Vikan

Útgáva

Vikan - 29.03.1973, Síða 6

Vikan - 29.03.1973, Síða 6
SÍÐAN SÍÐAST BRUÐURIN GRÉT AF HAMINGJU Það er hægt að gráta af fleiru en sorg og það kom fyrir leikkonuna Juliet Kempson, hún grét af hamingju, þegar hún kom út úr kirkjunni, eftir hjóna- vígslu sína, en hún giftist ungum lög- fræðingi, sem heitir Nicholas Morris. Sem betur fór, var Rachel frænka hennar viðstödd og gat huggað brúð- ina, eða komið henni til að brosa af hamingju. Þessi Rachel frænka henn- ar, er móðir systranna Vanessu og Lynn Redgrave. SONARSYNIR TOLSTOJS Þessir bræður bera mjög frægt nafn, þeir eru nefnilega sonarsynir Leo Tol- stojs og eru búsettir í Svíþjóð. Hér sjást þeir fyrir framan ættaróðalið Halmbyboda. Þeir heita Nikita og Paul Tolstoj. Það er rómantísk saga að baki þess að sonarsynir hins fræga rúss- neska skálds eru búsettir í Svíþjóð. Sonur Leo Tolstojs, sem líka hét Leo, kom til lækninga í Svíþjóð, nán- ar tiltekið til hins fræga læknis Ernst Westerlund. Þar kynntist hann dóttur læknisins, sem hét Dora. Það var áat við fyrstu sýn, þau giftu sig og fóru aftur til Rússlands, þar sem þau eign- uðust níu börn og eru fimm þeirra enn á lífi. Eftir uppreisnina í Rússlandi, árið 1917, hvarf fjölskyldan til Sví- þjóðar og settist að á ættaróðali Doru, Halmbyboda. Elzti bróðirinn, Paul, sem nú er sjötíu og tveggja ára, býr ennþá í aðalbyggingunni. í gulu húsi, rétt hjá, býr yngri bróðir hans Nikita, sem er sjötugur. Við segjum síðar frá ást- arævintýri hans, sem ekki er síður rómantískt en skáldsögur afans. Það hefur verið mikið um það deilt hvort skáldsága Tolstojs, Stríð og frið- ur, sé ættarsaga hans. Bræðurnir Paul og Nikita draga það ekki í efa. Það eru meira að segja sömu nöfnin. Aðal- persónan í bókinni, Ilya Andreievitch Rostov á margt sameiginlegt með afa Tolstojs, sem hét Ilya Andreievitch Tolstoj. Nú er búið að gera sjónvarps- þætti eftir skáldsögu Tolstojs, Stríð og friður, og farið að sýna þá í Englandi. Þeir hafa hlotið sörhu vinsældir og Ashton-fjölskyldan og Saga Forsyte- ættarinnar. Vonandi fáum við líka að sjá. þessa þætti. MUNA PRINSESSA MÁ GIFTA SIG Fjórum árum eftir að Hussein konung- ur í Jordaniu skildi við fyrstu konu sína, kvæntist hann ensku stúlkunni Toni Gardiner, sem síðan var kölluð Muna prinsessa. Eins og kunnugt er, hefur hann nú fengið sér ennþá eina konu og skilið við Munu. Það hefur verið sagt að hún sé illa stödd, að því leyti að hún megi ekki gifta sig aftur, en Hussein segir að það sé ekki rétt, hún megi gifta sig aftur, hverjum sem hún vill. Hér á myndinni er Muna með fjögur kóngabörnin sín, en þau hafa ekki rétt til ríkiserfða. DIANA ROSS er nú erðin tuttugu og átta ára. Hún var einu sinni fyrirliði söngtríósins „Supremes“ og síðar einsöngvari. Nú er það haft fyrir satt að hún hafi ver- ið tilnefnd til Oscarsverðlauna fyrir leik sinn í kvikmyndinni „Lady Sings the Blues“, en það er kvikmynd sem gerð er um ævi söngkonunnar Billie Holiday. Ef Diana Ross fær Oscars- verðlaun, þá er það í fyrsta sinn, sem hörundsdökk kona fær þau verðlaun. Sidney Poitier hlaut þessi verðlaun fyrir níu árum og hann er sá fyrsti hörundsdökkra karlmanna.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.