Vikan


Vikan - 15.08.1974, Page 29

Vikan - 15.08.1974, Page 29
% r. i Þetta var ekki venjulegt einvigi, eins og það var i gamla daga, þegar rispa með sverðsoddi réði úrslitum. Nei, þetta ein- vígi var nýtizkulegra og vopnin vél- vædd..... Klukkan 11.32 ók Mann fram úr tankbilnum. Hann var á vesturleið, til San Francisco. Siðustu tuttugu minút- urnar hafði hann hvorki mætt né ekið fram úr nokkru farartæki. Svo kom hann auga á þennan tankbil, sem erfiöaði upp brekku, þar sem vegurinn lá I ótal beygj- um. Þetta var geysistórt vega- tröll, með aftanivagni og hann reyndi ekki að aka fram úr, fyrr en hann var kominn upp á brekkubrúnina. Þegar hann sá tankbílinn vel í speglinum, sveigöi.hann inn á hægri akrein aftur. Mann horfði á landslagið fram undan. Háir bergásar svo langt sem augað eygði og grænir hólar á milli. Þjóðvegurinn lá beinn fram undan. Hann fór að hugsa um Ruth, hvað skyldi hún vera að gera núna. Börnin voru að sjálf- sögðu komin i skólann. Það hefði verið annað lif, að mega vera heima hjá fjölskyldunni, heldur en að fara i þessa söluferð. Þaö var ennþá margra klukkustunda akstur til San Francisco. Hann opnaöi fyrir útvarpið og raulaöi með og horfði rólega á veginn og hann hrökk við, þegar tankbillinn kom á eftir honum með miklum drunum og sveigði inn á hægri ak- rein, svo nálægt honum, að það sem dróst aftur af vagninum sóp- aði beinlinis götuna rétt fyrir framan nefið á honum og neyddi hann til að hemla i ofboði. Hver fjandinn gengur að þér? hugsaöi hann. Aftanivagninn var næstum þvi eins langur og sjálfur tankbillinn og þeirvoru á sex hjólum. Þetta var ábyggilega gömul drusla, tankarnir voru illa málaðir i silf- urlit og á þeim stóð meö eldrauð- um stöfum: Eldfimt. Þaö var sennilegt aö þessi náungi ætti bil- inn sjálfur. Mann leit á hraðamælinn. Hann hélt sinum niutiu milna hraða, svo tankbillinn hlaut að hafa farið langt fram úr hundrað, til að komast fram úr svona skyndi- lega. Þetta var eiginlega furðu- legt. Bflstjórar á svona farar- tækjum höfðu yfirleitt það orð á sér, að aka varlega? Tankbillinn spjó úr sér ofboðs- legum reykjarmekki og það var ljóst að honum yrði illt af meng- uninni, ef hann reyndi ekki að komast fram úr honum, það var alveg útilokað, aö aka rétt á eftir svona ófreskju — bezt að komast fram úr honum. Þegar hann ók fram hjá, reyndi hann að sjá þann sem sat við stýr- ið, en sá ekkert annað en vinstri hönd ökumannsins, stóra og dökka krumlu. Bflstjórinn gaf merki, langt og ærandi væl. Hvað skyldi það tákna? hugsaði Mann. Var þetta kveðja eða hót- un? Þetta óvenjulega gaul, kom honum til að lita I spegilinn. Hamingjan sanna, maðurinn var að gefa merki um að hann ætlaði að aka fram úr. Hvað gengur að manninum? hugsaði Mann. A þetta að verða kappakstur, ein- vlgi? Hann gretti sig, þegar hann fékk reykjarmökkinn aftur fram- an I sig og dró upp bilrúðuna. Þegar vegurinn lá beinn fram undan, jók hann aftur hraðann og sveigöi út á vinstri akrein. Tank- bfllinn gerði það sama og lokaði bókstaflega veginum. Mann hemlaði og fór aftur inn á hægri akrein. Þaðgerði tankbfllinn lika. Mann gat ekki Imyndaö sér, að maöurinn væri með vilja að loka veginum fyrirhonum. Hann beið i nokkrar minútur, felldi svo pil- una, til að gera honum ljóst, að hann ætlaði sér að aka fram úr, steig á bensingjöfina og sveigði út á hina akreinina. Bilstjórinn i tankbilnum lét ekki standa á sér, hann hélt fyrri hætti og lokaði veginum. Drottinn minn! hrópaði Mann upp yfir sig I vonleysi. Hann varð að beygja inn á hægri akrein aftur og tankbfllinn hélt sig beint fyrir framan hann. Mann hægði á sér. Já, hvað á ég að gera? hugsaði hann. Hann varð að vera kominn til San Fran- cisco á ákveðnum tima. ósjálfrátt beygöi hann til vinstri og honum til mikillar undrunar, stakk bilstjórinn hönd- inni út og veifaði honum að aka fram hjá. Hann jók hraðann. En I ofvæni hægði hann á sér og færði sig aftur til hægri fyrir aftan tankbilinn, á siðustu stundu, ann- ars heföi hann ekið beint á móti bláum fólksbil, sem kom