Vikan - 15.08.1974, Page 14
a&rar persónur frá þessum tima.
Þaö er svalt i steingöngunum I
Tower, ekki sizt i Bló&turni, sem
talinn er draga nafn sitt af þvi aö
hann var notaöur sem likhús. Það
var I Blóöturni, sem Sir Thomas
af Brackenbury myrti tvo unga
frændur sina. Og það er ekki ýkja
sjaldgæft, aö þessir tveir litlu
prinsar séu á sveimi þarna i turn-
ingum.
En þaö eru margar fleiri vofur i
þessum turni. Edward V konung-
ur og Richard af York leiðast um
turninn klæddir hvitum skikkjum.
Já, og meira aö segja sjálfur
Thomas Becket, sem myrtur var
áriö 1170, hefur sézt á sveimi i
kringum Tower.
Bló&ugir glæpir sögunnar, sem
framdir hafa verið i Tower, ollu
jaröskjálftum, þegar gera átti við
bygginguna. Múrveggirnir
hrundu hvaö eftir annaö, án þess
nokkur kynni skýringu á þvi,
hvaö olli hruni þeirra.
Hvíti turninn á sér ekki siður
geigvænlega sögu, þó að nafnið
hljómi kannski skár. Þar voru
prinsar og prinsessur, greifar og
barónar pindir og hálshöggnir.
En þann dag I dag má sjá farið
eftir öxina, sem hjó höfuöiö
af hópi skozkra jarla. 1 her-
berginu viö hliöina er safn
pyndingatækja, sem notuö
voru I Tower öldum saman.
Þaö gerist oft, aö úr þessu
herhergi heyrast stunur og óp og
lágvær grátur.
Anne Boleyn gengur aftur á
mörgum stööum.
Anne Boleyn eyddi siöustu nótt
sinni hér á jörðu I þeim hluta
Tower, sem kallaður er The
Queens House. Vofa hennar hefur
sézt renna undir þröskuldinn og
svífa i átt að aftökupallinum á
Tower Green, þar sem hún var
hálshöggin/ sá varðmaöur nokkur
þessa skelfilegu sýn. Hann hróp-
aöi á afturgönguna, en fékk ekk-
ert svar. Þá reyndi hann aö stinga
hana meö byssustingnum sinum,
en stakk bara i loftiö. Veran nálg-
aöist hann stööugt. Þá geröi hann
sér allt i einu ljóst, að hann stóð
augliti til auglitis við afturgöngu
og féll i yfirliö. Vitaskuld er þaö
mikiö brot af konunglegum varð-
manni! Þess vegna var varö-
maöurinn fær&ur fyrir rétt og á-
kæröur um aö hafa sofiö á veröin-
um. En hann var sýknaöur, þegar
hann sagöi frá afturgöngu Anne
Boleyn. Margir höföu nefnilega
séö vofuna einmittá sömu slóöum
og varömaðurinn.
Annars er það algengara, að
fótatak Anne Boleyn heyrist. Og
stundum sézt hún inni I Tower, en
þá vantar á hana höfuðiö.
Henry Percy, jarl af Nort-
humberland, framdi
sjálfsmorö i Tower, og
þess vegna er afturganga hans
enn á sveimi uppi á múrnum. Sír
Walter Raleign er stundum á
vakki á sama stað. Hann sat
þrisvar sinnum I fangelsi i Tower.
Einu sinni fyrir aö hafa átt vin-
gott viö eina af hirödömum Elisa-
betar drottningar. Fangavist
hans þó stóö ekki lengi, en i
stjórnartlð James I var hann
dæmdur til dauöa. Dóminum var
breytt i ævilangt fangelsi og
Inni I blóöturni.
Við innganginn I Tower.
Raleigh var haldinn fanginn I
gluggalausum klefa, sem var
ekki nema 8x11 fet. Honum tókst
aö sleppa úr haldinu og fara i enn
eina langa siglingu, áður en hann
var tekinn af lifi I Tower árið 1618.
Henrik konungur VI var myrtur
framan við altarið i einum turn-
anna og gengur aftur i Tower.
Sama er að segja um gullgerðar-
manninn Raymond Lully, sem
var áhangandi djöfladýrkenda.
Greifynjan af Salisbury var
hálshöggin samkvæmt skipun
Henriks VII. Hún var dregin æp-
andi að grænu grasflötinni, þar
sem aftakan var framkvæmd. Og
enn þann dag i dag sér fólk hana
þarna og heyrir dauðaóp hennar.
Lafði Jane Grey, sem var drottn-
ing Englands I fáeinar vikur, var
einnig hálshöggin þarna. Auk
þess haföi hún staöiö I húsinu viö'
hliö aftökustaöarins og sá mann
sinn færðan úr fangelsinu og
þangað. Hún sá lika þegar
komiö var meö lík hans
frá aftökustaönum á börum
og bööullinn meö höfuöiö undir
handleggnum eins og þá var sið-
ur. Nokkru siðar fór hún sömu
leiö. Þess vegna sézt vofa hennar
oft standa við gluggann I litla
brúna húsinu viö hliðina á aftöku-
sta&num og horfa skelfdum aug-
um móti Green Hill.
Ameriska stúlkan sá aftökuna.
Ariö 1972 var gert mikið veður
út af þvi að niu ára gömul
amerisk stúlka sá aftöku Anne
Boleyn. Meðan leiðsögumaðurinn
sagöi frá þvi, sem gerzt hafði,
stóö hún grafkyrr og staröi. Þeg-
ar leiösögumaðurinn sagði, að
böðullinn væri með exi, hvislaði
stúlkan að móður sinni — nei,
hann notar sverð. Það kom Hka
heim og saman. Anne var ekki
hálshöggin með exi, heldur með
sveröi, þó að i mörgum alfræði-
söfnum standi, að aftakan hafi
verið framkvæmd með exi. Stúlk-
an var rannsökuð og það kom I
ljós, aö hún hafði engan sérstakan
áhuga á sögu og að hún haföi ekki
séö neina af brezku sjónvarps-
myndunum. Hún vissi tæpast
hver Anne Boleyn og Henrik VII
voru.
Aftökutækin og greftrunará-
höldin eru lika varðveitt I Tower.
Og viö sólsetur má næstum sjá
skugga geigvænlegrar exi, sem
svlfur yfir Tower.
*
14 VIKAN 33. TBL.