Vikan - 13.06.1974, Blaðsíða 28
Aldurinn hefur mikiö að segja á
okkar dögum. Félagslegu vanda-
málin, sem gamalt fólk verður að
horfast i augu við, eru mörg.
Þetta á við bæði um konur og
karlmenn, en þó sérstaklega um
konur.
Hvergi i heiminum eru vanda-
mál gamla fólksins meiri en hér á
Norðurlöndum. Og þrátt fyrir allt
talið um jafnrétti, þá eru til
þættir, sem hafa meira að segja
en kyn, tekjur og menntun. Og
þessir félagslegur þættir setja oft
skörp mörk milli félagslegra
hóþa.
Þvi er ofthaldið fram, að aldur-
inn skipti engu máli, heldur
aðeins andlegt og llkamlegt
atgervi. Vitaskulder þetta rétt —
svo langt sem það nær. En óttinn
við ellina liggur alls staðar i
leyni, þegar fólk er farið að reskj-
ast. Þennan ótta verðum við að
hjálpast að við að uppræta.
Georg Porjé prófessor og
læknir viö Södersjúkrahúsið I
Stokkhólmi hefur rannsakað fólk
á öllum aldri með þaö i huga, að
kanna, hvenær ellin fari að setja
mark sitt á einstaklinginn og
hann hefur þetta að segja:
— Þaö er óhætt að fullyrða, að
milli fertugs og fimmtugs eru
konur gæddar mestu andlegu
þreki og greind.
Þetta telur prófessor Porjé sig
hafa sannað með rannsóknum
sinum. Og það er engin ástæða til
þess að taka ekki fyllsta tillit til
þessarar staðreyndar. En
margar konur taka of mikið mark
á aldursfordómum umhverfisins
og gleyma þvi, sem er hvað
mikilvægast: Að sjá um, að
likaminn sé i jafn góöu ástandi og
sálin.
Prófessor Porjé eyöir við og við
átta dögum á heilsuhæli utan við
Ludvika. Þar neytir hann sér-
stakrar fæðu og stundar likams-
rækt af kappi. Georg Porjé segir,
að enginn megi fara á mis við þá
gleði, sem er samfara þvi að
halda likamanum i góðu ásig-
komulagi með likamsrækt.
— Heilbrigður mannslikami
þarf á hreyfingu að halda. Og það
er aldrei of seint aö byrja. Það
veit ég af eigin reynslu. Ég
stundaði llkamsrækt, þegar ég
var ungur, en svo hætti ég þvi.
Þar kom, aö mér fór að liöa verr.
Um fimmtugsaldur ákvað ég að
hefja likamsrækt aö nýju og vita,
hvort mér tækist ekki að ná mér
vel upp likamlega. Og það tókst
með ágætum.
ER FERTUGRI
KONUNNIFÆRT
Þegar amma varð fertug, var hún
orðin gömul og virðuleg frú. En kona,
sem nú verður fertug, er að hefja eitt
bezta og skemmtilegasta tímabil
ævinnar. Það hefur verið sannað, að
konur eru gæddar mestu andlegu þreki
og greind á árunum milli fertugs og
fimmtugs. Þrátt fyrir það eru margar
konur hræddar við að eldast. Það er
kominn timi til að þær hætti þvi.
Það er algeng afsökun, þegar
fólk er komiö á fimmtugsaldur-
inn, að það þoli ekki miklar
likamsæfingar og áreynslu. En
það er ekki rétt. Prófessor Porje
segir:
— Þegar kona er oröin fertug,
heldur hún oft, að nú fari að halla
undan fæti hjá henni. En sú er
ekki raunin. Kannski eru árin
eftir fertugt bezta timabilið i ævi
konunnar. Hún er enn gædd fullu
likamlegu þreki og andlega hefur
hún aldrei veriö betur á sig
komin. Og þess vegna er engin
ástæða fyrir konur á þessum aldri
að vera niðurdregnar. Þær eiga
mörg dásamleg ár framundan.
Það er auðvelt fyrir karlmann
að halda þessu 'fram, kann
einhver að segja. Hann veit ekki,
hvað breytingarskeiöiö getur
verið erfitt. En prófessor Porjé
leggur mikla áherzlu á, að
breytingarskeiðiö sé fullkomlega
eðlilegt ástand.
— Eiginlega ættu flestar konur
ekki að verða þess varar. Það ætti
að liða hjá án alls ótta, þreytu,
höfuðverkjakasta og svima. Þaö
er ekkert óeðlilegt við þaö, sem er
að gerast I likama konunnar á
þessuskeiði. Hormónastarfsemin
breytist, svo að konan hættir að
vera frjó.
Auk þess er auðvelt að vinna
bug á minni háttar óþægindum,
sem upp kunna að koma, með
hormónagjöf. Og margar konur
fara aö hafa áhyggjur af
breytingarskeiðinu allt of
snemma. Auðvitað eru konur,
sem verða einkennanna varar
þegar um 45 ára aldur, en margar
konur hafa reglulegar tiöir til
fimmtugs og jafnvel til 55 ára
aldurs.
En draumurinn um einhverja
óbrigðula aðferö til þess að yngja
upp fólk er alltaf fyrir hendi. Og
helzt, aö aðferöin gefi fólki „eilift
lif”.
A öllum timum hafa verið uppi
menn, sem þótzt hafa fundiö upp
lifselexir. Elexirinn hefur verið
mismunandi eftir tlmanum.
Rómverjar önduðu aö sér frá-
öndunungra stúlkna. Og stundum
hafa maðkar eöa fuglakjöt veriö
eina lausnin. Einu sinni þótti
ráðlegast að drekka blóð
gladiatóranna. En i rauninni er
ekki til nema ein yngingaraöferö.
— Njóttu þess, sem lifiö hefur
upp á aö bjóöa. Veldu þér áhuga-
mál, sem endast þér fram eftir
öllum aldri. Reyndu aö þyngjast
ekki um of og stundaöu likamsæf-
ingar. Þá hefur þú alla möguleika
til þess aö vera ung(ur) ævina á
enda.
28 VIKAN 24. TBL.