Vikan - 11.01.1973, Blaðsíða 48
ungt, hrukkunar horfnar, var-
irnar kyrrar. ííg snerti hönd
hans, sem alltaf hafði verið svo
hlý og skjót til andsvara. Hún
var köld.
Næsta dag höfðum við hina
einföldu athöfn, sem börnin
höfðu undirbúið, í bókasafninu,
meðal bókanna, sem honum
þótti svo vænt um. Síðan kom
langur akstur til fjölskyldu-
grafreitsins í New York, þar
sem foreldrar hans hvíla.
Sg nem hér staðar til að
reyna að muna. Og hvað man
ég? Þetta: á miðri þessari sorg-
arferð, þar sem hvert andartak
var slík kvöl, að mig verkjaði í
allan líkamann, varð mér litið
út um afturgluggann á bifreið-
inni og horfði á langa, hæg-
fara lest svartra bíla. En aftast
voru tveir station-bílar, og voru
þeir eldrauðir.
Eg þekkti þá strax. Annar
tilheyrði næstelzta syni mín-
um, og hinn átti ámóta æsku-
glaður tengdasonur minn. Mér
hafði brugðið, þegar þeir sýndu
mer þa stoltir, áður en ég fór
til Japan, og ég hafði gert mitt
bezta til að dást að þeim. Og
nú voru þeir þarna, glampandi
og lifandi í morgunsólinni. Sg
vissi hvers vegna, — hjarta
mitt leystist upp í tár og hlát-
ur. Hvílík vandræði og hvíiík
skömm, að hann gat ekki séð
þessa tvo skínandi rauðu stati-
on-bíla, sem heiðruðu hann í
þessu tilefni — hvað hann hefði
hlegið!
Af hverju segi ég „hefði“?
Það getur vel verið, að þú haf-
ir verið einhvers staffar hlæj-
andi. Þaff getur enn veriff. ÍSg
segi ekkert, fyrr en . . .
Presturinn okkar mælti fram
síðustu orð friðar og þakklætis.
Synir mínir og uppeldissonur
stóðu við hlið mér. Stúlkurnar
mínar gengu með mér út að
bílnum. Hversu erfið var ekki
þessi síðasta, þögla stund, þeg-
ar við urðum að skilja hann
eftir, og endurkoman til húss-
ins, sem nú var tómt. Um þetta
get ég ekki talað. Við aðrar
konur, sem eins er ástatt fyrir,
get ég einungis sagt, að frá siík-
um stundum er engin undan-
komuleið. Þær verður að lifa,
ekki einu sinni, heldur oft.
„Það batnar ekki,“ sagði vin-
kona mín, sem var ekkja. „Það
versnar". f hvert sinn, sem ég
kem til heimilis míns, er eins
og ég sé komin í höfn, en samt
er það ekki eins og það var og
verður aldrei eins. Það er ekki
satt, að maðurinn sé aldrei
einn.
Eftir nokkrar vikur fór ég að
skrifa. En ég gat það ekki. Hug-
ur minn var týndur í hugsun-
um og minningum og spurn-
ingum og vildi ekki leggja á sig
sköpun á lífi annars fólks. gg
þarfnaðist starfs, sem ég yrði
að leysa af hendi, starfs, sem
neyddi mig t.il að fara snemma
á fætur og fara á einhvern
ákveðinn stað. Eg ákvað að fara
aftur til Japan, til fiskiþorps-
ins Kitsu, þar sem verið var
að kvikmynda sögu mína.
Dagar okkar í Kitsu voru
hver öðrum líkir. Eina klukku-
stund á hverjum morgni, með-
an verið var að undirbúa kvik-
myndatöku dagsins, var engin
þörf fyrir mig. Það var þá, sem
ég gekk eftir ströndinni, fram-
hiá litlu steinbryggiunni og
upp bratta hæð. Það lágu stein-
þrep upp hæðina, og uppi á
henni var lítið, autt steinmust-
eri, sem áður hafði verið Shin-
tomusteri. Lágur veggur lá um-
hverfis það, og það var útsýni
ti'Jiafs, fjalla og himins.
Eg fann minn sérstaka stað
fyrir aftan musterið. Við brún-
ina á háum kletti var dæld.
Þangað fór ég á hverjum
morgni, og í þessari dæld hvíld-
ist ég, eins og ég lægi í örmum
hans. Hann og ég höfðum al-
drei verið þarna saman. Ekk-
ert samband var heldur okkar
í milli, — ég get ekki látizt
heyra rödd hans né heldur orð-
ið vör við nærveru hans. Það,
sem raunvreulega gerðist eftir
því, sem dagar liðu, var að
djúpur friður færðist yfir mig.
Þessi hlýja klettahvíla, sem ég
lá í, svalur vindur af hafi,
óendanlega blár himinn, hvj't
ský á siglingu, þytur í trjám,
er svignuðu yfir höfði mér, —
ég varð hluti af þessu öllu.
