Vikan - 24.10.1974, Qupperneq 16
Fáein æviatriði Casanova rifjuð upp með aðstoð
málarans Adolphe Chauvet.
Enginn var sem hann, margir vildu vera sem
hann. Hann var kvenhollur og kunni á kvenfólkið.
Hann var snjall i peningamálum. Hann unni ást-
inni og féll konum vel í geð. Dæmigerður glaum-
gosi.
Giacomo Casanova fæddist árið 1725 i Feneyj-
um —sonur gamanleikkonu og leikara. (Kannski
faðir hans hafi þó verið aðalsmaður.) Giacomo
kom sér upp úr fátæktinni og stundaði nám i
Padua með heldri manna sonum. Hann lauk
doktorsprófi i lögfræði, og seinna tók hann minni
prestsvigslu. En prestskapurinn fór ekki beint vel
saman við ferilinn, sem hann hafði hugsað sér.
Hann var skrifari, skáld, heimspekingur, lyfja-
fræðingur, stjörnufræðingur, fjárhættuspilari,
stærðfræðingur, töframaður — þúsund þjala
smiður, sem með töfrum sinum og kænsku smaug
um meðal heldra fólks samtiðar sinnar. Hann var
alls staðar aufúsugestur, töfraði páfa og
kardinála, hreif keisara og konunga. Hann var
kunnugur öllum furstahirðum Evrópu. En Casa-
nova sat ekki alltaf til borðs með háaðlinum.
Hann þekkti einnig til meðal hinna lægra settu —
og þá einkum kvenfólksins. Hann fórnaði öllu
fyrir konur og fé.
Fáar konur stóðust hann. Þó var ein, sem hafn-
aði öllum unaði með honum. Markgreifafrúin
d’Urfé, ein áhrifamesta ög greindasta kona sam-
tiðar sinnar i Frakklandi, gaf honum ekki færi á
að fara frá sér. Hún varð fyrri til. En flestar nutu
ástar hans, meðan hún gafst. Þær eltu hann, hvort
sem hann kærði sig um þær eða ekki — meira að
segja eftir að hann var orðinn gamall og tannlaus.
Hann lézt fyrir 176 árum, 73 ára að aldri. Nitjándu
aldar málarinn Adolphe Chauvet festi nokkur
æviatriði hans á blað. Og þið getið sjálf séð.
Sextán ára naut Giacomo
fræðslu feneysku kvenn-
anna Nanetta og Martine
um ástina. Þær voru
reyndar vel, en þó enn i
fullu fjöri.
Ærlegt bað átti að lækna
þessa einföldu feneysku
mey af öllum veikleika.
Það tókst með ágætum, og
hún kom reynslunni rikari
upp úr þvi.
16 VIKAN 43. TBL.