Vikan - 11.01.1973, Page 19
Tunguna út, eins langt og hægt
er. Það getur orðið erfitt, en það
þýðir ekkert að kvarta. í
skólanum i Florida eru þrjátiu
og átta nemendur, menn og
konur. Þetta er fólk úr öllum
stéttum, giftar konur, sölumenn
tryggingafræðingar, já og jafn-
vel er þar einn framkvæmda-
stjóri. Andlitsförðun er mjög
vandasöm og það þarf mikla
æfingu til að gera það vel, svo
þarf að læra að detta og sprella
rétt, en i þessum skóla eru
færustu kennarar, þar á meðal
einn frægasti trúðurinn i
Ameriku. Kennslan fer fram i
vetrarbúðum Ringling Sirkus i
hinu sólrika Florida héraði.
Árlega koma um þúsund
nemendur, en sjaldan eru fleiri
en tuttugu til þrjátiu, sem gera
þetta að aðalstarfi. Það er mjög
nauðsynlegt að kunna að slást og
takist trúðunum það vel, þá er
það þriðji aðilinn, þ.e. áhorf-
endur sem skemmta sér
konunglega. Að námskeiðum
loknum, eru það venjulega
tuttugu þeir beztu, sem fá
atvinnu hjá Ringling'Sfirkus, Þeir
geta sem sagt, fengið fólk til að
hlæja...........