Vikan


Vikan - 13.06.1974, Blaðsíða 26

Vikan - 13.06.1974, Blaðsíða 26
STALDRAÐ VIÐ Á ÞJÓÐHÁTÍÐARÁRI 0 Ragnhildur Helgadóttir fyrrverandi alþingismaður. 1. Stofnun lýöveldis á Þingvöllum 17. júní 1944. Þaö var lokasigurinn i þeirri baráttu, sem hinir djörfustu og beztu menn höföu lagt stolt sitt og starf I. Þaö starf haföi fært okkur endurreisn Alþingis, heimastjórn og sam- bandslögin 1918. Stjórn hins sjálfstæöa, fs- lenzka rikis vildu menn reisa á reglum þing- ræöis og lýöræöis. Meö stofnun lýöveldis lauk aldalöngu ófrelsi. Þeim atburöi fagnaði öll þjóðin af heilum hug og batt við hann hinar björtustu vonir. 2. Þessu er vandsvarað, þvi aö ýnvs skeiö ts- landssögunnar eru i hugum nútimamanna fremur tengd hinni sárustu sorg en mann- legri gleöi. Hefur stundum hver sorgarat- buröurinn rekiö annan meö hinum hrikaleg- ustu afleiöingum. Þó staldra ég lengst viö litiö atvik, bundiö vanþekkingu og vangá, sem varð til þess aö valda miklum mannfjölda sárri sorg á skömmum tima. Meö fataböggliúr skipi barst svarti dauði til landsins árið 1402 og felldi þriðjung þjóöarinnar. lslendingar bjuggu um aldir aö þeim hnekki, sem þeir þá biöu. Ef þekking manna heföi veriö meiri og aö- gát, þefði mátt afstýra þessu böli. Þeim mun sorglegra var þaö. 3. Ótrúlegt er, hve hin mesta gæfa getur oröiö sjálfsögð i augum þess, er hennar nýtur, og hve fljótt kann aö fyrnast yfir, að erfitt var að afla hennar. Einmitt þetta er þó vlsasti veg- urinn til aö glata þvl, sem unnizt hefur. Sjálfstæði, þingræði, lýðræði, öryggi — allt gæti þetta glatazt fyrir vangá eða gleymsku. islandssagan leggur skyldu á herðar þeim, sem búa á alfrjálsu islandi. Höfuöskyldan er aö sjá til þess, að vonirnar, sem bundnar voru við stofnun lýöveldis, séu sifellt aö ræt- ast. Svo veröur, ef islendingar (bera gæfu til þess aö bregðast viö sérhverjum vanda af djörfung og drengskap og verjast hugsanleg- um ytri eða innri hættum með mannlegri þekkingu og aögát. Unga fólkiö á islandi i dag ætti að vera vel I stakkinn búiö til þess. Vilborg Harðardóttir blaðamaður. 1. Þegar Einar Þveræingur sameinaði is- lendinga um að neita Noregskonungi um Grimscy. 2. Þegar 56 þúsund manns skrifuöu undir bænaskrá Varins lands um áframhaldandi hersetu. Mér finnst það jafnvel enn ömur- legra en þegar island gekk I Nató. 3. Bæði og. Það verður sennilega alltaf á- kveöinn hluti, sem varla getur talist islend- ingar, eins og Guömundur riki á Mööruvöll- um og forsvarsmenn Varins lands. Hins veg- ar verður vonandi alltaf stór hluti þjóöarinn- ar sem gerir það að verkum að viö getum haldið áfram aö kallast islendingar. Sverrir Kristjánsson Sagnfræðingur. 1. Eg hygg að fegursti atburöur sögu okkar sé sá, aö island fannst og var numiö. En sá er • fyrstur nam island var maður er Flóki hét, Vilgeröarson Rauösokkunum okkar má vera þaö mikið gleöiefni, að hann var kenndur viö móöur sína, en ekki karl fööur slnn. t þanrl tima höfðu hafsiglingamenn engan leiöar- stein. En Flóki átti hrafna þrjá sér til aöstoö* ' ar er hann leitaöi landsins sem hann haföi fregnað að lægi langt noröur I Dumbshafi. En . nú skulum við gefa Landnámu oröið: Og er hann lét lausan hinn fyrsta fló sá aft- ur um stafn, annar fló I loft upp og aftur til skips, hinn þriöji fló fram um stafn I þá átt sem þeir fundu landið. Þá sagði Faxi skipverji hans: Þetta mun vcra mikið