Vikan - 24.10.1974, Blaðsíða 24
SOA///\ KYKÍEL
FRA PARÍS:
HAUST OG VETRARTIZKAN
Nú er vetur að ganga I garð, og
enn einu sinni er heilmikið um að
vera hjá tizkuhönnuðum stór-
borganna. Innkaupastjórar og
frægt fólk, er fylgist með tizk-
unni, flykkjast á staðina, og fjöl-
miðlar keppast um að vera
fyrstir með fréttirnar. Eftir til-
breytingaleysið i tizkunni sið-
asta ár, virðast hönnuðir leggja
rika áherzlu á að vera sem
frumlegastir, og mikið er um
skemmtilegar og nýstárlegar
hugmyndir. 1 sumar slógú viðu
pilsin i gegn, og þau verða alls
ráðandi einnig i vetur. Siddin er
á miðjum kálfa, og svo er einnig
um kápurnar. Sú lina, sem virð-
ist gegnumgangandi hjá frönsku
hönnuðunum, er frjálsleg og ó-
hátiðleg. Mikið er um vlðan
klæðnað, kápur og jakka, sem
einatt eru með viðum ermum,
teknum saman um úlnliðinn. Oft
er þjóðlegt yfirbragð á kápun-
um, t.d. rússneskt, og há stigvél,
við um ökklana, verða sennilega
aðalskófatnaðurinn i vetur.
Ofsalangir treflar utan yfir sið-
ar, viðar peysur voru mjög áber-
andi, og oft báru stúlkumar tvo
mislanga. Kósakkahúfur og
prjónahúfur sáust viða, og litlu
hattamir, sem ná niður i augu,
em enn vinsælir. Oft er langri
fjöður stungið gegnum barðið.
Margs konar höfuðklútar sáust
einnig viða, oftast bundnir undir
hökuna. Rómantizki Gatsby-
stillinn er mikið notaður i kvöld-
klæðnað, og stúlkurnar em með
hárgreiðslur og snyrtingu
kvennanna úr kvikmyndinni.
Peysurnar eru stórar og viðar
jakkapeysur eða litlar, aðskorn-
ar peysur með gamaldags
prjóni. Töluvert er um stóra viða
kraga, sem minna á slá og kápur
sáust viða með efnismiklum
hettum. Náttúruefni eða óblönd-
uð efni em alls ráðandi i fatnað-
inum og mikil áherzla lögð á
mýkt. Ullar og bómullarefni,
jersey, gaberdin, silki, leður,
rúskinn og loðskinn. Litirnir eru
einnig náttúrulegir, brúnt, grátt
og beige. Annars má segja, að
allir litir séu notaðir, flestir þó
dökkir og mattir. Hér eru nokkr-
ir, franskir tizkuhönnuðir teknir
fyrir, og myndirnar sýna nýja
haust og vetrarfatnaðinn.