Þá uppgötvaði ég, að nokkur
hluti af friði dagsins varð eftir
til kvöldsins. Smám saman
varð ég sterkari. 'Ég veit ekki,
hvernig á þessum bata stóð. É'g
bað ekki, ef bæn er fólgin í
orðum, óskum eða leit. Ef skýra
þarf það, sem gerðist, er það
einfaldlega, að ég gaf mig full-
komlega á vald alheiminum,
sem ég ekki skil, en veit, að er
óendanlegur og fagur, langt
umfram skilning minn.
Eitt kvöldið, þegar ég opn-
aði gluggann minn, sendi ég
dulda ástarkveðju út í geim-
inn. Hvar sem hann er, þá
heyrði hann hana, eða það
dreymdi mig, því að djúpur
friður settist að í hjarta mínu.
☆
Hrúts- Nauts-
merk,ð merkiS JyÉ
20. april JlÍÍjl* 21 a p r í 1 —
2i maí mCj
Öfundssjúkir kunn- Ef þú gætir ekki ítr-
ingjar, sem þú reiknar ustu varkárni, áttu á
alls ekki með, munu hættu að lenda í fé-
reyna að spilla ham- lagsskap, sem verður
ingju þinni. Vertu ekki þér að falli. Vertu á
opinskár, og láttu ekki verði gagnvart falsvin-
of marga fylgjast með um og mönnum. sem
árangri þínum í bar- bera ekki hag þinn
áttunni að settu marki. fyrir brjósti.
Tvíbura-
merkiS
22. maí-
21. júní
Verkefni, sem þú vinn-
ur að um þessar
mundir, gefur ekki
eins mikið í aðra hönd
og þú hefur gert ráð
fyrir. Hins vegar hefur
það mjög góð og
þroskandi áhrif á þig,
svo að þú skalt ekki
iðrast þess.
Krabba-
merkið
22. júní—
23. júlí
Þú verður að temja
þér meiri sparsemi,
svo að þú sóir ekki
öllu sem þú átt. Vertu
ekki of hvikull og rót-
laus. Reyndu að þroska
sjálfan þig og gerðu
allt sem þú getur til
að auka sjálfstæði
þitt.
Ljóns-
merkið
24. júlí—
24. ágúst
Þú átt eftir að ganga í
gegnum nokkrar eld-
raunir, áður en þú
nærð marki þínu. Þú
ert lukkunnar pamfíll,
og margt verður þér til
bjargar. Vertu ekki of
kröfuharður við þann,
sem þér þykir vænzt
um.
Meyjar-
merkið
24. ágúst-
23. sept.
1
Líttu ekki öfundarauc
um á velgengni kunr
ingjanna, því að þú
getur öðlazt hið sam
sjálfur Þú færð nýtt
verkefni til úrlausnar
vikunni. Það gæti orð
ið til þess, að þú eign
ast nýtt áhugamál.
Vogar-
merkið
24. sept,-
23. okt.
Þú færð skemmtilega
hugmynd, sem þú
skalt flýta þér að
framkvæma. Konur
ættu að varast allt
óhóf og gæta fjármun-
anna vel. Laugardagur-
inn mun verða lang-
bezti dagur vikunnar.
Dreka-
merkið
24. okt.-
22. nóv.
Framkvæmdir þínar,
sem þú hélzt að yrðu
gróðavegur, renna því
miður nær alveg út í
sandinn. Veldu þér
trúnaðarmann, sem þú
treystir fullkomlega,
og hefur áhuga á
málinu.
Bogmanns-
merkið
23. nóv,—
21. des.
Farðu ekki að ráðum
þeirra, sem kynnu að
reyna að fá þig til að
skipta um lífsstarf og
telja þér trú um, að
auður og metorð bíði
þín á öðrum vettvangi.
Þú ert á réttri hillu í
lífinu.
Stein-
geitar-
merkið
22. des.—
20. jan.
Þú skalt leita til vina
þinna um aðstoð og
uppörvun því að þú
átt einhverja erfiðleika
i vændum. Láttu ekki
undan sjálfsmeðaumk-
un og ótta. Reyndu að
vera kátur og hress,
þegar aðrir sjá til.
Vatnsbera-
merkið
21. jan.—
19. feb.
Maður, sem viðriðinn
er stjórnmál eða mik-
inn lærdóm, hefur vel-
gengni þína í höndum
sér. Gættu þess að
spilla ekki sambandi
þínu við þennan mann
með of mikilli til-
ætlunarsemi.
Fiska-
merkið
20. feb.
20. marz
Vendu þig af að trúa
öðrum of vel og forð-
astu skeytingarleysi
um smáatriðin. Þau
geta orðið að kjarna
málsins áður en varir.
Þú munt eiga við erf-
iðleika að stríða, en
það rofar til bráðlega.
48 VIKAN 2. TBL.