með ofsahraða á móti. Mann hallaði sér fram á stýrið. Hjartað barðist I brjósti hans, svo hratt að hann fann sársaukasting. Guð hjálpi mér! hugsaði hann. Hann ætlaði að láta mig aka beint i dauöann! Hann ætlaði að láta okkur keyra saman! Þessi fábjáni hefur ekki eingöngu ætlað að myrða mig, heldur lika fólkið I hinum bilnum. Hvers vegna? Hann lokaði fyrir útvarpið. Glaðvær hljómlistin fór i taug- arnar á honum. Lengi vel ók hann rétt á eftir tankbilnum og honum var fariö að llða illa. Skyndilega datt honum i hug, að reyna að fara á bak við þessa skepnu og aka fram úr til hægri. Nei, það var útilokað. Bflstjórinn gæti hæglega ýtt honum út af veg- brúninni þar, ef hann vildi þaö við hafa, og Mann var ekki I neinum vafa að hann gerði það. Þaö setti að honum hroll. Há og brött brekka kom nú i ljós rétt fyrir framan þá. Sú brekka yrði ökumanninum i tankbflnum ábyggilega erfið, hann hlaut að verða að hægja á sér. Einhvers staðar i brekkunni gat verið, að hann fengi tækifæri með góöu móti, til að komast fram úr. Mann jók hraöann og ók svo nálægt drekanum eins og hann þorði. 1 miðri brekkunni var útskot. Hann steig bensinið i botn og beygði inn á vinstri kant. Tank- bfllinn tók að slaga til sömu hlið- ar. Mann beit á jaxlinn og stýrði á fleygiferö alveg út á vegarbrún- ina. Það iskraði I hjólbörðunum i mölinni, en svo var hann kominn út á malbikið aftur og fram fyrir tankbilinn. 1 augnabliks galsa, flautaöi Mann nokkuð lengi, eins og til að hrósa sigri. Hann þaut upp á hæðarbrúnina. Fagurt landslagið blasti við, sól- bjartir hólar og sléttur, svo langt sem augað eygði. Nokkrum minútum siðar ók hann fram hjá skilti. Það var auglýsingaspjald frá veitinga- staö, Chucks Café. Nei, takk, hann langaði ekki til að koma á þann stað, hugsaði hann. Óhugnanlegt en samt kunnug- legt hljóð kom honum til að lita i spegilinn. Jú, svo sannarlega, þarna var hann kominn, á fleygi- ; ferð niður brekkuna! Hann leit á hraðamælinn. Hann var rúmlega á niutiu! Það var ' eiginlega allt of mikill hraöi á þessum beygjum. En brjálæðing- urinn þarna fyrir aftan, hlaut að hafa ekið miklu hraðar, þvi að nú dró saman með þeim. Já, hann hlaut að vera brjálaður, hugsaði Mann. Hann kom auga á útskot rétt fyrir framan og ákvað að aka inn á það. Nú sá hann ekkert annað i speglinum en ógnvekjandi grind- ina framan á drekanum, hún fyllti bókstaflega út I spegilinn. Hann steig á bensingjöfina og það hvein ihjólböröunum, þegar hann tók næstu beygju, með það I huga, aö ef til vill gæti það komið mann- inum til að hægja á sér. Hann stundi hátt, þegar hann sá að svo var ekki, hann náöi beygjunni léttilega. Hann stýrði bflnum sin- um vel i næstu tvær beygjur, og svo beint niður á móti. Hraða- mælirinn var kominn upp i hundr- aö og tuttugu! Hann var ekki van- ur svona hröðum akstri! Útskotið flaug fram hjá. Hann gat ekki beygt út á það á þessum hraða, það hefði endað með skelf- ingu. Nú var tankbfllinn næstum bú- inn að ná honum. Hann drepur mig! hugsaði Mann i ofboöi, þeg- ar hann tók næstu beygju. Hann leit snöggvast i spegilinn, það var sama sagan, hann sá aðeins neðri hluta grindarinnar, svo nálægt var hann. Hann fann að afturhjól- in snertu varla jörðina, en eftir andartak fann hann að þau lögð- ust aftur eftir veginum. I nokkurri fjarlægð sá Mann nýja brekku og rétt fyrir neðan hana var húsið með skiltinu CHUCKS CAFÉ. Hann hemlaði snöggt og lét bil- inn æða inn á hlaðið fyrir framan veitingahúsiö. Billinn hallaðist, slöngvaöist sitt á hvaö og hjólin þeyttu upp möl og ryki. Hann var næstum búinn aö aka á kyrrstæð- an bil á hlaðinu og gat svo numiö staöar, aöeins tiu metrum frá dyrunum. Hann sat stundarkorn meö lok- uð augu. Hjartaö barðist eins og þrýstiloftshamar i brjósti hans. Hann átti erfitt um andardrátt. Efhannáttieftiraöfá hjartaslag, þá hlaut það að verða einmitt w núna. Eftir andartak, opnaði hann augun og þrýsti höndunum að hjartastað. Hjartslátturinn var ekki i rénun ennþá. Það var y

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.