Vikan - 13.06.1974, Blaðsíða 13
A dögum Lily Langtry fóru
do 11 a r a p r ins e ss ur n a r frá
Anieriku aö vekja áhuga hefðar-
fólksins i Evrópu. Sargent
inálaAi þessa mynd, sem hann
kaliaði Gibsonstúlkuna, og hún er
dæmigerð dollaraprinsessa. Þær
þóttu góð konuefni ungum
evrópskum aðalsmönnum.
Tizkan var finleg á dögum Lily
Langtry. Boidini málaði þessa
mynd af Marthe Bobesco prins-
essu. Hún var rithöfundur og gaf
út sina fyrstu bók átján ára að
aldri og hlaut verölaun frönsku
akademiunnar fyrir.
Alexandra prinsessa af Wales og
dóttir Kristjáns niunda Danakon-
ungs var geislandi persónuleiki.
Hún tók ævintýrum manns sins
með stökustu rósemi. Hún var
gædd miklum tónlistargáfum og
lauk doktorsprófi i tónlist frá há-
skólanum i Oxford. Hún átti mik-
inn þátt f að móta tízkuna á
Victoriutfmabilin.
Þegar Victoria drottning missti
heittelskaðan mann sinn, prins
Albert, lét hún sorgina og söknuð-
inn stjórna gerðum sinum svo
gersamlega, að allar skemmtanir
og lifsgleði voru úr sögunni við
hirðina. Victorianski strangleik-
inn og hátiðleikinn varð mjög
óvinsæll af yngri kynslóðinni,
sem átti erfitt með að umbera
hann. Þaö var þvi ekki að undra,
að léttleikinn yfir gleöskapnum
og gáskanum, sem smám saman
fór að bera meira á i kringum Ed-
ward prins af Wales, yrði þjóðinni
gleðiefni. Edward prins af Wales,
sem seinna varð Edward sjöundi
kunni vel að meta heimsins lysti-
semdir, fagrar konur, góða hesta
og hann og kunningjar hans voru
valdir að mörgum angursstund-
um gömlu drottningarinnar. En
þjóðin kunni vel að meta hann.
Hann var henni að skapi, glaður
og örlyndur og gæddur miklum
töfrum, sem hann sýndi jafnt há-
um sem lágum. Alexandra kona
hans, sem var dóttir Kristjáns ni-
unda Danakonungs, var einnig
litrikur persónuleiki. Ævintýrum
manns sins tók hún með að-
dáunarverðri ró. Hún var mjög
músikölsk og lauk doktorsprófi i
tónlist frá háskólanum i Oxford.
Hún mótaði kventizku, sem hélzt
áratugum saman — uppgreitt
Alexöndruhárið og hálsböndin,
sem brezkar konur tóku eftir
henni, allt frá heföarfrúnum til
verksmiðjustúlknanna.
Sú kona, sem hvaö lengst dró aö
sér athygli prins Edwards, var
liklega Lily Langtry. Allur
heimurinn fylgdist ákafur með
uppátækjum þessarar fögru
konu. Hún var prestsdóttir frá
Jersey og átti fjölda systkina.
Hún var skirð Emilie, en hún
breytti sjálf nafni sinu i Lily.
„Liljan frá Jersey” var hún
seinna kölluð.
Sautján ára að aldri átti þessi
fagra stúlka eldheitt ástarævin-
týri með manni I heimasveit
sinni. Hans æruverðugheit,
sóknarpresturinn og faðir Emilie,
lét skilja elskendurna að til þess
að velsæminu væri fullnægt.
En dóttirin leit ekki svo á, að
hún ætti að lifa einhverju mein-
lætalifi. Þvert á móti. Hún varð
svolitið kaldlynd til þess að dylja
vonbrigöi sin vegna ástarævin-
týrisins, sem faöir hennar hafði
spillt. En hún vissi orðið, hve fög-
ur hún var og hvaða valdi hún gat
náð á karlmönnum með fegurö
sinni og var ákveðin i að kasta sér
út i allar þær lystisemdir, sem
lifið hafði upp á að bjóöa. Og
fyrsta veiðin hennar var ekki af
lakara taginu. Hún giftist Ed-
ward Langtry, syni auðugs skipa-
eiganda frá Belfast.
En iiljunni frá Jersey nægði
ekki að sitja og láta ljós sitt skina
úti á landsbyggðinni. Hún fékk
mann sinn til þess að kaupa
handa sér hús i London og þar fór
hún strax að láta á sér bera i
samkvæmislifinu. En hún setti
markið hátt. Hún vildi vera tek-
ir i „The inner circle”, hópinn,
sem prinsinn af Wales skemmti
sér með. Edward var hreykinn af
þvi, hve kona hans vakti mikla at-
Framhald á bls. 36
24.TBL. VIKAN 13