Vikan - 18.05.1972, Side 45
FRÁ RAFHA
56 LÍTRA OFN MEÐ LJÓSI, yfir og undirhita stýrt með hitastilli. Sérstakt glóðarsteikar element (grill).
Klukka með Timer. Heimkeyrsla og Rafha ábyrgð.
VIÐ ÖÐINSTORG - SlMI 10322
þegar hún settist við borðið og
beið eftir bolla af hressandi tei.
Þá kom hann með einkennileg-
an svip á andlitinu, teketilinn í
annarri hendi en hina aftan við
bak. „Ég er með gjöf til þín,“
sagði hann.
„Hvað?“ Hún góndi á hann.
„Lokaðu augunum og réttu
fram höndina.“
Hún hlýddi steinhissa og
fann eitthvað andstyggilegt og
vott í hendinni.
„Hvað er þetta,“ æpti hún
upp yfir sig og sá að þetta var
einhver brún leðja, plastpoki
íullur af gömlu tei og telaufum.
Það hlaut að hafa verið gat á
pokanum, því að innihaldið
rann út yfir ermina hennar og
niður á sokkana. „Ég hata þig,“
æpti hún og henti þessu í hann.
„Ég varaði þig við,“ sagði
hann og vék sér undan.
„Ég verð að viðurkenna, að
það hafði hann gert,“ sagði hún
við Angelu. „Hann hafði sagt
mér, að næst þegar hann fyndi
gamalt te í katlinum, ætlaði
hann að setja það í poka og
gefa mér. Auðvitað trúði ég
honum ekki.“
„Hver hefði gert það? Hann
er galinn, kolvitlaus. Það var
gott að þú fórst að heiman,
hann gæti beitt þig ofbeldi.
’amið þig eða eitthvað þvílíkt."
Hún starði á Jenný, sem leit
undan. „Hann ... hann hefur þó
ekki slegið þig?“
„Ja... bara þegar ég hef
slegið hann fyrst.“
„Svínið!“ Angela kreppti
hnefana, en sagði síðan: „Bíddu
þangað til að ég segi Gordon
allt þetta.“
„Ég hugsa, að hann hafi ekki
vitað, að gat var á pokanum,“
sagði Jenný lágt. „Og svo rauk
hann burt í fússi, án þess að fá
morgunmat og skellti á eftir
sér hurðinni."
Nú var hún búin að taka upp
úr töskunni. „Hvað er þetta?"
spurði hún rugluð og þreifaði
niður í hliðarvasann. Hún
horfði aftur á töskuna. „Ó, je
minn, þetta er ekki mín taska.
Ég hef tekið Páls tösku,“ sagði
hún.
„Hvað máli skiptir það?
Hann fær hana aftur.”
„Já, en hann geymir eitthvað
hérna, skjöl og svoleiðis. Vega-
bréfið og tryggingaskírteini.
„Við skulum athuga það.“
Angela gramsaði í vasanum og
dró fram lítið, lokað umslag.
„Hvað er nú þetta?" spurði hún
og horfði grunsamlega á um-
slagið.
„Ó, það veit ég ekki, eitthvað
sem Páll á.“
„Ætlarðu ekki að opna það?“
„Angela!“
„Þú hefur rétt til þess. Þú
gætir fundið skilnaðarsök
þarna.“
Jenný horfði á umslagið og
elti Angelu eins og í draumi
niður í eldhúsið og horfði á
hana kveikja á katlinum og bú-
ast til að opna umslagið yfir
gufunni eins og hún væri ^ilvön
slíku verki.
„Hér er bréf, tvö bréf,“ æpti
Angela æst. „Og myndir." Ein
þeirra datt á gólfið. „Ó, þetta
er lítil stelpa,“ sagði hún og tók
myndina upp. Röddin virtist
ringluð: „En þetta ert þú,
Jenný, um það leyti, sem þú
varst tíu ára.“
Jenný tók myndina af henni
og starði á hana. „Það var áður
en hann kynntist mér,“ sagði
hún.
Þá sagði Angela eins og hún
hefði orðið fyrir vonbrigðum:
„Hin myndin er líka af þér.
Hún er ekki mjög góð.“
„Tekin í brúðkaupsferðinni
okkar,“ sagði Jenný og virti
fyrir. sér sitt eigið breiða bros
og hamingjuna, sem skein út
úr svipnum. Hún mundi,
að þegar hann hafði tekið
myndina, hafði hann kysst
hana og sagt: „Ég elska þig, þú
ert falleg." Á myndinni sýndist
hún ótilhöfð og ómáluð og
vindurinn ólagaði fötin hennar.
„Hér er gamall reikningur af
veitingastað eða eitthvað svo-
leiðis,“ sagði Angela og stakk
pappírsmiða aftur í umslagið.
„Ó, ég skammast mín svo, ég
hefði ekki átt að láta þig opna
það,“ sagði Jenný og þreif
pappírinn úr höndum Angelu.
,.Ég vil ekki vita, hvað er í
þessum bréfum, ég læt þau aft-
ur á sama stað.“
„Nei, ég veit, hvað bezt er að
gera, ég er eldri en þú,“ sagði
Angela í fyrsta sinn frá því þær
voru börn.
„Hlustaðu nú: „Kæri Páll
ég get ekki skrifað m\kiS, því
að einhvern veginn kem ég
ekki orðum að því, sem ég vildi
segja. Ég sakna þín svo mikið,
að ég finn til eins og hluti af
mér hefði verið rifinn í burtu.
Ég held áfram að segja við
sjálfa mig, að hálfur mánuður
sé ekki lengur tími ...“ „Þetta
er bréf frá þér,“ sagði hún
vonskulega.
„Ég veit það. Þetta var áður
en við giftumst, og hitt bréfið
er líka frá þeim tíma. Láttu
mig nú fá þau.“ Þetta eru einu
bréfin, sem ég skrifaði honum,
hugsaði Jenný. Ég henti hans
bréfi, en hann geymdi mín.
Angela rétti henni bréfin og
horfði þegjandi á, þegar Jenný
20. TBL. VIKAN 45