Vikan


Vikan - 30.11.1972, Síða 11

Vikan - 30.11.1972, Síða 11
I Frances, greifafrúin af Warwick Lillie Langtry. Þaö var sagt um hinn tilvonandi konung, Edward VII. að hann tæki menn fram yfir bækur og konur fram yfir allt. Hin mörgu ástar- ævintýri voru það kunn, að þau hafa lifað i minningunni um hann og skilið eftir fremur leiðinlegan orðstír. En hann hafði eiginlega margt sér til afsökunar. Hánn var af Hannoverættinni,- sem var þekkt fyrir hneykslanlega framkomu og heitt blöð. Hann fékk strangt uppeldi og á æskuárunum var hann þvingaður af hinu, næstum óeðlilega andrúmslofti við hirðina, sem orsakaðist af hinni takmarkalausu og augsýnilegu ást, sem móðir hans, Victoria drottning, bar til föður hans. Þegár „Bertie” var tvitugur, viðurkenndi hann, á kjánalegan hátt, fyrir foreldrum sinum, ástar- ævintýri, sem hann átti með leik- konunni Nellie Clifden. Victoria og Albert tóku þessu ilia, fordæmdu hann sem ótindan glæpamann. Victoria sakaði hann siðar um að hann hefði sprengt hjarta föður sins og hún sagði: ,,Ég get ekki einu sinni horft á hann, án þess að titra af reiði og sorg.” Hjónabandið hafði litil áhrif á hvildarlausa leit Edwards að ástarævintýrum. Lafði Mordauht var aðeins ein af mörgum vin- konum hans, sem eftir myndum að dæma, voru ekkert likt þvi eins fagrar og Alexandra, eiginkona hans. Hún var lika einstök kona og hún sagði að afbrýðisemi væri undirrót alls hins versta i heiminum og hún gætti þess vand- lega að láta þá ástriðu aldrei ná valdi á sér. Að visu var framferði hans ekkert öðru visi en annarra nanna af háum stigum um þetta leyti, út á við fyrirmyndar eiginmenn og feður, sem höfðu slnar fögru ást- konur og bjuggu um þær i litlum einbýlishúsum, við Regents Park og St. Johns Wood, aðeins steins- snar frá miðborginni. M.jög oft voru spilaviti I þessum einbýlishúsum, en fjárhættuspil var bannað með lögum á dögum Victoriu drottningar. Sumar af ástkonum prinsins voru gleðikonur. venjulega af lágum stigum. Ein þeirra var Catherine Waltcrs sem köiluö var „Skittels”, stúlka frá Liverpool meö engilsásjónu en orðbragð eins og sjóræningi. Hún var mjög góð reiðkona og sást oft i hópi aðdáenda á reiðtúrum i Hyde Park. Mannorð þessarra kvenna var nokkuð vafasámt, svo vægt sé að orði kveðið, en margar þeirra voru mjög heiðáriegar konur. Hin glæsilega Sarah Bernhardt var þó undantekin illu umtaii. Prinsinn var ákaflega hrifinn af henni, bæði sem manneskju og listakonu. önnur af þessum vinkonum hans var Lillie Langtry, sem kölluð var Jersey Lily og Alexandra var ákaflega elskuleg við hana, bauð henni jafnvel heim á Marlborough House. En þegar Edward fór að bera vfurnar i Frances, greifafrúna af Warwick, þá varð annað hljóð i strokknum. Alexandra neitaði hreinlega að hafa nokkur skipti við þessa „harðsoðnu” feguröadis. Frances var ástkona Edwards i niu ár, „elsku litla konan hans” eins og hann kallaði hana i ástar- bréfunum til hennar, bréfum, sem hefðu verið fellandi fyrir hann i hjónaskilnaðarmáli ef eiginmaður hennar hefði kosið að nefna prinsinn. En i þessu samfélagi hræsninnar kusu eiginmennirnir að látast ekki sjá það sem fram fór. Það gerði lika eiginmaður Alicfe Keppel, sem töfraði Edward, eftir aö hann var orðinn konungur. Þótt Alexandríi'væri umburðar- lynd, þá var hún' mannleg og gat Frú Alice Keppel Clara Walters, „Skittles”. Sarah Bernhardt. verið nokkuð neyðarleg i orðum, eins og þegar hún kallaði hina amerisku ungfrú Chamberlayne „Chamberpots uiáttkoppinn). Hún hlýtur að hafa haft horn i siðu margra þessara kvenna, en hún lét aldrei á þvi bera og það má Edward eiga að hann var alltaf ákaflega háttvis við hana á almannafæri. 48.TBL. VIKAN 11

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.