land sem vér höfum fundiö. Hér eru vatnföll stór. Sá mikli sjór heitir siðan Faxaflói. Þeir Flóki sigldu vestur yfir Breiöaf jörö og tóku land þar sem heitir Vatnsfjöröur viö Barðaströnd. Þá var fjöröurinn fullur af veiðiskap, og gáöu þeir eigi fyrir vciöum aö fá hcyjanna, og dó allt kvikfé þeirra um vet- urinn. Vor var heldur kalt. Þá gekk Flóki upp á fjall eitt hátt og sá norður yfir fjöliin fjörö- fullan af hafisum. Þvi kölluöu þeir landiö ts- land, sem þaö hefur slöan heitiö. Eg tel þetta mestu gleöistund Islen/.krat sögu, þvl að hér höfum við fyrir okkur fyrstæ ■nanninn sem reyndi aö nema þetta kalda og vandunna land. Aö vlsu varð hann fyrsti hor- kóngur islands og I þvi efni foufaöir margra'v kynslóöa Islenzkra bænda. Honum varösvo kulvist á tslandi, að hann sigldi heim tl| Noregs, En svo mjög heillaöist hann af land- inu, aö I elli sinni hvarf hann aftur til tslands og þar bar hann beinin. 2. Þctta er ansi erfið spurning. Skyldi saga nokkurrar þjóöar vera dapurlcgri en saga ís- lendinga? Eg hygg þó aö á höggstokknum I Skálholti hafi saga tslands risiö hæst, en eftir aö höfuð hinna norölenzku feöga voru laus frá bolnum hafi lægöin oröiö dýpst. 3. Já, vissulega. Nú er liðin sú tlö aö eg leit framtið tslands bláum augum. Eg er oröinn gamall maöur og mér finnast nú veöur öll vá-G lyndari en þá er eg var ungur. Bölsýni mitt/ stafar þó ekki einungis af elli, heldur af þeim nýstárlegu viöfangscfnum sem hafa borizt okkur tslendingum á hendur hin siðustu ár. Viö höfum þvl miöur ekki veriö þeir menn aö leysa þau sem skyldi. ‘ Við tslendingar erum I miklum vanda staddir. Sennilega erum viö háöari umhverfi nu en flestar aörar þjóöir. Viö erum bæði svo fáir og smáir og þvi er þaö mikill vandi aö vera islendingur. Okkur er búinn sá háski aö hverfa I veraldarhafið mikia. En einu meg-V^ um viö aldrei gleyma: sérleik okkar, þvl þjóölega einstaklingscðli, sem hafiö, fjar- lægöin og himininn hafa gefiö okkur I tannfé. _> En kviöbogi minn og áhyggja um framtlð^ okkar eru ekki burtdin viö island eitt, heldur/%, viö hitt, aö mannkyniö sjálft kunni að fará " sér aö voöa. Viö megum aldrei gleyma þvl, . , aö þrátt fyrir islenzkt sjálfstolt eruln viö aö- ' eins litið blað á hinum mikla metöi mann-*'; eskjunnar á þessari jörö. f, ■ ►Í’J- Margrét Indriðadóttir fréttastjóri 1.—2 Dapurlegasti atburöur ís- landssögunnar er vitanlcga, þeg- ar islendingar glutruöu niöur sjálfstæöi sinu og hinn gleðilegasti, þegar þeir ööluöust þaö afiur i áföngum — og náöi fullnaöi með lýöveldisstofnun 1944. 3. Nei. Ég trúi þvl aö islendingar hafi manndóm og sjálfsviröingu, þegar á reynir og láti ekki tröll taka sig. Þroskaleikföng, barnabækur. Sendum i póstkröfu um allt land. VÖLUSKRÍN, Laugavegi 27, simi 15135. ELNA SUPERMATIC. Smíöuö af svissneskri nákvæmni og sterk, öll úr málmi, engir plasttakkar. ELNA SUPERMATIC er alltaf ný. Allar tækninýjungar koma aö sömu notum í eldri vélum sem yngri. ELNA SUPERMATIC ræöur jafn vei viö prjónles og teygju- efni sem vefnaö, og þaö er sérlega auövelt aö læra á Elna Supermatic. ELNA SUPERMATIC er auóvelt aó kaupa. Greiösluskilmálar eru svo góöir, aö andviröi hennar má auöveldlega spara meö saumaskap áóur en afborgunum lýkur. 5 ára ábyrgö. Góó þjónusta. tUUeUaldi AUSTURS7RÆTI SÍMI 14376 24. TBL. VIKAN 27

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.