Vikan


Vikan - 18.05.1972, Page 52

Vikan - 18.05.1972, Page 52
OSTA BAKKINN er einstaklega skemmtilegur og fjölbreytilegur réttur. Tilvalinn sjónvarps- réttur, daglegur eftirréttur, milli eða eftirréttur við hátíðleg tœkifceri og sér- réttur á köldu borði. Reynió'-ostabakka - það er auðvelt. Ostabakki Raðið saman á fat ostum og ávöxtum eða græn- meti og berið fram sem eftirrétt. Gott er að velja saman milda og sterka osttegund. Þegar ostabakki cr borinn fram sem daglegur eftirréttur, eru tvær til þrjár osttegundir settar á bakka ásamt einum til tveim tegundum af ávöxtum eða grænmeti, ost- stykkin borin fram heil, svo hver og einn geti skorið sér ostbita eftir vild. Á hátíðaborðið má skera oststafi, tenitlga og sneiðar af ýmsum osttegundum og raða smekk- lega á stóran bakka ásamt ávöxtum eða grænmeti. Á meðfylgjandi mynd má sjá: Gráðost, camembert ost, stykki af port salut tvær ostsneiðar vafðar upp ofan á ostinum, valhnetukjarna stungið í, tilsitterost skorinn í þykkar, þríhyrndar sneiðar, teninga af goudaosti ásamt grænum og rauðum kokkteilberjum, stungið í appelsínu og teninga af sterkum goudaosti með mandarínurifi. Ennfremur eru á bakkanum appelsína, banani, epli og vínber. Fallegt er að skreyta með grænu grænmeti, svo sem steinselju, dilli eða blaðsalati, þegar völ er á því. Ýmsa fleiri ávexti og grænmeti má hafa með ost- unum á ostabakka, svo sem hreðkur, tómata, agúrkur, ólífur, döðlur, gráfikjur, perur og ananas. Géta~c</ AmfcUa/án^

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.