Vikan - 18.05.1972, Blaðsíða 40
f
einingu kvöldið áður, hún stóð
við steikarpönnuna og hann var
að finna upp nýjan búðing og
blandaði saman af handahófi
innihaldi pakka og dósa. Hún
hafði litið undan, af því hún
vildi ekki sjá, hvað hann var að
malla, en svo hafði hann allt i
einu tekið hana í faðminn og
kóteletturnar höfðu næstum
brunnið.
Hún útilokaði þessa mynd úr
huga sér, þegar Angela sagði
hæðnislega: „Ágætt hjá hon-
um.“
„Ég býst við, að hann geti
ekki að þessu gert. Hann hefur
svo mikið að gera, ég ætti ekki
að búast við, að hann myndi
alltaf alla hluti.“
„Hverslags hluti?“ spurði
Angela hvasst.
„Nú, afmælið mitt...“
„Afmœlið þitt! Hvað áttu
annars mörg afmæli á ári?“
þusaði Angela.
Jenný var þögul og rifjaði
upp fyrir sér hugkvæmni Gor-
dons, þegar hann valdi gjafir
handa Angelu, ekki bara á af-
mælum og jólum, heldur við
hvert það tækifæri, sem hún
þurfti á gjöfum að halda og það
virtist nokkuð oft.
„Hvernig ferðu að?“ spurði
hún auðmjúk.
„Að hverju?"
„Að fá Gordon til að muna,
að hann langi til að kaupa eitt-
hvað handa þér.“
Ekki dýrar gjafir, hún átti
ekki við það. Litinn blómvönd.
ofurlítinn ódýran vott um ást-
úð í verki — slíkt veitti Páll
henni aldrei. Né heldur sagði
hann henni oft, að hann elskaði
hana, alla vega ekki með mörg-
um orðum.
„Hef ég nokkurn tíma sýnt
þér bréfin frá Gordon?“ malaði
Angela.
„Jú, það minnir mig.“
„í hvert sinn, sem hann þarf
í burtu í viðskiptaeriridum,
skrifar hann mér alveg dýrðleg
bréf — ég skal sýna þér nokkur
þeirra. Sjáðu nú til, þú verður
sjálf að hefja þá leið, sem þú
ætlar að fara. Ég held, að þú
hafir hlaupið á þig, elskan. Þú
áttir að gera þér fullkomlega
Ijóst, hvers þú væntir af hon-
um fyrir brúðkaupið."
Jenný kom allt í einu í hug
DRAUMUR í
STEREO
Fjöldi manns á ekki aðra ósk heitari en að
eignast vönduð hljómflutningstæki, t.d. útvarp
með öllum hugsanlegum bylgjum, eða plötu-
spilara, eða stereo magnara með fallegum há-
tölurum, eða segulband (kasettu) sem hægt
V? er að hafa í bíl, bát, tjaldi, eða fallegri hand-
| tösku, eða segulband í fallegum harðviðar-
, * • kassá sem sómir sér vel í stássstofunni og
p hefur ekta stereo hljóm og stereo upptöku.
I En vandinn var alltaf sá, hvað ætti að kaupa
? af öllum þessum tækjum, og hvar ætti að
* kaupa þau. VANDINN ER LEYSTUR. Hjá okkur
getur þú séð ALLAR ÖSKIR þínar rætast.
Við bendum á:
STEREO-magnari Tútvarp 2x35 watts á kr. 33.800.
STEREO-magnara 2x25 watts á kr. 13.900
STEREO-heyrnartól frá kr. 695.
Verzlunin
GELLIR
GarÖastræti 11 sími 20080
umsjónarmaðurinn á skrifstof-
unni, sem spurði hana hvass-
yrtra spurninga og horfði rann-
sakandi á hana, þegar hún var
að sækja um vinnuna.
„Ég á engin bréf frá Páli,“
sagði hún. „Mig minnir, að
hann skrifaði mér eitt eða tvö,
en það voru bara, ja, bara bréf,
skilurðu. Ég henti þeim.“
„Sértu að tala um mikla
vinnu, þá vinnur nú enginn
meira en Gordon." Angela
teygði handleggina upp yfir
höfuðið og andvarpaði og
Jeriný horfði á vandað vegg-
fóðrið og gluggatjöldin og ein-
falda kjólinn hennar Angelu,
sem hafði kostað fimmtíu gine-
ur, og viðurkenndi með sjálfri
sér, að Gordon þyrfti að vinna
fyrir ýmsu.
„ ... og samt finnur hann
alltaf tíma til að kaupa handa
mér blóm og velja handa mér
gjafir. Ég veit, að ég er hepp-
in ...“
„Þú átt það skilið,“ sagði
Jenný eins og af skyldurækni
og gaut augunum á skóg af
bleikum rósum í einu horni
stofunnar.
„En það átt þú lika,“ sagði
systir hennar. „En vertu róleg,
það er aldrei of seint. Ég veit
um eina tvo, mjög geðuga unga
40 VIKAN 20. TBL.