Vikan

Tölublað

Vikan - 11.09.1975, Blaðsíða 7

Vikan - 11.09.1975, Blaðsíða 7
STREVMA iNN segir Magnús Guðmundsson, sem var flugstjóri á Geysi. Magnús Guðmundsson, sem var flugstjóri á Geysi, starfar enn sem flugstjóri hjá Flugleið- um. Hann segir svo frá slysinu: — A leiðinni frá Luxemborg til Islands höfðum við flogiö sem næst i 8000 feta hæð, en vegna isingar hafði dregið úr flughæð- inni og við vorum að reyna að leiðrétta það, þegar vélin rakst allt i einu á jökulinn. Við það hentumst við Dagfinnur fram á mælaborðið, og ég held ég hafi misst meövitund andartaksstund. Að minnsta kosti gerði égmér ekki grein fyrir þvi i fyrstu, hvað gerst hafði, enda bjóst ég við þvi, að við værum á flugi yfir sjó. Við höggið af árekstrinum hentist vélin upp og þeyttist alllanga leið i loftinu, uns hún hafnaði á hvolfi á jöklin- um. Einhverra hluta vegna hafði þó snúist upp á fremsta hluta vélarinnar, þar sem sjónklefinn var, og hann lenti á hlið á jöklin- um. Ég get ekki hafa verið lengi meðvitundarlaus eftir höggið, þvi að meðan á þessum loftköstum stóð, hélt ég, að vélin væri að hrapa i sjóinn, og þegar snjóinn tók að skafa inn i hana gegnum göt og rifur, sem mynduðust við höggið, hélt ég að sjórinn væri farinn að streyma inn i vélina. Mér varð þvi fyrst fyrir að kalla til félaga minna, að þeir skyldu reyna að komast út úr vélinni, þvi að hún gæti sokkið. Fljótlega átt- aði ég mig þó á þvi, að við höfðum hafnað á jökli, og við tókum að búast um samkvæmt þvi. — útlitið hefur verið heldur iskyggilegt? — Vist var það það, en samt gætti engrar svartsýni i hópnum. Okkur þótti verst, að við gátum ekki verið viss um, hve alvarleg meiðsl okkar voru. Ingigerður hafði meiðst töluvert i baki og Dagfinnur i andliti, og honum blæddi mikið. Nú, og ég hafði nef- brotnað við höggið, og marist töluvert. t fyrstu varð ég ekki var við það með öðrum hætti en þeim, að mér veittist svolitið örðugt að ganga uppréttur. En þegar birti morguninn eftir sáu félagar min- ir, hvers kyns var, og þá skildi ég, hvað olli þessum óstöðugleika á fótunum. Þegar frá leið, háði nef- brotið mér þó ekki ýkja mikið, og hafðist sæmilega við. — Höfðuð þið einhverjar matarbirgðir? — Heldur voru þær nú fátæk- legar. Þó fundum við nokkrar brauðsamlokur og kassa með gosdrykkjarflöskum, og þegar við fórum að róta I ferðatöskum, sem voru I farminum, vorum við svo heppin að finna þar nokkrar tegrisjur og dalitið af súkkulaði. Eldstó bjuggum við til úr ein- hverju drasli, og eldsneyti náðum vib i með þvi að höggva gat á. eldsneytisgeymi vélarinnar. Við gátum þvi auðveldlega brætt snjóinn og hitað okkur te. Þennan litla mat skömmtuðum við auð- vitað, en við liðum ekki beinlinis fyrir hungur. — Þannig hagaði til i vélinni, 37. TBL. VIKAN 7

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.