set-
ið á mér að glotta; það tók mig
um það bil 30 mínútur að vinna
þáttinn í 15. tbl., en þegar ég
er kannski tvo og þrjá daga, þá
fæ ég ekki svona bréf. Jæja,
svona er lífið...
P.S. Eru 300 „viðunandi til-
boð“?
skemmtilegur, fantasía, og Jón-
as syngur það þokkalega. Vel
kemur í ljós hversu góður
lcassagítarleikari Einar er, en í
síðari hluta lagsins — raunar
munu þetta vera tvö lög, sett
saman í eitt — er auðheyrilegt
að hann skortir töluverða þjálf-
un á rafmagnaðan gítar.
Annar á ég dálítið bágt með
að skilja ástæðuna fyrir endi
lagsins því hann er hreinasta
prump. Þykir méi líklegast að
hann hafi verið settur aftan við
til að geta skartað góðum nöfn-
um, sem nóg er af. Gallinn við
þetta lag er vond upptaka, sem
er sennilegast tækjunum að
kenna, en pressun er nokkuð
þokkaleg. Umslag er mjög
snoturt og í heild má Tónaút-
gáfan vel við una. Svo og þeir
er kaupa þessa plötu, en ég
hlakka óskaplega til að heyra
LP-plötuna sem þeir Jónas &
Einar hafa nýlokið við. Ef það
er ekki mjög mjög mjög góð
plata þá er ég illa svikinn.
LEIÐRÉTTING
Ekki alls fyrir löngu var
minnst á það í þessum dálkum
að vœntanleg vœri frá Tónaút-
gáfunni plata með Geirmundi
Váltýssyni, bónda. Sagði í grein
þeirri að hann væri frá
Hvammstanga, en rétt er að
hann situr í búi sinu að Geir-
mundarstöðum í Skagfirði. Er
hann hér með beðinn afsökun-
ar á þessum mistökum.
Jón Elíasson,
Bolungarvík.
HLJÓMPLÖTU
GAGNRÝNI
20. TBL. VIKAN 33