Vikan


Vikan - 18.05.1972, Page 36

Vikan - 18.05.1972, Page 36
Við framleiðslu íspan-einangr- unarglers er notuð nýjasta tækni með reyndu starfsfólki. Leitið tilboða og nánari upplýsinga. Athugið að gera pantanir tímanlega. 0®! fi bbb jgjglSC imr.nnii imniTWJ niinnn*' mn nminga mnnnin EINANGRUNARGLER Framleitt með r“ nmrni nnnimn nnnmni mnnEisii | Aðferð í 10 ára ábyrgö i mm d0ir EINANGRUNARGLER Smiðjuvegi 7 - Kópavogi - Sími 43100 Furuvöllum 5 - Akureyri - Sími 21332 LYKILLINN Framhald af bls. 22. við værum nakin. En mér var ljóst að við vorum örugg, þang- að til honum tækist að finna einhverja rauf milli skurðanna. Hann stöðvaði vélina og á næsta augnabliki heyrðum við rödd hans. — Camber! Hlustið á mig! Ég virðist hafa vanmetið yður og að vanmeta mótstöðumann sinn, er það versta sem fyrir nokkurn getur komið. Þess vegna er ég reiðubúinn að semja við yður. Þegar hann fékk ekki svar, hélt hann áfram: — Ég veit að þið heyrið til mín og þið meg- ið leika dautt fólk mín vegna. Það sem ég sting upp á er þetta: þið fáið tíu þúsund doll- ara fyrir lykilinn. Ég er með peninga á mér. Svo gleymum við þessu öllu. Ef Lenny er i bátnum með ykkur, þá lofa ég því að láta hana i friði. Ef þið viljið fá hana, þá megið þið eiga hana mín vegna. Alice horfði á mig, andlit hennar var eins og gríma. En ekkert okkar svaraði. Hann beið í eina mínútu, svo ræsti hann vélina og þaut í suðurátt. Ég vissi að hann var að leita að einhverri rennu til að finna okkur og fyrr eða síð- ar myndi hann finna hana, en þetta gaf mér dálítinn frest og ég hafði aðeins eitt í huga; að komast út úr sefinu út á meira dýpi. Ef við aðeins kæmumst yfir lónið og inn að ánni sjálfri, þá var okkur borgið. En Montez lét ekki að sér hæða. Um leið og hann heyrði í vélinni á okkar bát, sneri hann við. Hann var aðeins þrjátíu metrum fyrir aftan mig og það tók hann ekki nema smástund að ná okkur. Ég drap á vélinni og það gerði hann líka og bátarnir voru þá hlið við hlið. Alice þrýsti Polly fastar að sér. Lenny var hreyfingalaus. Ég sat líka kyrr og starði inn í byssuhlaupið. — Og hvað ætlið þér að gera nú, herra Montez? spurði Alice. — Ætlið þér að drepa okkur öll? Alveg rétt. En fyrst vil ég fá lykilinn. Ó, já, alveg rétt, lykil- inn! hreytti Alice út úr sér. —• Ég er svo þreytt á að heyra þennan lykil nefndan, að ég gæti öskrað. Við höfum ekki lykilinn, herra Montez. Hann er týndur. Þér skuluð ekki reyna slíkt, frú Camber. — Þessi getur kannski komið fyrir yð- ur vitinu. Hann lyfti skamm- byssunni hærra. — Á ég að skjóta manninn yðar fyrst, eða barnið? Hvað kjósið þér heldur? - Þér eruö viðbjóðslegur, sagði Alice. Ég hafði auga með Lenny. Hún hafði opnað tösku og tek- ið upp litla skammbyssu, svo laumulega að enginn sá. Hún hélt henni fyrir neðan borð- stokkinn. — Þegið þér, frú Camber! öskraði Montez og beindi byss- unni að Alice, en hönd hans skalf, svo hann varð að styðja við hana með hinni hendinni til að halda byssunni stöðugri. En þegar hann var búinn að hagræða sér, skaut Lenny hann. Byssan féll í vatnið og hann valt um koll og lá graf- kyrr, Lenny horfði stundar- korn á byssuna í hendi sér, svo fleygði hún henni i vatnið. Það er eiginlega ekki mikið að segja úr þessu. Lenny bað 36 VIKAN 20. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.