Vikan - 15.08.1974, Síða 32
FYRIRSÆTUR I F
Það varö uppi fótur og fit á Kapri fyrii
nokkru, þegar margar af vinsælustu ljós-
myndafyrirsætum heims komu saman, til aö
keppa um, hver heföi mesta fegurö og reisn
til aö bera. Fyrir keppninni stóö Eileen Ford,
sem rekur þaö fyrirsætuumboö, sem mestrar
viröingar nýtur í heiminum I dag. Aöalstööv-
ar hennar eru f Bandaríkjunum, en stúlkur
hennar vinna um allan heim, en meöal
sttllknanna hennar er Maria Guömundsdótt-
ir.
Ljósmyndarar segja, aö enginn sé eins
naskur og EileenFordaö koma auga á þaö,
sem íallegt er og myndrænt i fari stúlku.
Meöal þeirra sem Eileen Ford hefur „upp-
götvaö” eru Elsa Martinelli og Suzy Parker.
Nýjasta uppgötvun hennar heitir Laureen
Hutton og er sagt aö hún hafi dýrasta andlit I
heiminum I dag, því hún tekur 100 þúsund
krónur á dag fyrir aö sitja fyrir á myndum.
Fyrirsætur komu hvaöanæva aö til Kaprí,
til aö taka þátt I þessari keppni, þvi til mikils
var aö vinna. Verölaunin voru 15 þúsund doll-
arar,eöa nær hálf önnur milljón islenzkra
króna. Sú sem hreppti hnossiö er dönsk,
Vibeke Traulsen, en hún var kjörin einróma.
Vibeke er 22 ára, 1.76 cm á hæö og málin eru
90-60-90. Um hana sagöi einn dómenda aö hún
gæti veriö fersk eins og nýútsprungin rós aö
morgni, en eins og tigin drottning aö kvöldi,
án þess aö hafa snyrtivörur sér til hjálpar.
Vibeke fékk strax tilboö um vinnu i New
York, en hún tók þvi ekki, þvi hún vill ekki
fara frá hrossi sfnu og unnusta. 1 staöinn
geröi hún samning viö franska blaöiö Marie-
Claire og tekjurnar af þeim samningi ætlar
hún aö nota ásamt verölaununum til aö koma
sér upp hesthúsi og skeiövelli.
Meðan Vibeke fór heim frá Kapri I sjöunda
himni var heldur þyngra yfir Galiu
Milowskaya. Hún hefur lengi veriö frægasta
ljósmyndafyrirsæta Sovétrikjanna, þótt hún
hafi reyndar fyrst og fremst unniö fyrir er-
lenda aöila, sem komu til Moskvu til aö taka
myndir, þvi sjálfum fannst löndum hennar
hún of horuö. Galia, sem er 27 ára, er ekkja
og þegar maöur hennar dó gat hún ekki hugs-
aö sér aö vera áfram I heimalandi sinu. Hún
hélt þaöan meö um 20 þúsund krónur i vasan-
um, en þeir peningar fuku fljótlega þegar hún
kom til Vesturlanda og I kynni viö tizkuverzl-
anir þar. Hún ákvaö aö byrja á aö freista
gæfunnar á Kapri, en gæfan vildi ekki veröa
á vegi hennar þar. Þaöan fór hún til Rómar,
þar sem hún fékk inni á heimili fyrir flótta-
fólk. Hún hefur þó alls ekki misst móöinn, þvf
hún hyggst fara til Bandarikjanna og er þess
fullviss, aö þar muni henni vegna vel—
Eileen Ford meö tveimur þátttakendanna.
Sigurvegarinn, Vibeke hin danska (önnur frá
hægri {efri röö) er hér i hópi nokkurra keppi-
nauta.
32 VIKAN 33. TBL.