Vikan

Issue

Vikan - 29.03.1973, Page 26

Vikan - 29.03.1973, Page 26
Fermingarstúlka viö veizluborðið sitt. Ljósm.: Stúdió Guðmundar HÁTÍÐ HINNA * Fermingin er ein af þeim siðvenjum, sem árlega setja vissan svip á okkar þjóðfélag, sem og trúlega flest þjóðfélög önnur, er játa kristni. Nú fer i hönd sú tið, er fermingar fara einkum fram, þegar fermingarbörnin raða sér upp fyrir framan altarið i kyrtlunum sinum hvitu. Það var séra Jón M. Guðjónsson, sóknarprestur á Akranesi, sem fyrstur tók upp þann sið að láta börnin klæðast hvitum kyrtlum við ferminguna. Það er fallegur siður og smekklegur. Áður gátu ,,fermingarfötin” vitaskuld verið mismunandi að iburði eftir efnum og ástæðum foreldra, og það valdið sárindum hjá þeim, sem við litil efni bjuggu og urðu af þeirri orsök að spara skartið á sig og sina. Orðið ferming er dregið af latnesku orði, sem þýðir staðfesting. í Kristinni trúfræði, sem nú er kennd börnum undir ferminguna, er sú staðfesting útlögð þannig: Að Guð stendur við það, sem hann lofaði, þegar við vorum skirð, að söfnuðurinn hefur nú kennt okkur allt það þýðingarmesta um trú okkar, að við, sem fermumst, ætlum nú að staðfesta vilja foreldra okkar, þegar við vorum skirð, og halda 26 VIKAN 13.TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.