Vikan - 13.06.1974, Blaðsíða 9
ÞAÐ VERÐUR ERFITT AÐ KVEÐJA
Hvers helduröu aö þú saknir helzt héðan? —
Ekki veðurfarsins, segir hún og brosir hógværlega
að vanda, — en kannski hreina loftsins. Nei, það
þýðir ekki að ætla sér að telja upp allt, sem ég
mun saknahéöan,það er svo margt, starfið,fólkið,
sem ég hef kynnzt. Það verður erfitt að kveðja.”
Þetta má m.a. lesa i viðtali við Maj-Britt Imn-
ander, forstjóra Norræna hússins, sem birt er á
bls. 4.
ÞAÐ DÝRMÆTASTA A JÖRÐINNI
„Við tslendingar eigum þaö, sem nú er talið dýr-
mætast á jöröinni: hreint loft, tært vatn og tiltölu-
lega óspjallað land. Það er ósk min, að þjóðinni
auönist að greina kjarnann frá hisminu, að hún
meti hag þjóðarheildarinnar ofar skyndihags-
munum einstakra hópa. Ef henni auönast það
getum við litið björtum augum til framtiðar-
innar.” Þannig hljóða niðurlagsorð Gerðar Stein-
þórsdóttur, en hún er ein af sjö, sem svara
spurningum Vikunnar i tilefni af þjóðhátiðinni.
Sjá bls. 24.
30 ARA TRÚLOFUN
„Hann hefur nú um 30 ára skeið verið trúlofaður
henni Andrésinu sinni, án þess að samband þeirra
hafi þokazt um svo mikið sem fjöðursbreidd i
áttina að eilitið holdlegra sambandi. Sú skoðun er
orðin allútbreidd, að dansinn i kringum gullkálf
Jóakiips hafi gert aumingja Andrés náttúrulaus-
an, og er þetta atriði rætt af fullri alvöru meðal
sálfræðinga.” Sjá afmælisgrein um Andrés önd á
bls. 44.
RITSTJORA
SKIPTI
Þær breytingar hafa orðið á ritstjórn Vikunnar, að Gylfi Gröndal,
sem ritstýrt hefur blaðinu undanfarin ár, lét af störfum 30. april s.l.
Gylfi tók við ritstjórástarfi af Sigurði Hreiðari 1. október 1969, en
gerist nú ritstjóri Samvinnunnar.
Blaðstjórn og starfsmenn Vikunnar þakka Gylfa vel unnin störf og
ánægjulega samvinnu og óska honum allra heilla i nýju starfi.
Kristin Halldórsdóttir hefur tekið við störfum sem ritstjóri
Vikunnar. Hún var i þrjú ár blaðamaður við Timann, ritstýrði Visi i
vikulokin, meðan hann kom út, en hefur starfað sem blaðamaður á
Vikunni siðan 1972.
VIKAN Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Kristín Halldórsdóttir. Blaða-
rhenn: Matthildur Edwald, Trausti Ólafsson. Útlitsteikning: Þorbergur
Kristinsson. Auglýsingastjóri: Sigríður Olafsdóttir. Ritstjórn, auglýsing-
ar, afgreiðsla og dreif ing í Síðumúla 12. Simar 35320 — 35323. Pósthólf 533.
Verð í lausasölu kr. 150.00. Áskriftarverð kr. 1.500.00 fyrir 13 tölublöð árs-
f jórðungslega eða 2.925.00 kr. f yrir 26 tölublöð hálfsárslega. Áskriftarverð
greiðist fyrirfram. Gjalddagar: nóvember, febrúar, maí, ágúst.
Vikan
24. tbls. 36. árg.
13. júní 1974
BLS. GREINAR
7 Ávarp forseta Islands, dr.
Kristjáns Eldjárns
12 ,, Liljan f rá Jersey” — sem lék sér
að prinsinum frá Wales
28 Allt er fertugri konunni fært
30 Ég rændi börnunum mínum, sönn
frásögn
44 Andrés Önd fertugur
VIDToL:
4 Eðli íslendinga mótast af veður-
farinu, rætt við Maj-Britt
Imnander, forstjóra Norræna
hússins
24 Staldrað við á þjóðhátíðarári,
spurningar og svör sjö
þjóðkunnra manna
SOGUR:
14 Heimsókn Teresu, smásaga eftir
Margrethe Hold
20 Gata í London, framhaldssaga,
sjötti hluti
34 Sumri hallar, framhaldsaga, ní-
undi hluti
YMISLEGT:
2 Kort yfir hátiðahöld á
þjóðhátíðarári
10 Póstur
17 3M-músík með meiru, umsjón:
Edvard Sverrisson
FORSiDAN
Þingvellir eru sannarlega einhver
fegursti og jafnframt sögufrægasti
staður okkar ágæta lands, sem Is-
lendingar hafa nú byggt í ellefu ald-
ir, eins og rækilega er minnzt á þessu
ári. Vikan helgar þjóðhátíðarárinu
hluta þessa blaðs, og því þótti vel við
hæfi að prýða forsíðuna með þessari
sérstæðu mynd Rafns Hafnfjörð.
Hún sýnir einmitt það helzta, sem
allir vilja sjá og þekkja, öxará með
Drekkingarhyl, Almannagjá og
vellina, Þingvallabæinn og kirkjuna,
Valhöll og vatnið sjálft með Sandey
og hæðirnar í Grafningnum í baksýn.
24. TBL. VIKAN 9